Myndmál - 01.06.1985, Side 5
Vanir menn tilbúnir í siaginn: Frá vinstri: Ásmundur Karlsson, Birgir
Sveinbergsson, Birgir Engilberts, Ragnar Hólmarsson, Jóhann Viðar,
Sigurður Kr. Finnsson, Snorri Björnsson og „sá glæri“, Jón Svanur
Pétursson.
Vanir menn tilbúnir í slaginn
★ Langi þig að búa til stórfengiegt
ævintýraumhverfi, skapa himingeim með
plánetum og tunglum svo langt sem augað
eygir eða eitthvað þar á milli, þá geturðu
látið drauminn rætast fyrir milligöngu nýs
fyrirtækis sem kallar sig SviðsMyndir hf.
Þetta eru að vísu ekki kraftaverkamenn
en svona næstum því. Fyrirtækið sérhæfir
sig í gerð leiktjalda, leikmynda, bakgrunna
og sýningarbása og býður fram þjónustu
sína fyrir leikhús, óperur, kvikmyndir,
auglýsingar og hvað annað sem að þessu
lýtur. Starfsmennirnir hafa uppá að bjóða
áratuga reynslu í hönnun leikmynda,
leikmyndagerð, lýsingu og öðrum
tæknilegum störfum á þessus viði.
Sviðsmyndir tóku formlega til starfa í
byrjun maí en hafði nokkru áður tekið að
sér leiktjaldagerð fyrir uppfærslu tslensku
óperunnar á Leðurblökunni og Grænnu
lyftuna Revíuleikhússins. Að sögn
Sigurðar Kr. Finnssonar, eins þriggja
eigenda fyrirtækisins og fyrrum yfirsmiðs
Þjóðleikhússins, iétu þeir gera athugun á
þörfinni fyrir starfsemi á borð við jjessa
og kom í ljós að hún er mikil. „Þetta hefur
hreinlega vantað hér á landi og viðbrögðin
sem viðhöfum fengið hafa verið afar
jákvæð,“ sagði Sigurður.
Þráinn Berteisson: íslenskar iöggur
ekki síður skemmtilegar en banda-
rískar . . .
Þórog
Danni í
lögguna!
★ Þeir hjá Nýju lífi, sem stóð á
bakvið Nýtt líf, Dalalíf og nú síðast
Skammdegi, eru um þessar mundir að
undirbúa tökur á nýrri mynd um þá
dánumenn Þór og Danna. Að þessu sinni
er ætlunin að láta þá gerast afleysinga-
menn í löggunni... Óneitanlega kemur
Police Academy uppí hugann en
aðspurður kvaðst Þráinn Bertelsson
leikstjóri og handritshöfundur viljabenda
íslendingum á að íslenskar löggur væru
ekki síður skemmtilegar en þær
bandarísku og síst minna af uppákomum
og ævintýrum í kringum þær... Trúi hver
sem vill!
Estevez (hann notar upphaflegt nafn
föður síns) er væntanlegur í nýrri mynd
sem kallast St. Eimo’s Fire og í sumar
verður hann í enn einni, That Was Then,
This is Now, eftirsögu S.E. Hinton (The
Outsiders). Þar sá hann um að útvega
peninga til verksins, aðstoða við handrits-
gerðina auk þess að leika eitt aðalhlutverk-
ið, eiturlyfjasala. .Jdaður verður að leika
þessa skíthæla af og til.“ Og Emilio
Estevez stefnir enn hærra. Hann hefur nú
samið kvikmyndahandrit sem hann stefnir
á að stjórna sjálfur. Er hann að keppa við
annan metnaðargjaman ungan leikara,
Tim Hutton? „Ég verð að slá honum við
í leikstjórasætinu... Jú, sennilega verður
það hans næsta verk að leikstýra, en hann
hefur allavega ekki skrifað neitt enn.“
Emilio vill ekki
vera pabbastrákur
★ „Það er afleitt að vera þekktur sem
sonur Martin Sheen, en ekki sem Emilio
Estevez," segir hinn 22 ára gamli sonur
leikarans þekkta. Hann gaf síðast að líta
hér á landi í Coppola-myndinni The
Outsiders en hefur að undanfömu getið
sér gott orð fyrir leik sinn í Repo man og
The Breakfast Club.
Emiiio er staðráðinn í að gefa vinum
sínum ekkert eftir á leikarabrautinni. „Ég
ólst upp með Sean Penn og Rob
býr rétt hjá. Við þremenningamir emm
smátt og smátt að verða fyrirferðarmeiri
á hvíta tjaldinu," segir hann.
MYNDMÁL 5