Myndmál - 01.06.1985, Blaðsíða 10
Jeffrey Wlllis (Matt Dillon) lendir í ástarævintýri með frænku Brodys
Cörlu (Janet Jones).
THE FLAMINGO KID:
óreynda Jeffrey, hvurs sjóndeildarhringur
hefur aðeins náð að endimörkum Brook-
lyn. Og eftir að hafa aðstoðað klaufalegan
bílstjóra sem lokað hafði aðalinngangi
staðarins, er honum boðið starf við að
leggja bílum. Jeffrey uppgötvar að þjórfé
eins kvölds gefur meira í aðra hönd en
viku vinna sem sendisveinn hjá föður
sínum...
Hann kynnist Phil Brody (Richard
Crenna), bráðhressum og fyrirferðarmikl-
um sportbílasala sem einnig er ókrýndur
konungur klúbbsins og manna slyngastur
í spilum. Brody, sem ekur um á Ferrari og
á undurfallega konu (Jessica Walter),
verður einskonar átrúnaðargoð Jeffreys.
Að tillögu frænku Brodys (Janet Jones) er
Jeffrey boðið á heimili hans og þar fræðir
Síðasta saklausa sumarið
Sumarið 1963. Jeffrey Willis (Matt Dillon) er að
búa sig undir sumarvinnuna hjá föður sínum,
pípulagningamanninum (Hector Elizondo). Þeir
feðgar búa enn í gamla Brooklyn-hverfinu meðan
flestir félaga Jeffreys hafa flust í úthverfin. Á
þjóðhátíðardaginn 4. júlí koma tveir vinir Jeffreys
í heimsókn og draga hann í hinn glæsilega Flam-
ingo-klúbb sem staðsettur er á sólríkri strönd við
eyju utan við New York. Þar hyggjast þeir keppa við
nokkra félaga sínum í spilum.
BÍÓHÖLLIN
Glæsileiki Flamingo-klúbbsins hefur
ómótstæðilegt aðdráttarafl fyrir hinn
Brody hann um viðhorf sín til lífsins.
„Gleymdu bókmenntum, trúarbrögðum,
tónlist eða heimspeki'1 segir hann við
Jeffrey er þeir aka um í Ferrarivagninum.
„Þú munt aldrei sjá heimspeking aka um
í bíl á borð við þennan. Sókrates reið um
á asna. Það eru sölumenn þessa heims
sem hafa peningana. Ég hef fylgst með þér.
Og það sem ég hef séð er að þú ert efni
í einn slíkan.11
„Ekki lýgur Phil Brody,“ hugsar Jeffrey
og ákveður að hætta í skóla og gerast
sölumaður. En Arthur Willis er lítt hrifinn
af uppátæki sonar síns. „Þessi vinur þinn,
Brody, hefur vægast sagt furðulegar
skoðanir! Ég líð þær ekki í mínum húsum!“
„Þetta er síðasta saklausa sumarið fyrir
Jeffrey Willis,“ segir framleiðandinn Mich-
ael Phillips (TheSting, Close Encounters).
„Þegar sagan hefst er hann að ljúka skyldu-
náminu og þekkir lítið til utan hverfisins
sem hann hefur búið í alla tíð. Þegar
honum er svo skyndilega kippt inní dýrð
Flamingo-klúbbsins telur hann sig vera í
paradís á jörðu. Það þarf heldur ekki að
koma á óvart að hann falli fyrir Phil Brody,
sem elur á vilja unga mannsins til að koma
sér áfram í lífinu. Allt þetta er afar mikil
freisting fyrir Jeffrey sem hingað til hefur
hrærst í umhverfi þar sem lífið er tiltölu-
lega einfalt og málað svart/hvítum litum,
en er svo skyndilega staddur í litríkum og
spennandi heimi nýrra hugmynda.11
,Að unglingspiltur þurfi að horfast í
augu við framtíð sína er vissulega ekki
algengt viðfangsefni í unglingamyndum,11
segir leikstjórinn Garry Marshall, sem
stjómað hefur einni annarri mynd, Young
Doctors in Loue. „En Jeffrey Willis er
unglingur sem ekki er með það á heilanum
að berja einhvem í klessu eða losna við
sveindóminn sem fyrst. Hann lendir að
vísu í ástarævintýri með frænku Brodys,
en það er ekki mikilvægasti þáttur sögunn-
ar. The Flamingo Kid er um valkosti, um
þá staðreynd að hver unglingur þarf fyrr
eða síðar að velja sér íramtíðarbraut.11
Marshall neitar því að þessa mynd megi
flokka með farsadellu á borð við Porky's
eða Animal House. „Hún er miklu frekar í
ætt við myndir eins og The Graduate eða
American Graffitisegir hann og bætir
við: „þetta er ekki gmnnt hugsuð sprelli-
mynd, miklu frekar átakamikil gaman-
mynd.“
GULAG:
Ævintýralegur flótti úr köldum
klóm rússneska bjarnarins
Gulag segir frá bandaríska blaðamanninum
Mickey Almon (David Keith) sem sendur er til
Moskvu í þeim erindagjörðum að fylgjast með
forkeppni Óiympíuleikanna. Þar kemst hann í
klærnar á KGB sem telur hann vera njósnara.
Honum er varpað í hið illræmda Lubyanka fang-
elsi og þar má hann sæta pyntingum uns hann
skrifar undir skjal þess efnis að hafa framið
„and-sovéskan glæp“. Hann er síðan skyndilega
sendur austur á bóginn - stefnan er tekin á
Síberíu þar sem Gulag-fangabúðirnar eru stað-
settar . . .
Þegar Mickey kemur í fangabúðimar undrast hann mjög hversu fangamir
hafa sætt sig fyllilega við örlög sín. Sjálfur hefst hann strax handa við að
undirbúa flóttaaðgerðir og tekst loks að telja tvo samfanga sína á að vera
með - enskan njósnara (Malcolm McDowell) og rússneskan andófsmann
(Warren Clarke) - í hinni hættulegu flóttatilraun...
Gulag er skáldsga, en byggð að nokkm leyti á staðreyndum. „Við höfðum
í bakgrunninum frásagnir rússneskra andófsmanna sem tókst loks að
setjast að í ísrael eftir ævilangar ofsóknir og fangelsisvist,11 segir fram-
leiðandinn Andrew Adelson. Upptökur myndarinnar fóm fram í Bretlandi,
Noregi og víðar. Félag sem kallar sig Rússneska rúllettan með aðsetur í
Bretlandi og sérhæfir sig í að gefa upplýsingar um rússneskt samfélag,
yfírfór vandlega búninga og vistarvemr til að gefa sem sannasta mynd af
Gulaginu.
„Mismunurinn milli viðhorfa Mickeys og félaga hans í fangabúðunum er
afar vel lýst í handritinu," segir leikstjórinn Roger Young, sem áður hefur
leikstýrt Tom Selleck í hasarmyndinni Lassiter. „Hin ungæðislega orka hans
David Keith og Malcolm McDoweil írelsta þess að sleppa undan
köldum klóm rússneska bjarnarins í Gulag.
á móti lífsreynslu hinna, og hvemig þessir þættir sameinast í að vinna bug
á erfiðleikunum sem við er að glíma, finnst mér heillandi.11
í aðalhlutverki myndarinnar er hinn snjalli leikari David Keith sem fyrst
vakti á sér athygli sem léttsturlaður fangi í Brubaker. Síðar hefur vegur
hans sem leikara aukist enn með myndum eins og An Officer and a
Gentleman og Lords of Discipline. „Það er afar auðvelt að finna samkennd
með Mickey,“ segir Keith. „Hann er maður stórra hugmynda og hefur alla
sína ævi sett sér markmið og náð þeim. Síðan fer hann að velta því fyrir
sér hvað framtíðin beri í skauti sér þegar hann er gripinn af KGB og sviptur
frelsinu. Hugsjónir þær sem hann hefur lifað fyrir, sem og bjargföst
sannfæring hans um að engir fangelsisveggir fái haldið honum, falla
auðvitað ekki í kramið hjá fangavörðum hans. En hann hefur ekki sagt sitt
síðasta orð.“
10 MYNDMÁL