Land & synir - 01.12.1995, Blaðsíða 2
Umá&synir
Útgefandi: Félag krikmyndagerðar-
manna, Laugavegi 24,101 Rvík.
Ritstjóri: Ásgríniur Sverrisson
(552-3204).
Ábyrgðarmaður: Böðvar Bjarki
Pétursson (551-0940 & 554-2931).
Ritnefnd: Böðvar Bjarki Pétursson,
Erlendur Sveinsson, Hildur Loftsdóttir,
Sigurður Hr. Sigurðarson, Þorsteinn
Jónsson.
Útlit: Ágúst Loítsson.
Prentun: Steinmark.
Land & synir kemur út annan hvern
mánuð.
Leiðarljós
Á haustdögum 1995 er enn á ný
ráðist í útgáfu blaðs um kvikmyndir.
Land & synir er arftaki Fréttabréfs FK
sem komið hefur út um árabil, en er
ætlað síærra hlutverk. Blaðið er gefið
út undir fána Félags kvíkmyndagerðar-
manna en hefur ritstjómarlegt
sjálfstæði. Hugur okkar stendur til að
gefa út blað sem er vettvangur umræðu
um kvikmyndamenningu ahnennt. Við
höfum meiri áhuga á að skyggnast inní
hugmyndaheim ísienskra kvikmynda-
gerðarmanna heldur en að þylja upp
statistik um fjárhagsraunir þeirra. Því
miður hefur það verið svo að í gegnum
árin hefur umfjöllun um íslenskar
kvikmyndir frekar snúist um ytri
aðstæður á borð við ijármögnun og
skipulag greinarinnar, heldur en innri
mál svo sem hugmyndir, aðferðir og
nálgun við kvikmyndagerðina sjálfa.
Umijöllun er í skötulíki á flestum
fjölmiðlum og jafnvel Sjónvarpið sér
sóma sinn helstan í því að halda úti
svokölluðum “kvikmyndaþætti”
hálfsmánaðarlega sem aðeins inni-
heldur auglýsingamyndir um nýjustu
bíómyndimar ásamt mærðarlegu hjali
um ágæti þeirra. Til hvers?
íslensk kvikmyndagerð er partur af
þeirri evrópsku, rödd í stórum kór, líkt
og íslensk menning yfirhöfuð. Þessi
sjálfsögðu sannindi verða okkar
leiðarljós. Landi & sonum er ætlað að
flytja lesendum sínum skoðanir ogveita
innsýn í stefiiur og strauma, auk þess
að flytja upplýsingar um hræringar í
greininni. Ramminn er lítill en viljinn
er stór, eins og hjartað sem undir slær.
Ritnefndin sér sérstaka ástæðu til að
rakka Indriða G. Þorsteinssyni
rithöfundi íyrir þann velvilja að lána
okkur naiin blaðsins. Kvikmyndin Land
og synir eftir Ágúst Guðmundsson
markar upphafið að samfelldri gerð
bíómynda á íslandi. í látleysi sínu og
sparsömum frisagnarstíl hefur hún
öðlast sess sem eitt af klassískum
verkum evrópskrar kvikmyndagerðar.
Það er okkar að uppfylla fyrirheitin
sem hún gaf.
Málþing um íslenska
dagskrárgerð
Framleiðendafélagið hyggst
standa fyrir málþingi um
íslenska dagskárgerð í nóvember
næstkomandi. Menntamálaráð-
herra, fulltrúar sjónvarpsstöðvanna,
Menningarsjóðs og
Félags kvikmynda-
gerðarmanna
munu leggja orð í
belg, auk þess
sem von er á
þáttakendum frá
annaðhvort
breskum eða
þýskum fram-
leiðslu aðilum.
Umræðuefnið
snýst um aðkeypta
dagskrárgerð fyrir
sjónvarp og verður farið
yfir stöðu mála hér á
landi og hún borin
saman við þróun-
ina í Evrópu, þar
sem sífellt stærri
hluti dagskrárefnis er
unnin af sjálfstæðum fram-
leiðendum. Fylgist með
auglýsingum um dag-
setningar sem birtast munu
bráðlega.
Aukaúthlutun úr
Script Fund
I^slendingar riðu ekki feitum hesti
frá síðustu úthlutun í Script Fund.
Þrátt fyrir mikinn fjölda umsókna,
þá var einungis eitt verkefni sem
hlaut náð fyrir augum valnefnd-
arinnar. Þeir sem
fengu nei geta þó
huggað sig við að
það hefur verið
bætt við einum
skilafresti á um-
sóknum, þann
27. október.
Þannig að
það ætti að
vera einfalt fyrir
þá sem höfðu
umsóknir inni, að
senda þær aftur.
European Script Fund
hefur verið mjög mikil-
vægur sjóður fyrir
íslenskan kvikmynda-
iðnað og margar af
myndum síðustu ára
hafa fengið styrki úr
sjóðnum. Segja má að sjóðurinn
hafi bætt úr þeirri miklu vöntun á
fjármagni, sem er hér á landi, til
handritsskrifa og þróunar verkefna.
Fundur Norrænna
kvikmyndagerðar-
manna á íslandi
elgina 23 - 24 september var
haldin hér fundur á vegum
Skandinavíudeildar Isetu/Fistav.
Isetu/Fistav eru alþjóðleg samtök
verkalýðsfélaga kvikmyndagerðar-
manna.
FK hafði umsjón með fundinum
og fulltrúar félagsins voru þeir
Böðvar Bjarki Pétursson og
Sigurður Snæberg Jónsson. Á
efnisskrá fundarins voru aðallega
umræður um ný lög samtakanna og
stöðu Norðurlandanna innan þeirra.
Þá voru umræður um stöðu
iðnaðarins í hverju landi fyrir sig,
sem var mjög fróðlegt fyrir okkur
íslendinga. Það er greinilegt að við
stöndum hinum Norðurlöndun
langt að baki, bæði hvernig
BLÁIENGILLINN: Marlene Dietrich verðnr íRegnboganum fimmtudaginn 26.
október. Ekki missa afhenni!
Hamingjustund á
Kaffi List
Fyrsta fimmtudag hvers
mánaðar gefst íslenskum
kvikmyndagerðarmönnum
kostur á að koma saman og
lyfta glösum á veitinga-
húsinu Kaffi List við
Klapparstíginn.
Framleiðendafélagið
býður þá uppá svokallaða
“hamingjustund” eða
“happy hour" og mun ham-
ingjan ekki hvað síst felast í
því að hægt er að gera
hagstæð áfengisinnkaup á
staðnum milli klukkan sex
og níu. Auk þess er hægt að
gleðjast yfir góðum
félagsskap og skemmtilegu
skrafi um h'fið og tilveruna.
Eða eins og segir í
tilkynningunni: mætum öll,
nefndin.
2 land&symr