Land & synir - 01.12.1995, Blaðsíða 3
stjórnvöld standa við bakið á
iðnaðinum og öll starfsskilyrði
kvikmyndagerðarmanna.
Ráðleggingar hinna norrænu
kollega okkar varðandi félagsmál
kvikmyndagerðarmanna á íslandi
voru þær, að þörf væri á því að
skýra línurnar betur. Eðlilegast væri
að FK stigi skrefið til fulls með
stofnun verkalýðsfélags, sem síðan
hæfi viðræður við félög fram-
leiðenda. Þetta gæti verið lykillinn
að framþróun iðnaðarins. Þeir
töldu þau rök okkar léttvæg, að
staða mála hér á landi væri sérstök
vegna þess að kvikmynda-
gerðarmenn störfuðu ýmist sem
verktakar, launþegar eða sem
framleiðendur. Þetta sögðu þeir að
væri ekkert ólíkt því sem það væri í
þeirra löndum, en stæði starf-
seminni ekkert fyrir þrifum.
Þetta er þörf áminning fyrir
okkur og stuðningur við skoðanir
þeirra manna sem hafa viljað að FK
beitti sér meir í þá átt að tryggja
almenn kjör félagsmanna.
Á sunnudagskvöldinu var haldinn
félagsfundur FK með norrænu
gestunum, þar sem umræðuefnið
var opið. Mæting var auðvitað allt of
slök en umræðurnar voru mjög
góðar. Það sem vakti hvað mesta
athygli var lýsing norska fulltrúans á
stöðu mála í Noregi. En svo virðist
sem þar ríki mikil gósentíð í
kvikmyndaiðnaðinum, enda sagði
hann að norskir kvikmynda-
gerðarmenn gerðu ekki kröfur um
meira fé í sjóði!
Hátíðarhöld í
tilefnilOO ára afmælis
kvikmyndasýninga
Hér á landi hefur ýmislegt verið
gert til að minnast afmælisins.
Kvikmyndasafn íslands og Kvik-
myndasjóður hafa verið á ferðalagi
um landið með kvikmyndahátíð
með íslenskum myndum. Hefur
þetta sýningarhald tekist mjög vel,
og vakið athygli á því að við
íslendingar eigum okkur kvik-
myndasögu. Aðalmyndin á hátíðinni
hefur hefur verið 79 af stöðinni
sem er ný endurgerð á vegum
kvikmyndasafnsins. En einnig hafa
verið sýndar ýmsar aðrar myndir,
allt frá Höcldu Pöddu frá árinu
1923 frarn til Barna náttúrunnar.
Þessi íslenska kvikmyndahátíð
verður í Reykjavík helgina 20. - 22.
október.
En það eru einnig erlendar
myndir á dagskrá. í samstarfi flestra
sendiráðanna á fslandi, Kvik-
myndasafns íslands og fleiri aðila
hefur verið skipulagt sýningarhald í
tilefni afmælisins. Minnast má á
Gaumont hátíðina sem var Háskól-
abíói þar sýndar voru margar
myndir frá því merka fyrirtæki.
Einnig myndir sem gerðar hafa
verið eftir skáldsögum Hamsuns.
Nú í september var síðan hátíð í
Bæjarbíói með einni af stjörnum
þöglu mynda skeiðsins. Ástu
Nielsen. í október eru síðan myndir
sýndar í Regnboganum og Stjörnu-
bíói, og verða þar sýndar ýmsar
klassískar myndir sem er mikill
fengur íyrir kvikmyndaáhugamenn.
Stefnt er að því að vera með
sýningar á kvikmyndaklassík fram í
mars á næsta ári.
Ný kvikmyndalög
Miklar vonir eru bundnar við
frumvarp um kvikmyndalög
sem væntanlega verða lögð fram á
alþingi nú í vetur. Þeir Knútur
Hallsson fyrrverandi ráðuneytis-
stjóri í Menntamálaráðuneytinu og
Vilhjálmur Egilsson formaður
stjórnar Kvikmyndasjóðs hafa lagt
fram tillögur að frumvörpum um
kvikmyndamál. Miklar umræður
hafa verið um þessi mál meðal
kvikmyndafélaganna nú í sumar.
Þrátt fyrir að menn greini á um
ýmsar útfærslur á lögunum þá eru
alhr sammála urn að algjör nauðsyn
sé á að stórauka fjárveitingar til
sjóðsins, enda kvikmyndagerðar-
menn langþreyttir á að vera haldið
á hungurmörkum. Sýnt hefur verið
fram á það margoft með ýmsum
skýrslum að kvikmyndagerð hefur
alla burði til að verða blómlegur
iðnaður sem skilar tekjum inn í
landið, auk hinna mikilvægu
menningaráhrifa. En stjórnmálavöld
skella skollaeyrum við og í stað
þess að hækka framlög til
kvikmyndagerðar þá eru framlög
sífellt skorin niður.
í tillögunum er hins vegar gert ráð
íyrir stórauknum fjárveitingum til
sjóðsins og nú reynir á ráðamenn,
að þeir horfi til framtíðar og styðji
þessar hugmyndir. Vonandi verður
síðan úthlutað samkvæmt nýjum
lögurn strax á næsta ári.
n:
Land & synir mun reglulega
birta skrif kvikmyndageröar-
manna um kvikmyndir sem
sótt hafa á huga þeirra og
sitja þar sem fastast.
aked Lunch er "sick", unaðslegt, per-
vertískt sjónarhorn á hlutverk rit-
höfundarins/listamannsins. Engum öðrum en
David Cronenberg hefði tekist að færa
abstraksjón William S. Burroughs af
blaðsíðunni yfir á filmu á jafn frábæran hátt og
raun ber vitni. Bara sú ákvörðun Cronenberg
að gera myndina meira um ferh Ustamannsins,
sársaukann, kvölina, geðveikina og allt það,
gefur myndinni sterkan fókus sem heldur manni alveg við efnið, þrátt fyrir
súrrealíska útúrdúra.
En það eru reyndar þessi súrrealísku útúrdúrar sem gera myndina alveg
drepfyndna, kakkalakkarnir og margfætlurnar: þessir ógeðfelldu hlutir sem
spretta úr ímyndunaraflinu og maður þarf að berjast við og gereyða.
Hómófóbían sem Billy (aðalsöguhetjan, Peter Weller í því besta sem hann
hefur gert) er skíthræddur við, birtist í ritvélarrassgötunum, en hann þarf að
snerta þau því þau eru hans tæki, tæki hans við sköpunargáfúna, hans heiU og
ímyndunarafl: hann er í rauninni að snerta á sér heilann, Ukamlega. Svo erum
við með þessi drepfyndnu atriði með "Mugwumpunum", rithöfundarskrípum
sem eru búnir að selja sig ódýrt, "Interzone" þar sem við öll erum að reyna að
''meika það", og dópið sem við notum, annað hvort til að hefta eða auka
streymið frá Utlu heilasellunum.
Öðrum þræði
er myndin líka
um amerískt
þjóðfélag, sem
er dásamlega
rotið og "evil"
("...long before
the Indians"),
og ég hef tekið
eftir að margir
af kollegum
mínum hér
heima hafa ekki tekið eftir þeim hluta myndarinnar, þeir eru of gegnsósa af
evrópskri intelUgensíu til að fatta það að sjóndeildarhringurinn nær í kringum
hnöttinn. Þessir hinir sömu föttuðu heldur ekki húmorinn í myndinni, né hina
sorglegu aðstöðu sem Billy lendir stöðugt í (sem byrjar þegar hann drepur
eiginkonu sína, listilega leikna af Judy Davis). Nóg um það.
NakedLunch er gífurlega drungaleg mynd, ljósið er Ustilega fangað af Peter
Schuchitzky (hann hefur unnið mikið með Cronenberg og tókst einna best
upp í Dead Ringers), 90 prósent af myndinni er tekin í myndveri, og það hæfir
Uka vel þessum innri "prósess" sem verið er að lýsa. Sviðsmyndin skemmtilega
unnin, hún er hæfilega trúverðug, það er mikið af smáatriðum sem segja
manni hve tilbúin hún er, hún er næstum því "líkamleg", gæti verið úr holdi og
blóði. Tónlistin er
Þreifaðu á
skrímslinu
í sjálfum þér
EFTIR MARTEIN ST. ÞÓRSSON
(ekki Þórisson, hann er handritshöfnndurmn!)
A filta bj DAVID CRONEKBERt
** • *„-
"Erntic,
psychotic"
:wi 1 yv\
9 h \ \ 1
l'tll IHIOK WAS IIANNPD.
Tllt. HI.M SHOIH.O NPVHK HAVt: Ht.líN MADH
•mn i A'H' ___
gargandi snilld, sjaldan
eða aldrei hefur
Howard Shore tekist
svo vel upp sem í
þessari mynd þegar
hann blandar saman
symfónískum áhrifum
og bræðings jazzi -
skemmtileg vísun í
"beat"-kynslóð Burr-
oughs, Ginsberg og
Kerouac.
En það albesta, og það
sem íslenskir (og
reyndar fleiri) handrits-
höfundar mættu taka
sér til fyrirmyndar, er
textinn hans Cronen-
berg. Hann segir allt.
Hlustið vel: "Extermin-
ate all rational thought",
NAKED LUNCH ER FÁANLEG Á
ÖLLUM BE’I'RI MYNDBANDALF.IGUM.
Land&synir 3