Land & synir - 01.12.1995, Side 5

Land & synir - 01.12.1995, Side 5
og þar sem við höfðum orðið ásáttir urn að hann myndi fara ef kallið kæmi, þá varð það úr. Slawomir var reyndar svo áfjáður í að vinna Tár úr steini , enda máhð orðið honum afar skylt, að hann bauð okkur Jónu að fresta tökum um tvo mánuði og þá myndi hann bjarga okkur um það sern við þurftum, í Póllandi. Við höfðum ltinsvegar frestað tökum svo oft að við völdum þann kostinn að halda okkar striki. Ég leitaði því til Sigurðar Sverris, sem ég hef unnið mikið með og hef miklar mætur á. Hann samþykkti að taka myndina að sér og við ákváðum að söklcva okkur oní myndir Slawomirs, bæði til að myndin yrði eðlileg heild og ekki síður vegna þess að vinnan með Slawomir breytti í raun minni sýn á grund- vallarelement myndrænnar frásagnar. Þetta var sú mesta uppljómun sem ég hef orðið fyrir frá því ég lauk námi. Þessari uppljómun reyndi ég að koma yfir til Sverris og ég held mér hafi tekist að smita hann. Fyrir honum var þetta mikil áskorun og mér flnnst hann hafa staðist hana með miklum glæsibrag. Sverrir hefur nefnilega þá auðmýkt mikils Ustamanns að þó hann sé löngu búinn að sanna sig, þá getur hann ennþá lært og þróast. Sverrir er besti stuðningsmaður sem leikstjóri getur fengið, hann styður þig frammí rauðan dauðann. Segðu mér frá vinnunni með leikunmum. HILMAR: Eitt hef ég lært á stuttri ævi og kannski stuttum ferli; þegar allt kemur til alls er leikurinn það sem skiptir máli. Þú getur gert bíómynd sem er veisla fyrir augu og eyru en ef leikurinn er vondur verður myndin aldrei góð. Svo er hægt að gera mynd þar sem míkrafónninn slysast inní rammann af og til, lýsingin er upp og ofan og augnlínur stundum vafasamar en leikurinn stórkostlegur, þá ertu með góða mynd! Fólkið á tjaldinu er númer eitt tvö og þrjú. Hver maður hefur sínar vinnuaðferðir, ég er alinn upp í kringum leikhús, þó ég hafl ekki unnið þar sjálfur. Ég er hrifinn af drama, ég vil að myndirnar mínar séu um átök milli fólks. Við æfðum mjög mikið, vegna þess að ég vissi að hlutverkin voru mjög erflð. Það var ekki hægt að ætlast til þess af leikurunum að þau fyndu lausnirnar á tökustað. Við eyddum miklum tíma í lestur, rabb um persónurnar, o.þ.h. Ég tel mikilvægara fyrir leikstjóra að vita hvað hann vill ekki, heldur en að vita hvað hann vill. Þetta kann að hljóma skringilega en ef þú veist of vel hvað þú viit, eins og ég var í Skepnunni, þá ertu bundinn af því og gefur ekki svigrúm fyrir þróun. Leikarinn fær ekki tækifæri til að hafa áhrif á sínum forsendum á þá vinnu sem þið eruð að gera sameiginlega og hann þarf að standa fyrir á tjaldinu. Máhð er að vita hvert takmarkið er, en ekki vera of viss um leiðina þangað, í því er ævintýrið með leikurunum fólgið. Ég vinn líka mikla undirbúningsvinnu með tökumanni, munurinn er að núna byrja ég síðar. Áður, t.d í Skepnunni, byrjaði ég vinnuna með tökumanninum á undan leikurunum og var síðan stöðugt að reyna að fá þá til að falla inní eitthvert tökumynstur. Núna byrjaði ég með leikurunum og Iét kameruna taka tillit til þess sem hafði þróast milli okkar. Það skemmtilega er að myndirnar verða sannari og sterkari ef leikarinn finnur sjálfur sitt eigið rými og eigin hreyfingar, myndirnar fá innistæðu. Ég vil gjarnan bæta því við að hvað varðar leikstjórn á börnum, þá var ég alger nýgræðingur á því sviði. Ég hefði aldrei náð svona langt með krakkana ef ég hefði ekki notið kunn- áttu og fæmi Maríu Sigurðardóttur, sem undirbjó krakkana auk þess sem hún valdi þau með mér og bar hitann og þungann af prufum á þeim. Ntí birtist Þröstur Leó Gunnarsson aftur í annarri bíómynd þinni. Hvemig kemur það til? HILMAR: Valið stóð milli hans og tveggja annarra. Ég var búinn að sigta inná annan hinna en á síðustu stundu sagði mér einhver tilflnning í maganum að Þröstur væri rétti maðurinn. Maður á alltaf að hlusta á magann. Ég var ekki ánægður með útkomuna úr okkar samstarfi í Skepnunni, ástæðan var reynsluleysi okkar beggja. Ég t.d. kjaftaði hann í kaf af því ég vissi alltof mikið hvað ég vildi. Hann fékk aldrei að finna hlutverkið á eigin forsendum. Þegar ég bað Þröst um að taka að sér hlutverkið segi ég við hann að núna skulum við sýna fólki hvað við höfum lært á tíu árum. Hann fór í gegnum gríðarlegan undirbúning á eins og hálfs árs tímabili, þurfti að læra þýsku, auk þess að læra að stjórna hljómsveit og spila á píanó. Hann þurfti að ganga mun nær sjálfum sér en hann er vanur. Sum leikhúsin hér láta leikarana komast upp með ýmislegt sem ekki ætti að líðast. Þröstur þurfti því að fara í gegnum ákveðna skólun varðandi vinnubrögð og aga. Hann var svo heppinn að hafa á móti sér leikkonu með frábæra menntun og kunnáttu, Ruth Ólafsdóttur. Hún gat miðlað af sínum sjóði og það hjálpaði mikið. íslenskir leikarar hafa almennt ekki fengið þjálfun í t.d. method acting, eða kvikmyndaleik yfirleitt. Þeim er ekki kennt að leita að tilfinningum og flnna þær í sjálfum sér. Að vera er lykil- hugtak í method kenningum Lee Strasberg og þó að það sé orðið að ákveðinni klisju er það engu að síður grundvallaratriði. Þarna held ég að Þröstur hafl lært gífurlega mikið og sé jafnvel betri leikari eftir þessa reynslu, ekki endilega af mínum völdum heldur af því hann fékk að upplifa eitthvað á þessu ferðalagi með mér. En það að vera er heldur ekki allt og sumt. Það eru fullt af bíómyndum þar sern allir eru, en allir eru jafn óspennandi af því þeir bara eru. Þegar maður er búinn að ná því að vera, þá kemur að því að sýna hvort þú sért leikari sern getur búið til persónu. Leikaraval er þessvegna höfuðatriði, þar hefst leikstjórnin. Leikarar kvarta margir hverjir yfir íslenskum kvikmyndaleikstjórum og segja þá hrædda við að taka á þeim. Margir íslenskir leikstjórar halda að leikstjórn felist í þvi að segja leik- aranum að vera bara eðlilegur. Þetta eru afar fátækleg orð til leikara og kemur ekkert því við að búa til persónu og taka afstöðu. Hvað finnst þér að kvikmynda- höfundi leyfist mikið frelsi til að túlka líf manns sem raunverulega var til? HILMAR: Sko, þetta er í fyrsta skipti í sögu íslenskrar kvikmyndagerðar þar sem gerð er rnynd um rnann úr nálægri fortíð, með afkomendur hans og ýmsa samtíðarmenn enn á lífi. Hér á landi hlýtur þetta að vera afar viðkvæmt vegna smæðar samfélagsins, enda varð ég mjög fljótlega var við það. Við fengum aðgang að einkabréfum, dag- bókum og gögnum sem mjög fáir höfðu áður séð. Fyrsta hálfa árið vorum við bara að lesa og ræða við fólk til að gera okkur mynd af manninum. Upphaflega var ætlunin að gera leikna heimilda- mynd sem átti að segja sögu Jóns frá vöggu til grafar en smátt og smátt komumst við að þeirri niðurstöðu að ævi hans kallaði á leikna mynd í fullri lengd, hún var einfaldlega óvenju dramatísk. En burtséð frá því, miki- lvægast var að kynnast manninum vel til að geta skrifað um hann. Við lögðum upp með að þetta yrði skáldverk, byggt á heimildum en jafnframt takmarkað við ákveðið skeið. Margar ævisögur hafa flaskað á því að segja alltof langa og mikla sögu, þar sem uppbyggingu og spennu hefur verið ábótavant. Við urðum að ákveða hver væru aðal- atriðin, hvaða tilfinningar við værum að fjalla um. Þegar kjarninn var fundinn gátum við tekið staðreyndirnar og raðað þeim í kringum hann. Dramatík lýtur auð- vitað öðrum lögmál- um en sagnfræði þurftum að velja úr stað- reyndunum í samræmi við þessa stefnu. Ég vil meina að ég sé ekkert fjær sann- leikanum, jafn afstæður og hann er, heldur en ef ég hefði gert heimildamynd. Þetta er alltaf spurning um ákveðið sjónarhorn. Maður verður einfaldlega að setja fram sína útgáfu af sannleikanum og mikilvægast er að vera trúr sjálfum sér. Dæmi um atriði sem ég er oft spurður um hvort hafi raunverulega gerst er þegar íslenska hljómsveitin spilar einkennissöng nasista "Die Fahne hoch'' eftir Horst Wessel frarnan í Jón og hendir þar rneð í hann einni blautustu tusku sem hægt var að hugsa sér á þessum tíma. Staðreyndirnar voru þær að Jón var að reyna að fá menn til að spila tónlist sem þeir hvorki gátu né vildu opna eyru sín fyrir. Jón kemur hingað og boðar aga og vönduð vinnubrögð í anda mið- evrópskrar menningar, hann leit svo á að hér þyrfti að fara fram strangt uppeldisstarf en þessi viðhorf mættu mikilli mótspyrnu. Spurningin var hvernig við gætum sýnt samskipti hljómsveitarinnar og Jóns, sem auðvitað fóru fram á löngum tíma, í einu stuttu atriði. Þessi sena var skáldaleyfi, til að fá hámarks viðbrögð á sem skemmstum tíma. Hin innri sögn hennar er sönn. Mín uþþáhaldssena í myndinni og annað dœmi um skemmtilega úrvinnslu flókinna hugmynda, er þegar Jón fer í kirkjuna eina óveðursnótt og sér Pál ísólfsson sþila á orgelið. Fyrir mér var þetta nokkurskonar sáttargjörð milli þeirra, eins og þeir skildu hvorn annan þrátt fyrir ágreining á yfirborðinu. HILMAR: Já, auk þessarar eru tvær aðrar senur sem ég held mjög mikið uppá, dúettinn við píanóið og síðasta kvöldmáltíðin. Allar eiga þær sameiginlegt að vera án orða, en allar hafa þær á einhverju stigi hand- ritsgerðarinnar innihaldið samtöl. Handritsvinna er að gera hlutina aftur og aftur, komast að kjarnanum og lokaúrvinnsla þessara atriða segir manni eftilvill að þama hafi það tekist. Orðin urðu óþörf. Leikararnir höfðu einnig fylgst með þróun handritsins og höfðu því hin ósögðu samtöl í farteskinu. RÉm MAÐVBINN: „Þegar ég bað Þröst um að taka að sér hlut- verkið segi ég við hann að núna skulum við sýna fólki hvað við böfum lcert

x

Land & synir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.