Land & synir - 01.08.1996, Qupperneq 7
E g s£
m©&
BIRTA SKRIF I
KAL'ISPv '
anT hm”. ' h-u
r-i i- m't sbí
Hinn eini sanni
EFTIR EINAR ÞÓR GUNNLAUGSSON
I^bíó flóruna sem er boðið uppá í íslenskum
kvikmyndahúsum saknar maður stundum
þess besta, og þá sækja oft á mann myndir
Akira Kurosawa. Þegar b'ðanin er þannig fer
ég helst að sjá spennu, og fyrr en varir er ég
að horfa á The Rock í Austurbæjarbíói, prýði-
lega mynd um réttarstöðu bandarískra her-
manna. Vegna frábærra leikara og hasars í
hæsta gæðaflokki bjargar myndin sér á kjöl,
en í hana vantar fjórðu víddina - svo ég vitni í
grein Nicolas Roeg í Landi & sonum í vetur -
og stóð svo sem ekki til að bjóða uppá þá
vídd.
Myndir Kurosawa bjóða vissulega uppá
víddir, margt í senn, mannlegt drama, hraða,
svartan húmor og einfalt plott. Tvær af hans
perlum, Throne ofBlood (1957) og Seven
Samurai (1954) man ég eftir að hafa séð í
London fyrir um þremur árum í National Film
Theatre. Það var á venjulegum degi við hvers-
dagslegar aðstæður sem ég sá þær af rælni.
Ég fór á Samurai myndina til að ná mér eftir
þá fyrri, þóttist þekkja hana frá því á videói
mörgum árum áður, en eftir bíó var ég auðvit-
að ekki sami maður.
Throne of Blood endaði með niðurlútum
örlögum Taketoki Washizu (Macbeth), rnann-
inum sem aldrei tókst að þekkja sjálfan sig til
hh'tar og bar ekkert skynbragð á tilfinningalíf
svikular konu sinnar. Þess vegna sóttist hann
eftir einhverju hefðbundnu; t.d. völdum. Og
eitt morð feiddi til annars einsog eðli valdsins
gerir ráð fyrir. Engin af aðalpersónum eiga í
raun nokkra framU'ð eða frelsi og valdabarátt-
una dregur Kurosawa upp í sinni köldustu
mynd. ískrandi hæg mynd með undiröldu.
Seven Samurai er að nokkru leiti ólík. Hún
hefst með hraða, myndavélin fylgir hópi
bandíta sem ríða geyst yfir hæðina og byrjun-
arsenan endar í áköfum bardaga. í htlu þorpi
óttast þorpsbúar árás þessa flökkuhóps og á-
kveða að ráða sjö Samurai sér til verndar.
Einfalt plott og myndin fangar mann strax. Þar
er stöðug hreyfing, ef
ekki á myndavélinni
þá á atburðum innann
rammans og þótt að
myndin sé rúmir þrír
tímar þá er aldrei
dauður punktur. Lyk-
illinn er þó persónu-
sköpun meistarans.
Kurosawa gefur hverj-
um Samurai sinn per-
sónulega tón, hin
mjúki, hin vitri, sá
hugrakkasti o.s.frv. og félagsskapur þeirra á
milli htast stundum af strákslegri og spaugi-
legri öfund. Heimamenn bera óttablandna
virðingu fyrir þeim, en aldrei of mikið þó. Á
milh þeirra allra myndast samband byggt á
samstöðu um réttlæti, á
mót ranglæti. Loka bar-
daginn er spennu þrung-
inn, ekki síst vegna þess
að allar persónur ganga
upp, dauðar eða lifandi.
Throne of Blood er,
einsog Ran, byggð á verki
Shakespeare og var merki
um einlægan áhuga
Kurosawa á vestlægri
menningu. Auk þess gerði
hann Fávita Dostoevskys
og Hin lœgri lög eftir Gor-
ky. Flestir Japanar, og
Akira Kurosawa þar á
meðal, flokkuðu japansk-
ar myndir í period-myndir
annarsvegar og samtíma-
myndir hinsvegar. Þær
fyrri voru, þegar Kurosawa
var ungur, frekar inni-
haldslitlar myndskreyting-
ar um glæsta fortíð, og
þær síðari myndir hraða
og spennu eða rómantísk-
ar raunasögur. Kurosawa
var ákveðinn í að gefa per-
iod myndum afþreyingar-
gildi samtímamynda - einsog Seven Samurai
ber með sér - og sótti í smiðju vesturlanda.
Það er t.d. ekki erfitt að sjá áhrif John Fords í
myndum hans, einsog The Bodyguard
(Yojimbo, sem seinna var endurgerð undir
nafninu A Fistfid of Dollars) og The Hidden
Fortress. Þar notar hann landslagið líkt og
gerist í góðum vestrum, áberandi en ekki of-
notað, á réttum tíma á réttum stað, þar sem
einfarinn næsta týnist og dalir og fjöll minna á
tímaleysið og allt gilferíið undirstrikar nag-
andi óttann í sál kúrekans - eða hins japanska
Yojimbo.
Þegar atburðarrásin fer á skrið notar
Kurosawa öll meðul spennumynda, hreyfingu,
tónhst, hljóð með ekki minni tilþrifúm en höf-
undar The Rock. En það eru höfundarein-
kenni Kurosawa, hlýja hans gagnvart persón-
um, rómantík og húmor, sem bræða saman
japanska sagnaltefð og alþjóðlega strauma á
þann hátt sem náttúru-talentum er lagið. í
þriggja ára minningu hfa þessar myndir sem
hinn eini sanni trylhr.
FYRIR FRAMTÍB OG FRELSI: Kurosaua, sjö
samúrajar oj> porpsbúar draga hvergí af sér
í einni storkostlegu baraagasenu sem
filmuð hefur rerið.
Mo lar
Markaðssetning kvikmynda á fllnetinu. Nýlega var gefinn út af
National Video Resources (NVR) 12 síðna bæklingur um hvernig
markaðssetja skal kvikmyndir og myndbönd eftir sjálfstæða
kvikmyndagerðarmenn á Alnetinu (Internet). Bæklingurinn nefnist
Independents in Cyberspace og er eftir Peter Broderick. Bækhngurinn
skiptist í nokkra kafla sem nefnast: The Rise of the WWW, The Future of
Cyberspace, Innovative Models on the Web, The Foreseeable Future og
Film Sites on the WWW. F.innig má í ritinu finna fróðleik um
dreifingarfyrirtæki eins og Noodlehead Network, Cahfornia Newsreel,
Documentary Educational Resources, Bullfrog Films, PBS og Gary
Handyman: A Resource for Distributors on the Net. NVR hefur einnig
gefið út aðra bæklinga sem geta komið að góðum notum við sölu og
dreifingu á myndum.
Frekari upplýsingar um bæklinginn er hægt að fá hjá National Video
Resources, 73 Spring Street, Suite 606, New York NY 10012, sími
+212-274-8080. Fax: +212-274-8081. Nétfang: nvr@panix.com.
flhugaverður fyrirlestur í ágúst. Miðvikudaginn 7. ágúst mun
bandaríkjamaðurinn, prófessorinn og mannfræðingurinn Jay Ruby flytja
fyrirlestur er hann nefnir “Speaking in tongues - Locating a new voice
for ethnographic film”. Þar verður rætt um hefðbundnar og
óhefðbundnar leiðir í gerð heimildarmynda, bæði er varðar tæknilegan
frágang og ekki síður hugmyndafræðilega nálgun á viðfangsefninu. Jay
Ruby er vel þekktur fræðimaður á sviði heimildarmynda í
Bandaríkjunum og á meðal annars greinar í þekktri bók Alan
Rosenthals, New Challenges for Documentary. Ruby hefur undanfarna
þrjá áratugi skrifað m.a. um heimildarmyndir og siðferði,
hugmyndafræði heimildarmynda á Vesturlöndum og kvikmyndagerð
frumbyggja. Einnig verður sýnd heimildarmyndin Whose Paintings?
eftir indverska kvikmyndagerðarmanninn og mannfræðinginn Bapa
Jhala, en myndin fjallar um listaverkasafnara sem sérhæfir sig í söfnun
Rajput málverka. Ruby mun ræða hana sérstaklega í fyrirlestrinum sem
dæmi.
Ný bók. Fyrir skömmu kom út á vegum Intervention Press bókin The
Construction of the Viewer: Media Ethnography and the
Anthropology of Audiences - Proceedings from NAFA III. Ritstjórar
eru þeir Peter I. Crawford og Sigurjón Baldur Hafsteinsson. Bókin er
árangur ráðstefnu Nordic Antliropological Film Association (NAFA) sem
haldin var hér á landi á vordögum 1993. í bókinni er að finna sextán
ritgerðir eftir ýmsa kunna fræðimenn.
Á undanförnum árum hafa fræðimenn á sviði fjölmiðla- og
kvikmyndafræða sem stunda rannsóknir á áhorfendum kvikmynda og
sjónvarps leitað í ríkari mæli til etnógrafíu eða eigindalegra
rannsóknaraðferða mannfræðinnar í þeim tilgangi að bæta
tölfræðilegar eða megindalegar rannsóknaraðferðir. í þessari bók eru
m.a. færð rök fyrir því að til þess að skilja meint áhrif kvikmynda og
sjónvarps á “áhorfandann", menninguna og samfélagið, verði
fræðimenn að leita í smiðju mannfræðinnar. í bókinni er sýnt fram á
þessa nauðsyn með kenningarlegri umræðu og greint frá fjölmörgum
rannsóknarlegum niðurstöðum þar sem etnógrafíu hefur verið beitt.
Bókin er 310 bls. og kostar $37.00. Hún fæst í Bóksölu stúdenta.
VERK í VIINSLU
■ -i-y:m
vfljAiiSiy wtó‘áiatt< x fiESS-
IMfSHTT ER BEtsir A A< IÆA S?M-
BÍÓMYNDIR:
MYRKRftHÖF<INGINN (vinnuheiti).
Hrafn Gunnlaugsson /Bojonsson.
• í undirbúningi.
MARÍA. Einar Heimisson/íslenska kvik-
myndasamsteypan: • I undirbúningi. Tökur
heljast í ágúst. (Sjá L&S 3).
IBRIJJR OG SVIN. ÓskarJónasson/íslenska
kvikmyndasamsteypan. • í undirbúningi.
Tökur fyrirhugaðar haust 199ö (Sjá L&S 3).
DANSINN (vinnuheiti). Ágúst Guðmunds-
son/fsfiltn. • í undirbúningi. Tökur fyrirhug-
aðar haustið 1997. (Sjá L&S 3).
EOŒLAEyjAN. Friðrik Þór Friðriksson/ís-
lenska kvikmyndasamsieypan. • I eftir-
vinnslu. Frumsýning fýrírhuguð í haust. (Sjá
L&S3).
HCEI / 810551. Júltus Kemp/Kvikmynda-
félag íslands. • Tökum lokið. Frumsýning fyr-
irhuguð í desember. (Sjá L&S 3).
SÆHR BANSNAR. F.inar Þór Gunnlaugs-
son/Kvikmyndafélagið Umbi/Focus Films
UK. • í undirbúningi, tökur fyrirhugaðar
1996. (SjáL&S 3).
HEIMILDARMYNDIR:
REYKJAÝÍKURNÆTUR (vinnuheiti). Um
ungt fótk sem aðhyllist danstónlistar-
menningu. Handrit: Arnar Jónasson. Stjórn:
Amar Jónasson og Reynir Lyngdal.
• f eftirvinnslu, frumsýnd 1997.
IANDI< : í LIFANDI MMSHM (vinnuheiti).
5x40 mín. sjónvarpsþœttir þar sem lands-
lagi, staðháttum og sögu eru gerð skil.
Fyrstu þrír þœttirnir eru um Jökulfirði,
Hornstrandir og Vigtir, síðari tveir umjök-
uldalsheiði og hálendið norðaustur af
Vatnajökli. Stjórn: Steinþór Birgisson. Fram-
leiðandi: Víðsýn/Sjónvarpið. • I eftirvinnslu.
Þáttaröðin verður á jóladagskrá Sjónvarpsins.
ÍSLANDS fSJSUND ÁR. Erlendur Sveins-
son/Krikmyndaverstöðin ehf. • f eftir-
vinnslu. (SjáL&S3).
MÁLARINN. Erlendur Sveinsson/Kvik-
myndaverstöðin ehf. • í undirbúningi. (Sjá
L&S3).
ETEYPTIR ERAUMAR. Kári Schram/Andrá
hf. • í eftirvinnslu. Frumsýning áætluð í haust.
(Sjá L&S 3) ■
MA<UR, FUGL CG VÁTN (vinnuheiti).
ValdimarLeifsson/Lífsmynd/Sjónmrpið.
• Tökur standa yfir. Verklok áætluð haustið
1996. (SjáL&S 3).
EJÖRGUNARHUNDAR. Heimildamynd um
björgunarhunda. Stjórn: Einar Þór
Gunnlaugsson. • í eftirvinnslu.
HEBBINS STÆRSTA HAGAMLG. Þorfinn-
ur Guðnason. • Tökur standa yfir. (Sjá L&S
3) .
STUTTMYNDIR
KALT BDR<. .IhHíV Rögnvaldsdóttir/Kvik-
myndafélagiðAx. • I undirbúningi
SJÓNVARPSMYNDIR:
TRÉ<. Jón Egill Bergjmrsson / Sjónvarpið.
• í undirbúningi. Tökur í sumar. (Sjá L&S 4).
MtSLA LERA. Egill Eðvarðsson /Sjónvarp-
ið. • í undirbúningi. Tökur í sumar. (Sjá L&S
4) .
HVAR ER VÖLUNDUR? Jóladagatal Sjón-
varpsins. Höfundur: Þorvaldur Þorsteinsson.
Upptökustjórn: Ragnheiður Thorsteinsson.
Umsjón: Felix Bergsson og Gunnar Helgason.
Framleiðandi: Sjónvarpið.
• í undirbúningi.
HAFNARFJAR <ARLÖGGAN. Hallur Helga-
son. • í undirbúningi. (Sjá L&S 4).
PAT í ,T VffiR EINN f HE3MMJM. Ásthildur
Kjartansdóttir/Litla gula hœnan. • í eftir-
vinnslu. (Sjá L&S 3) -
lætrtk&synir 7