Land & synir - 01.05.1998, Qupperneq 1
Þorfmnur Ómarsson er
kki þar ánœgður með
skipulag Kvmnyndahátíðar
Þorkell Harðarson,
urn nýþýdda skýrsíu um
Asgrímur Sverrisson skrifar
um bóh og heimildarmynd
Martin Scorsese, ,4 Person-
ffhAm-
Hilmir Snær er Myrkrahöfðinginn
U' titökum er nú lokið á kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Myrkra-
höfðinginn, sem hann framleiðir í samvinnu við íslensku kvikmynda-
samsteypuna og Bo Jonsson í Svíþjóð. Innitökur hefjast uppúr miðjum maí og
mun ljúka seinnipart júní á þessari örlagasögu um óhamdar ástríður, iðrun og
yfírbót. Fyrirhugað er að frumsýna myndina í lok ársins. Á bls. 9 er að flnna hsta
yflr leikara og starfshð myndarinnar.
Næsta mynd sem fer í gang verður að öhum líkindum frumraun Einars Þórs
Gunnlaugssonar, 66°N (áður Sweet Bananas), sem framleidd er í samstarfi
Focus Films í Bretlandi og íslensku kvikmyndasamsteypunnar. Við heyrum
jafnframt að Friðrik Þór Friðriksson hugsi sér til hreyfings með haustinu, með
Engla alheimsins eftir verðlaunabók Einars Más Guðmundssonar. Friðrik Þór
vinnur nú að stuttri sjónvarpsmynd fyrir þýska stöð, sem er hluti af þáttaröð er
kallast Erotic Tales. Upptökur fara fram á íslandi og í Ástrahu.
Lumarþú á stuttmynd eða heimildarmynd?
Láttu þá ekki hjá líða að senda hana til valnefndar Nordisk
Panorama, sem haldin verður nú í sumar. Skilafrestur er til 15.
maí n.k. og hægt að leggja myndir inn hjá Kvikmyndasjóði.
• Sjónvarpið, Leiklisíarskóli íslands (4.
bekkur) Óskar Jónasson ogEinar Kárason fyrir
hina bráðskemmtilegu sjónvarpsmynd, Rót,
sem frumsýnd var í Sjónvarpinu þann 26.
apríl s.l. Fögnuðurinn er ekki hvað síst fólginn
í auknum áherslum Leiklistarskólans á vinnu
fyrir myndmiðla.
HINIR VERÐUGU A0 MATI
RITNEFNDAR HVERJU SINNI
Frá aðalfundi FK
Aðalfundur Félags kvikmyndagerðarmanna
var haldinn í Kornhloðunni mánudaginn 20.
apríl kl. 20:00. í stjórn voru kosin, Hákon
Már Oddsson formaður, Þorkell S. Harðarson
varaformaður, Katrín Ingvadóttir gjaldkeri,
Jón Karl Helgason ritari, Hjálmtýr Heiðdaí
meðstjórnandi og Kristín María Ingimars-
dóttir varamaður.
Skýrsla stjórnar (formanns) íjallaði m.a.
um samningamál, höfundarétt, almenna
hagsmunagæslu og Land & syni. Undir
liðnum önnur mál voru þessi atriði rædd
frekar og koma fram mikih samhugur hjá
fundarmönnum um framtíðarmarkmið
félagsins.
A síðasta ári var unnin undirbúningsvinna
vegna samninga bæði við sjálfstæða framleið-
endur sem og sjónvarpsstöðvar. Sem stendur
er unnið að upplýsingaöflun og með haustinu
munu væntanlega hefjast samningafundir
enda ástandið óþolandi fýrir alla aðila. Var
samþykkt að leggja allt að 500.000,- kr til
samningamála.
Nýr höfundasjóður FK var stofnaður á
vormánuðum og er unnið að úthlutunar-
reglum fyrir sjóðinn. Vanda verður til
úthlutunarreglna enda grunnhugmyndin að
kollektívir höfúndapeningar renni til höfúnda
fyrir þegar birt verk. Stofnfé sjóðsins er
600.000,- kr.
Hagsmunalögreglur FK hafa haft í nægu að
snúast. Hin fræga 0.0.- kr. úthlutun
Kvikmyndasjóðs '97 (til heimildar- stutt og
hreyfimynda) vakti kvikmyndagerðarmenn af
þyrnirósardraumi. Vaxtarbroddur íslenskrar
kvikmyndagerðar var nánast þurrkaður út á
einu bretti. Fundir voru haldnir með ráðherra
og stjórn Kvikmyndasjóðs og skýrslur
skrifaðar. Vandræðagangur Mennningarsjóðs
útvarpsstöðva virðist engan enda ætla að taka
og líklega þarf reglugerðarbreytingu til að
koma skikk á starfsemi sjóðsins. Ný kvik-
mynda-, útvarps- og skattalög eru nauðsynleg
til að styrkja starfsskilyrði greinarinnar.
Nokkur umræða var um útgáfu Lands &
sona en stór hluti af félagsgjöldum rennur til
að kosta útgáfuna. Önnur félög kvikmynda-
gerðarmanna hafa sýnt áhuga á samvinnu við
útgáfu blaðsins og var það áht aðalfundar að
stjórnin athugaði hvort flötur fýndist á slíkri
samvinnu.
Félagsgjöld voru ákveðin óbreytt þ.e.
5.000,- kr en aðalfundur ákvað að veita
gjaldkera umboð til að semja við þá sem
komnir eru í skuld meir en tvö ár aftur í
tímann og njóta þar með engvra félags-
réttinda. Einnig verður samið við félagsmenn
sem hafa fasta búsetu erlendis
Var það samdóma álit aðalfundar að
samningamálin væru brýnasta verkefni
nýkjörinnar stjórnar. FK átti síðast aðild að
samningi við Ríkisútvarpið um '87 ásamt
leikhúsleiksjórum. Samningar við sjálfstæða
kvikmynda- og myndbandaframleiðendur
hafa ekki verið gerðir hingað til en vonandi
verður breyting á því á næstunni.
Hákon Már Oddsson, form. FK.