Fréttablaðið - 30.04.2018, Side 11

Fréttablaðið - 30.04.2018, Side 11
Q7 e-tron Á rafmagninu kemstu flestra þinna daglegra ferða en í lengri ferðum tekur dísilvélin við. 5 á ra á by rg ð fy lg ir f ól ks bí lu m H EK LU a ð up pf yl lt um á kv æ ðu m á by rg ða rs ki lm ál a. Þ á er a ð fi nn a á w w w .h ek la .is /a by rg d HEKLA · Laugavegi 170-174 · Sími 590 5000 / Audi.is 10.420.000 kr.Verð frá Þegar ég gegndi þingmennsku leitaði ég stundum á náðir ímyndunaraflsins til þess að gera mestu þrætutímabilin í þingsal bæri- legri. Kannski þegar Jón Gunnarsson hafði lagt fram tillögu um að henda upp átta virkjunum með tilheyrandi náttúru- spjöllum sísvona, og fólk var almennt og skiljanlega snælduvitlaust – ég meðtal- inn – svo dögum skipti í pontu þingsins, þá var aðkallandi að flýja veruleikann einstaka sinnum í huganum. Ég sá fyrir mér að þegar deilur væru í hámarki og fólk væri að drepast úr depurð myndi heyrast taktur í þingsal, penna slegið í borð. Það myndi slá þögn á ræðumann. Hann yrði undrandi. Svo heyrðist annar sláttur, annars staðar úr salnum. Annar þingmaður slægi penna í borð. Þá myndi forsetinn ranka við sér. Í stað þess að stöðva þessa harmóníu í fæðingu myndi hann lymskulega, með brosvipru á vör, slá í bjölluna í takt við pennana. Ræðumaður væri þá alveg þagnaður. Skyndilega myndi áhorfandi á pöll- unum bresta í söng, ung stúlka. Hún myndi syngja eitthvað dásamlega fallegt, uppörvandi og skemmtilegt. Þing- heimur stæði upp. Í viðlaginu myndu þingverðir streyma inn í vel skipulagðri röð og hefja dans á gólfi og borðum og henda skjölum upp í loftið. Allir myndu dansa. Hurðir yrðu opnaðar upp á gátt. Allir streymdu út, starfsmenn, þing- menn, áhorfendur, valhoppandi út á Austurvöll. Þar hitti þingheimur fólkið í landinu. Mótmælendur með tunnur kæmu með í taktinn. Lúðrablásarar blésu flottar línur. Túristar dönsuðu hlið- ar saman hliðar í fallegri röð í alls konar lituðum goretexjökkum. Út úr búðunum og veitingastöðunum streymdi fólk, konur í doppóttum kjólum og menn með uppbrettar skyrtuermar og six- pensara á höfði. Það yrði dansað niður á höfn, þar sem sjómennirnir slægjust í hópinn. Og svo áfram og upp. Þetta yrði eins og byrjunaratriðið í La la land. Alls- herjar söng- og dansleikur. Kærleikur í Kóreu Ég hafna því að ég sé afbrigðilegur hvað þetta varðar. Þörfin á því að upplifa hversdagsleikann sem söngleik er sam- mannleg. Þegar þetta er skrifað hafa 17 milljón manns horft á Facebook á þrjár systur í írsku fjósi syngja og dansa með kústsköftum við lagið Don’t stop belie- vin’. Fyrir nokkrum árum var efnt til skipulagðra, og óvæntra, dansatriða út um allt. Eiginlega alls staðar nema í þing- inu. Það hét flashmob. Heilu verslunar- miðstöðvarnar brustu í söng og dans. Fyrir helgi varð mér hugsað til mögu- leikans á því að eitt svona atriði myndi eiga sér stað á stjarnfræðilegum skala. Ég eygi möguleika á allsherjar söng- og dansleik á Kóreuskaga. Eftir áratuga vopnaskak þjóðanna þar hittust þeir Kim Jung-un og Moon Jae-in loksins og ræddu málin á löngum fundi. Þeir voru brosandi. Þeir göntuðust. Þeir féllust í faðma. Það jaðraði við flashmob. Maður spyr sig: Leyfist manni að vona að loksins hafi þannig ákvarðanir verið teknar innan hins alræmda einræðis- ríkis, Norður-Kóreu, að fegurð og birta geti loksins flætt þangað inn? Að fólk verði laust úr ánauð? Ég fór eitt sinn að þessum landamærum. Það er ótrúlegt að horfa yfir. Í Norður-Kóreu er enginn skógur. Þar hefur allt verið brennt til að hita upp húsin. Þar eru gerviþorp, leikmyndir, sem byggð voru af einræðis- stjórninni til að telja umheiminum trú um að allt stæði í blóma. Í hlíðinni á einu fjallinu stendur risastór stytta af Kim Il-sung. Mikið yrði veröldin betri ef þeir félagar, Moon og Kim, myndu leysa ágreininginn með einu góðu söng- leikjaatriði, steppa sig inn í frið og kær- leika fyrir þjóðirnar báðar. Kannski er það nógu merkilegt atriði í bili, og fagurt, að leiðtogarnir tveir ætli sér að sameina fjölskyldur sem hafa verið aðskildar í áratugi. Íslenskur söng- og dansleikur Svona tíðindi eru æðisleg. Þau vekja von. Kannski eru þetta falsvonir. Kannski er þetta plott vondra manna. En maður getur samt leyft sér að vona. Lífið verður aldrei alveg söngleikur. En það má ímynda sér það, eins og í þinginu forðum. Kannski gerist það næstum því. Það nægir. Góð tíðindi geta gerst og heimurinn getur tekið framförum. Tökum Ísland: Það væri æðislegt ef á Íslandi væru einhvern tímann lágir vextir á húsnæðislánum og efnahagslífið væri stöðugt. Ef hér væri fullt af góðum, fjölbreyttum, vel launuðum störfum fyrir fólk með alls konar menntun og hæfileika. Ef heilbrigðisþjónustan væri fullfjármögnuð og skólakerfið líka. Ef vegirnir væru góðir. Ef allir gætu fengið þak yfir höfuðið án þess að eiga 23 þúsund milljónir. Ef allt væri ekki svona rosalega dýrt, þannig að maður gæti sleppt því að fá hjartaflökt og aðsvif um hver mánaðamót. Ef allir væru sammála um það, alltaf, að við ætluðum að vernda íslenska náttúru. Allt er þetta vel mögulegt. Og það sem meira er: Þetta væri efni í mjög flott flashmob. Kominn tími á gott flashmob Guðmundur Steingrímsson Í dag Í viðlaginu myndu þingverðir streyma inn í vel skipu- lagðri röð og hefja dans á gólfi og borðum og henda skjöl- um upp í loftið. S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 3 0 . a p R Í L 2 0 1 8 3 0 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F A 0 -B 8 0 8 1 F A 0 -B 6 C C 1 F A 0 -B 5 9 0 1 F A 0 -B 4 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 2 9 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.