Fréttablaðið - 30.04.2018, Page 11
Q7 e-tron
Á rafmagninu kemstu flestra þinna daglegra
ferða en í lengri ferðum tekur dísilvélin við.
5
á
ra
á
by
rg
ð
fy
lg
ir
f
ól
ks
bí
lu
m
H
EK
LU
a
ð
up
pf
yl
lt
um
á
kv
æ
ðu
m
á
by
rg
ða
rs
ki
lm
ál
a.
Þ
á
er
a
ð
fi
nn
a
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
by
rg
d
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Sími 590 5000 / Audi.is
10.420.000 kr.Verð frá
Þegar ég gegndi þingmennsku leitaði ég stundum á náðir ímyndunaraflsins til þess að gera
mestu þrætutímabilin í þingsal bæri-
legri. Kannski þegar Jón Gunnarsson
hafði lagt fram tillögu um að henda upp
átta virkjunum með tilheyrandi náttúru-
spjöllum sísvona, og fólk var almennt og
skiljanlega snælduvitlaust – ég meðtal-
inn – svo dögum skipti í pontu þingsins,
þá var aðkallandi að flýja veruleikann
einstaka sinnum í huganum.
Ég sá fyrir mér að þegar deilur væru
í hámarki og fólk væri að drepast úr
depurð myndi heyrast taktur í þingsal,
penna slegið í borð. Það myndi slá þögn
á ræðumann. Hann yrði undrandi. Svo
heyrðist annar sláttur, annars staðar úr
salnum. Annar þingmaður slægi penna
í borð. Þá myndi forsetinn ranka við sér.
Í stað þess að stöðva þessa harmóníu í
fæðingu myndi hann lymskulega, með
brosvipru á vör, slá í bjölluna í takt við
pennana.
Ræðumaður væri þá alveg þagnaður.
Skyndilega myndi áhorfandi á pöll-
unum bresta í söng, ung stúlka. Hún
myndi syngja eitthvað dásamlega fallegt,
uppörvandi og skemmtilegt. Þing-
heimur stæði upp. Í viðlaginu myndu
þingverðir streyma inn í vel skipulagðri
röð og hefja dans á gólfi og borðum og
henda skjölum upp í loftið. Allir myndu
dansa. Hurðir yrðu opnaðar upp á gátt.
Allir streymdu út, starfsmenn, þing-
menn, áhorfendur, valhoppandi út á
Austurvöll. Þar hitti þingheimur fólkið
í landinu. Mótmælendur með tunnur
kæmu með í taktinn. Lúðrablásarar
blésu flottar línur. Túristar dönsuðu hlið-
ar saman hliðar í fallegri röð í alls konar
lituðum goretexjökkum. Út úr búðunum
og veitingastöðunum streymdi fólk,
konur í doppóttum kjólum og menn
með uppbrettar skyrtuermar og six-
pensara á höfði. Það yrði dansað niður
á höfn, þar sem sjómennirnir slægjust í
hópinn. Og svo áfram og upp. Þetta yrði
eins og byrjunaratriðið í La la land. Alls-
herjar söng- og dansleikur.
Kærleikur í Kóreu
Ég hafna því að ég sé afbrigðilegur hvað
þetta varðar. Þörfin á því að upplifa
hversdagsleikann sem söngleik er sam-
mannleg. Þegar þetta er skrifað hafa 17
milljón manns horft á Facebook á þrjár
systur í írsku fjósi syngja og dansa með
kústsköftum við lagið Don’t stop belie-
vin’. Fyrir nokkrum árum var efnt til
skipulagðra, og óvæntra, dansatriða út
um allt. Eiginlega alls staðar nema í þing-
inu. Það hét flashmob. Heilu verslunar-
miðstöðvarnar brustu í söng og dans.
Fyrir helgi varð mér hugsað til mögu-
leikans á því að eitt svona atriði myndi
eiga sér stað á stjarnfræðilegum skala.
Ég eygi möguleika á allsherjar söng- og
dansleik á Kóreuskaga.
Eftir áratuga vopnaskak þjóðanna þar
hittust þeir Kim Jung-un og Moon Jae-in
loksins og ræddu málin á löngum fundi.
Þeir voru brosandi. Þeir göntuðust. Þeir
féllust í faðma. Það jaðraði við flashmob.
Maður spyr sig: Leyfist manni að vona
að loksins hafi þannig ákvarðanir verið
teknar innan hins alræmda einræðis-
ríkis, Norður-Kóreu, að fegurð og birta
geti loksins flætt þangað inn? Að fólk
verði laust úr ánauð? Ég fór eitt sinn að
þessum landamærum. Það er ótrúlegt
að horfa yfir. Í Norður-Kóreu er enginn
skógur. Þar hefur allt verið brennt til
að hita upp húsin. Þar eru gerviþorp,
leikmyndir, sem byggð voru af einræðis-
stjórninni til að telja umheiminum trú
um að allt stæði í blóma. Í hlíðinni á einu
fjallinu stendur risastór stytta af Kim
Il-sung.
Mikið yrði veröldin betri ef þeir
félagar, Moon og Kim, myndu leysa
ágreininginn með einu góðu söng-
leikjaatriði, steppa sig inn í frið og kær-
leika fyrir þjóðirnar báðar. Kannski er
það nógu merkilegt atriði í bili, og fagurt,
að leiðtogarnir tveir ætli sér að sameina
fjölskyldur sem hafa verið aðskildar í
áratugi.
Íslenskur söng- og dansleikur
Svona tíðindi eru æðisleg. Þau vekja von.
Kannski eru þetta falsvonir. Kannski er
þetta plott vondra manna. En maður
getur samt leyft sér að vona. Lífið
verður aldrei alveg söngleikur. En það
má ímynda sér það, eins og í þinginu
forðum. Kannski gerist það næstum
því. Það nægir. Góð tíðindi geta gerst og
heimurinn getur tekið framförum.
Tökum Ísland: Það væri æðislegt ef
á Íslandi væru einhvern tímann lágir
vextir á húsnæðislánum og efnahagslífið
væri stöðugt. Ef hér væri fullt af góðum,
fjölbreyttum, vel launuðum störfum
fyrir fólk með alls konar menntun og
hæfileika. Ef heilbrigðisþjónustan væri
fullfjármögnuð og skólakerfið líka. Ef
vegirnir væru góðir. Ef allir gætu fengið
þak yfir höfuðið án þess að eiga 23
þúsund milljónir. Ef allt væri ekki svona
rosalega dýrt, þannig að maður gæti
sleppt því að fá hjartaflökt og aðsvif um
hver mánaðamót. Ef allir væru sammála
um það, alltaf, að við ætluðum að vernda
íslenska náttúru.
Allt er þetta vel mögulegt. Og það
sem meira er: Þetta væri efni í mjög flott
flashmob.
Kominn tími á gott flashmob
Guðmundur
Steingrímsson
Í dag
Í viðlaginu
myndu
þingverðir
streyma inn í
vel skipu-
lagðri röð og
hefja dans á
gólfi og
borðum og
henda skjöl-
um upp í
loftið.
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 3 0 . a p R Í L 2 0 1 8
3
0
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
A
0
-B
8
0
8
1
F
A
0
-B
6
C
C
1
F
A
0
-B
5
9
0
1
F
A
0
-B
4
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K