Morgunblaðið - 11.09.2017, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.09.2017, Blaðsíða 1
MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 2017 ÍÞRÓTTIR Bikarmeistarar Eyjakonur fögnuðu bikarmeistaratitlinum 2017. Fyrsti stóri titillinn hjá leikmönnum, sem hungrar í fleiri. Stjarnan var yfir þegar skammt var til leiksloka. ÍBV handhafi beggja bikartitlanna 8 Íþróttir mbl.is GOLF Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Ólafía Þórunn Kristinsdóttir þarf ekki lengur að hafa áhyggjur af því hvernig næsta keppnistímabil kem- ur til með að líta út. Eftir magnaðan árangur á LPGA-móti í Indianapolis um helgina, þann besta hjá íslensk- um kylfingi, flaug Ólafía upp pen- ingalistann mikilvæga á mótaröðinni og ætti að geta gengið að því sem vísu að fá fullan keppnisrétt á móta- röðinni aftur á næsta ári. Ólafía hafnaði í 4. sæti á mótinu um helgina, á samtals 13 höggum undir pari. Hún náði sér með sérlega glæsilegum hætti í örn á lokahol- unni, á þriðja og síðasta keppnisdeg- inum, sem skilaði henni sex sætum ofar en ella. Aðeins bandaríska golf- stjarnan Lexi Thompson (-19), hin nýsjálenska Lydia Ko (-15) og hin ástralska Minjee Lee (-14) enduðu ofar. Fjórða sætið gaf Ólafíu 102.909 Bandaríkjadali í verðlaun, eða um 10,9 milljónir króna. Segja má að örninn á lokaholunni hafi fært henni 6,6 milljónir aukalega, því fyrir 10. sæti fengust 4,3 milljónir. Þetta verðlaunafé er ekki aðeins ágæt búbót fyrir Ólafíu heldur kem- ur það henni upp LPGA-listann, þar sem kylfingum er einfaldlega raðað eftir því hve miklu verðlaunafé þeir safna yfir tímabilið. Efstu 100 fá svo- kallaðan „fullan keppnisrétt“ á næsta tímabili, rétt eins og Ólafía hefur nú eftir að hafa þrætt nálar- augað á úrtökumótinu síðasta vetur. Ólafía komst um helgina úr 101. sæti í 67. sæti peningalistans, og hefur samtals safnað 174.999 Bandaríkja- dölum. Kylfingurinn í 100. sæti er með 91.223 dali, nú þegar níu mót af 34 sem gefa verðlaunafé eru eftir á þessu keppnistímabili. Til samanburðar má nefna að kylfingurinn sem endaði í 100. sæti peningalistans í fyrra fékk 90.577 dali. Að teknu tilliti til þess að heild- arverðlaunafé á mótaröðinni jókst á milli ára um 17% er ljóst að Ólafía, með sína 175 þúsund dali, þarf ekki að óttast að enda neðar en í 100. sæti. Komin til Frakklands Það sem meira er; ef Ólafía heldur sér í hópi efstu 80 kylfinga peninga- listans verður hún í „efsta forgangs- hópi“ á næsta tímabili. Því fylgja enn betri möguleikar á að komast á þau mót sem Ólafía kýs, þar á meðal mót þar sem enginn niðurskurður er og því meira öryggi hvað tekjuöflun varðar. Ólafía er nú komin til Frakklands þar sem hún hefur leik á sínu þriðja risamóti í ár, Evian-meistaramótinu, sem hefst á fimmtudag og stendur yfir fram á sunnudag. Framtíðin er tryggð og björt AFP Fjórða Ólafía Þórunn Kristinsdóttir slær högg á Indy Women in Tech á laugardag, þar sem hún varð í 4. sæti.  Ólafía hátt upp peningalistann eftir 4. sæti  Örn í lokin gaf 6,6 milljónir Peningalisti LPGA » Ólafía fór úr 101. sæti í 67. sæti um helgina. Hún hefur samtals safnað 174.999 Bandaríkjadölum í ár, jafnvirði um 18,5 milljóna króna á nú- verandi gengi. » Ólafía fékk 10,9 milljónir króna fyrir að enda í 4. sæti á Indy Women in Tech-mótinu í Indianapolis um helgina. Alfreð Finnbogason varð um helgina þriðji Íslendingurinn í sög- unni til að skora þrennu í þýsku 1. deildinni í knatt- spyrnu karla. Alfreð skoraði þá öll mörk Augsburg í 3:0-sigri á Köln. Aðeins Atli Eð- valdsson og Eyjólfur Sverrisson höfðu unn- ið sams konar afrek áður. Þar með hefur Alfreð skor- að þrennu í deildarkeppni í fjórum löndum. Hann skoraði þrennu fyrir Breiðablik í 4:0-sigri á Stjörnunni í júlí 2010, aftur fyrir Hels- ingborg í 4:1-sigri á Gefle í Svíþjóð 2012 og einnig fyrir Heer- enveen í 5:2-sigri á Waalwijk í Hollandi haustið 2013. Við þetta má svo bæta fernu sem Alfreð skoraði fyrir Heerenveen gegn Kozakken Boys í hollenska bikarnum. Alfreð skoraði þrennuna þrátt fyrir að vera enn að jafna sig af flensuvírus sem hann fékk í landsleikjahléinu, sam- kvæmt heimasíðu þýsku 1. deildarinnar: „Það lítur út fyrir að vírus- inn hafi hjálpað honum, svo kannski ætti hann að reyna að halda í hann,“ sagði Manuel Baum, þjálfari Augsburg, létt- ur í bragði. Liðið er í 8. sæti í deildinni og Alfreð marka- hæstur með fjögur mörk. sindris@mbl.is Alfreð með flensu í þriggja manna þrennuhóp Alfreð Finnbogason Þýskaland, Spánn, Slóvenía, Lettland, Grikkland, Rúss- land, Ítalía og Serbía tryggðu sér um helgina sæti í átta liða úrslitum á Evrópumóti karla í körfuknattleik. Tvö þessara liða sigruðu strákana okkar í riðlakeppninni í Helsinki, Slóvenía og Grikkland. Hin tvö liðin sem komust áfram úr riðli Íslands, Frakkland og Finnland, féllu úr leik um helgina. Mesta spennan í 16 liða úr- slitunum var í viðureign ná- grannanna Frakklands og Þýskalands. Frakkar voru með undirtökin í fyrri hálf- leik en Þjóðverjar eru seigir. Þeir sigu fram úr í seinni hálfleik og tryggðu sér að lokum þriggja stiga sigur. Átta liða úrslitin verða leikin á morgun og miðviku- dag: Átta liða úrslit: 12. september: Þýskaland – Spánn Slóvenía – Lettland 13. september: Grikkland – Rússland Ítalía – Serbía Slóvenía og Grikkland áfram úr riðli Íslands AFP Átta liða úrslit Slóvenar kom- ust áfram og mæta Lettum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.