Morgunblaðið - 11.09.2017, Síða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 2017
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang
augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Í GARÐABÆ
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Það voru Stjörnumenn sem fögnuðu
fyrstu tveimur stigum nýs tímabils í
Olís-deild karla í handknattleik í
gærkvöldi eftir sigur á Selfossi í
hörkuleik, 29:26. Patrekur Jóhann-
esson sneri þá aftur í deildina eftir að
hafa síðast gert Hauka að Íslands-
meisturum vorið 2015, en lærisveinar
hans hjá Selfossi virtust koma nokk-
uð vankaðir til leiks og tók það sinn
tíma að vinna úr því.
Stjarnan tók strax frumkvæðið í
leiknum og eftir fjögur mörk í röð um
miðjan fyrri hálfleikinn var staða
heimamanna vænleg í hálfleik og sex
marka forysta staðreynd, 17:11.
Héldu þá eflaust margir að eftirleik-
urinn yrði auðveldur, en svo reyndist
aldeilis ekki.
Patrekur er enginn nýliði í brans-
anum og hvort sem hann setti tíkall í
trúðinn í hálfleik eða hvað þá voru
Selfyssingar í það minnsta vel upp-
trekktir eftir hlé. Þeir skoruðu fimm
mörk í röð og minnkuðu muninn í tvö
mörk á augabragði, 18:16 en klinkið
var þá búið og engin innistæða virtist
vera fyrir öðru áhlaupi þegar Stjarn-
an rankaði við sér úr rotinu. Selfyss-
ingar eltu því allt til enda og horfðu á
eftir stigunum í greipar Stjörnunnar.
Bæði lið áttu sína góðu og slæmu
kafla, en þeir voru einfaldlega lengri
hjá Selfyssingum. Vörnin small í
upphafi síðari hálfleiks, en annars
voru Stjörnumenn duglegir að finna
glufur. Helsti munurinn lá svo í
markvörslunni, þar sem Sveinbjörn
Pétursson kemur afar vel undan
sumri og varði 18 skot í marki Stjörn-
unnar. Samanlögð markvarsla Sel-
fyssinga var sjö skot, en Patrekur
sagði við Morgunblaðið eftir leik að
bosnískur markvörður sem liðið
samdi við í sumar væri ekki enn orð-
inn löglegur vegna vandræða í papp-
írsvinnu. Vonandi fyrir Selfyssinga
að hægt verði að greiða úr því.
Liðunum var spáð áþekku gengi
fyrir tímabilið og er það ekki fjarri
lagi. Bæði eru þau með afar vel
mönnuð byrjunarlið, en það má lítið
út af bera því breiddin er ekki sú
stærsta. En nú þegar stærsti skrekk-
urinn er farinn af mönnum og þeir
mættir út á parketið á ný verður
gaman að sjá hvort hægt verði að
gera atlögu að toppbaráttu eins og
bæði lið hafa eflaust á bak við eyrað.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tilþrif Ólafur Gústafsson í liði Stjörnunnar var duglegur að sækja á vörn
Selfoss og er hér með línusendingu yfir Einar Sverrisson í leiknum í gær.
Selfoss þurfti annað í Garðabæ
Eitt áhlaup
dugði ekki
TM-höllin, úrvalsdeild karla, Olís-
deildin, sunnudaginn 10. september
2017.
Gangur leiksins: 4:2, 6:4, 10:5, 12:9,
14:10, 17:11, 18:14, 20:16, 22:19,
25:21, 27:23, 29:26.
Mörk Stjörnunnar: Ari Magnús Þor-
geirsson 8, Aron Dagur Pálsson 5,
Ólafur Gústafsson 5, Garðar Bene-
dikt Sigurjónsson 3/1, Leó Snær Pét-
ursson 2, Hörður Kristinn Örvarsson
2, Gunnar Valdimar Johnsen 2,
Bjarki Már Gunnarsson 1, Hjálmtýr
Alfreðsson 1.
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson
18/1.
Utan vallar: 10 mínútur
Mörk Selfoss: Hergeir Grímsson 8,
Elvar Örn Jónsson 7, Atli Ævar Ing-
ólfsson 5, Teitur Örn Einarsson 4/1,
Einar Sverrisson 1, Haukur Þrast-
arson 1.
Varin skot: Sölvi Ólafsson 4, Helgi
Hlynsson 3.
Utan vallar: 6 mínútur
Dómarar: Arnar Sigurjónsson og
Svavar Ólafur Pétursson
Áhorfendur: 303.
Stjarnan – Selfoss 29:26
EM karla 2017
16-liða úrslit í Istanbúl:
Slóvenía – Úkraína ............................... 79:55
Þýskaland – Frakkland ....................... 84:81
Finnland – Ítalía ................................... 57:70
Litháen – Grikkland............................. 64:77
Lettland – Svartfjallaland ................. 100:68
Serbía – Ungverjaland......................... 86:78
Spánn – Tyrkland................................. 73:56
Króatía – Rússland............................. 78:101
Í 8-liða úrslitum mætast:
Þýskaland – Spánn
Slóvenía – Lettland
Grikkland – Rússland
Ítalía – Serbía
KÖRFUBOLTI
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olís-deildin:
Schenker-hölllin: Haukar – ÍR................. 18
Víkin: Víkingur – Fjölnir ..................... 19.30
Úrvalsdeild kvenna, Olís-deildin:
Schenker-höllin: Haukar – Valur............. 20
Í KVÖLD!
England
Everton – Tottenham.............................. 0:3
Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn
með Everton.
Burnley – Crystal Palace........................ 1:0
Jóhann Berg Guðmundsson spilaði allan
leikinn með Burnley.
Manchester City – Liverpool .................. 5:0
Arsenal – Bournemouth .......................... 3:0
Brighton – WBA....................................... 3:1
Leicester – Chelsea.................................. 1:2
Southampton – Watford .......................... 0:2
Stoke – Manchester United .................... 2:2
Swansea – Newcastle............................... 0:1
Staða efstu liða:
Man. Utd 4 3 1 0 12:2 10
Man. City 4 3 1 0 10:2 10
Chelsea 4 3 0 1 8:5 9
Watford 4 2 2 0 7:3 8
Tottenham 4 2 1 1 7:3 7
B-deild:
Fulham – Cardiff ..................................... 1:1
Aron Einar Gunnarsson spilaði allan
leikinn með Cardiff.
Reading – Bristol City............................. 0:1
Jón Daði Böðvarsson fór af velli á 77.
mínútu hjá Reading, en Axel Óskar Andr-
ésson var ekki með.
Hörður Björgvin Magnússon. sat allan
tímann á varamannabekk Bristol City.
Aston Villa – Brentford .......................... 0:0
Birkir Bjarnason. sat allan tímann á
varamannabekk Aston Villa.
Þýskaland
Augsburg – Köln ......................................3:0
Alfreð Finnbogason spilaði allan leikinn
með Augsburg og skoraði öll þrjú mörkin.
Hertha Berlín – Werder Bremen .......... 1:1
Aron Jóhannsson var ekki í liði Werder
Bremen.
Sand – Wolfsburg .................................... 0:4
Sara Björk Gunnarsdóttir spilaði allan
leikinn með Wolfsburg.
Spánn
Real Madrid – Levante............................ 1:1
Valencia – Atlético Madrid...................... 0:0
Barcelona – Espanyol .............................. 5:0
Ítalía
Udinese – Genoa ...................................... 1:0
Emil Hallfreðsson kom inn á sem vara-
maður á 74. mínútu hjá Udinese.
Frakkland
París FC – Marseille ............................... 2:1
Fanndís Friðriksdóttir spilaði allan leik-
inn með Marseille.
Rússland
Rostov – Arsenal Tula............................. 2:2
Sverrir Ingi Ingason spilaði allan leikinn
með Rostov.
Spartak Moskva – Rubin Kazan ............ 1:0
Ragnar Sigurðsson fór af velli á 69. mín-
útu hjá Rubin Kazan.
Holland
Heerenveen – PSV .................................. 2:0
Albert Guðmundsson sat allan tímann á
varamannabekk PSV.
Excelsior – Vitesse .................................. 0:3
Ögmundur Kristinsson spilaði allan leik-
inn í marki Excelsior.
Sviss
Grasshoppers – Sion ............................... 3:2
Rúnar Már Sigurjónsson fór af velli á 78.
mínútu eftir að hafa skorað sigurmark
Grasshoppers.
Zürich – St. Gallen................................... 1:1
Guðlaugur Victor Pálsson kom inn á 73.
mínútu hjá Zürich.
Grikkland
AEK Aþena – AE Larissa ....................... 4:0
Arnór Ingvi Traustason var ekki í leik-
mannahópi AEK Aþenu.
KNATTSPYRNA
Í GRAFARVOGI
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Nýliðar Fjölnis fengu óblíðar mót-
tökur í Olís-deild kvenna í handknatt-
leik í gær þegar liðið tók á móti ÍBV í
fyrsta leik deildarinnar þetta tímabil-
ið. Það er skemmst frá því að segja að
Eyjakonur höfðu miklar yfirburði og
unnu lokum ellefu marka sigur, 28:17,
og búast má við að veturinn verði lær-
dómsríkur fyrir Grafarvogsliðið.
Eyjakonur þurftu að hafa þol-
inmæðina að vopni í upphafi leiks og
eftir að hafa náð undirtökunum jafnt
og þétt litu þær aldrei til baka. Sjö
marka forskot í hálfleik, 13:6, gaf tón-
inn og eftir hlé fengu allir leikmenn
liðsins að spreyta sig og leggja sín lóð
á vogarskálarnar til þess að landa
sigrinum.
Byrjunarlið ÍBV er gríðarlega vel
mannað og utan þess bíða ungir og
efnilegir leikmenn. Ester Ósk-
arsdóttir stýrði vörn sem gaf ekkert
eftir og tók andstæðinga sína engum
vettlingatökum, en Ester var einnig
markahæst með sjö mörk. Sandra
Erlingsdóttir er líkleg til þess að
springa út í vetur og þá verður gaman
að fylgjast með Díönu Kristínu Sig-
marsdóttur sem kom einmitt frá
Fjölni í sumar eftir að hafa verið besti
leikmaður liðsins í fyrra.
Brotthvarf hennar er gríðarlegt
áfall fyrir Fjölni enda sást vel í gær
að reynslunni er misskipt eins og bú-
ast mátti við. Lið Fjölnis er gríð-
arlega ungt, en þetta er aðeins í ann-
að sinn sem það er á meðal þeirra
bestu eftir að hafa leikið í 14 liða efstu
deild fyrir tveimur árum. Hin 19 ára
gamla Andrea Jacobsen á að bera
uppi sóknarleikinn og það er dýrt
þegar liðsfélagar hennar komast í
færi en hitta ekki á markið.
Það var líklegast til árangurs þeg-
ar Fjölniskonur höfðu þor til þess að
keyra gegn vörninni. Þær verða að
vera grimmar og óhræddar ætli þær
sér að láta að sér kveða í vetur. Það
var gaman að sjá stuðningsmennina
hvetja liðið allt til enda þó staðan
væri erfið og trommurnar þögnuðu
ekki fyrr en leikurinn var úti. Það
verður liðinu mikilvægt á tímabilinu.
Vettlingarnir
eftir í Eyjum
Nýliðarnir fengu óblíðar móttökur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áræðin Það var mikill kraftur í Söndru Erlingsdóttur í liði ÍBV gegn nýlið-
um Fjölnis í gær og hún er sannarlega líkleg til þess að springa út í vetur.
Dalhús, úrvalsdeild kvenna, Olís-
deildin, sunnudaginn 10. október
2017.
Gangur leiksins: 1:1, 2:4, 3:6, 5:8,
5:10, 6:13, 7:16, 10:19, 11:23, 12:25,
13:26, 17:28.
Mörk Fjölnis: Andrea Jacobsen 4,
Sara Margrét Brynjarsdóttir 4/4, El-
ísa Ósk Viðarsdóttir 2, Berglind
Benediktsdóttir 2, Ólöf Ásta Arn-
þórsdóttir 2, Guðrún Jenný Sigurð-
ardóttir 1, Diljá Baldursdóttir 1, Hel-
ena Ósk Kristjánsdóttir 1.
Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 8,
Saga Sif Gísladóttir 5.
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 7, Kar-
ólína Bæhrenz 7, Greta Ka-
valiauskaite 4, Sandra Erlingsdóttir
4/2, Asun Batista 3, Díana Kristín
Sigmarsdóttir 2, Ásta Björt Júli-
úsdóttir 1.
Varin skot: Guðný Jenný Ásmunds-
dóttir 11, Erla Rós Sigmarsdóttir 5.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Sigurgeir Már Sig-
urgeirsson og Ægir Sigurgeirsson.
Áhorfendur: 184.
Fjölnir – ÍBV 17:28
Landsliðsframherjinn Viðar Örn Kjartansson var allt í
öllu hjá Maccabi Tel Aviv á laugardaginn þegar liðið
vann 2:0-sigur á Bnei Sakhnin í ísraelsku úrvalsdeildinni
í knattspyrnu.
Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Selfyssing-
urinn bæði mörk Maccabi í seinni hálfleik. Það fyrra
kom á 59. mínútu og það síðara á 72. mínútu. Lokatölur
2:0 en þetta voru fyrstu mörk Viðars Arnar á nýhöfnu
keppnistímabili.
Viðar Örn spilaði allan leikinn með Maccabi, sem er
með sex stig eftir þrjá leiki.
yrkill@mbl.is
Viðar skoraði bæði mörkin
Viðar Örn
Kjartansson
Landsliðskonan Glódís Perla Viggósdóttir skoraði jöfn-
unarmark Rosengård í blálokin í jafntefli liðsins við Lin-
köping í toppslag sænsku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu í gær.
Lokatölur urðu 2:2 en mark Glódísar, sem var hennar
fyrsta fyrir félagið, kom á 88. mínútu.
Rosengård hefur 33 stig í 2. sæti en Linköping 37 stig
eftir 15 umferðir.
Landsliðskonurnar í Djurgården, þær Hallbera Guðný
Gísladóttir og Guðbjörg Gunnarsdóttir, léku báðar allan
leikinn í 1:1 jafntefli liðsins við Eskilstuna þar í bæ.
Djurgården er í 4. sæti með 23 stig. peturhreins@mbl.is
Glódís bjargaði Rosengård
Glódís Perla
Viggósdóttir