Feykir - 15.05.2014, Blaðsíða 2
2 Feykir 18/2014
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Guðrún Sif Gísladóttir – gudrun@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Ég veit að ég öfunda vorið
Það er vor í lofti, einhverjir myndu ef til vill segja sumar, enda
sumardagurinn fyrsti liðinn og þremur vikum betur. Vorið er
eitthvað svo magnaður árstími, tími bjartsýni og breytinga, nýs
upphafs og almennrar gleði. Það
var því ekki að ástæðulausu sem
Reykjavíkurskáldið Tómas Guð-
mundsson öfundaði vorið er
hann kvað svo fallega:
Ég veit ég öfunda vorið,
sem vekur þig sérhvern dag,
sem syngur þér kvæði og kveður þig,
með kossi hvert sólarlag.
Þeir sem hafa gaman af því að
vera úti í náttúrunni hljóta að
kunna að meta vorið. Gróandi, fuglasöngur, hreiðurgerð,
sauðburður, allt minnir þetta á nýtt upphaf í náttúrunni. Ef
maður er af krúttkynslóðinni er eflaust fátt notalegra en að
„knúsa lítið lamb í drasl.“
Á hlýindadegi eftir rigningarnótt í maí má nánast horfa á grasið
spretta og grænka. Svo er hægt að hengja út þvottinn og taka
svolítið af útilyktinni með sér inn.
Á vorin er líka mikil gróska í menningarlífinu. Kórar,
tónlistarhópar af ýmsu tagi, myndlistarfólk, leikfélög og fleiri
aðilar standa fyrir viðburðum og er skemmst að minnast
Sæluviku Skagfirðinga sem er sannkallaður og ljúfur vorboði.
Ýmis félög í íþróttum og menningarlífi ljúka líka vetrarstarfinu
með nokkurs konar uppskeruhátíð.
Sama má segja um nemendur á öllum skólastigum, sem fara út
í sumarið með vitnisburð fyrir nýlokið skólaár. Hvað sem í
honum stendur er mest um vert að hafa gert sitt besta og bætt
sig á einhvern hátt. Þá skiptir ekki máli hvort Lalli litli er með
lægstu einkunn eða Hávarður með þá hæstu, eina raunhæfa
viðmiðið er maður sjálfur, hvort manni hafi á einhvern hátt
farið fram í náminu.
Meira að segja Júróvisjón (sem undirrituð verður að gangast
við að hafa ekki horft á þetta árið) er vorboði. Hér ætla ég ekki
að fara út í hvort karlar í kjól eða konur með skegg séu
sigurstranglegri en aðrir, en keppnin er ekki verri vettvangur en
hver annar til að vekja athygli á fjölbreytileika mannslífsins. Svo
er einhver ferskur vorblær sem fylgir litagleði pollapönkara og
fleiri keppenda.
Því miður er það svo að vorið getur líka verið erfitt, þeim sem
búa við vanlíðan af einhverju tagi eða eiga um sárt að binda.
Það er því ástæða til að huga að meðborgurum sínum á þessum
árstíma, sem öðrum, og aftur tek ég mér orð skáldsins í munn
þar sem hann segir:
Þó get ég ei annað en glaðst við,
hvern geisla er á veg þinn skín
og óskað að söngur, ástir og rósir,
sé alla tíð saga þín.
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Íþróttamiðstöðin á Hvammstanga
Ársreikningur Sveitarfélagsins Skagastrandar
Sótt um leyfi fyrir vatnsrennibraut
Hagnaður um 66,3 milljónir kr.
Á fundi skipulags- og
umhverfisráðs Húnaþings
vestra þann 8. maí sl. var
tekin fyrir umsókn frá
Íþróttamiðstöð Húnaþings
vestra og Skúla Þórðarsyni
f.h. Húnaþings vestra um
leyfi til að setja upp
vatnsrennibraut, byggja
tæknirými fyrir
vatnsrennibrautina og
breyta girðingu vegna
þeirra framkvæmda.
Var erindið samþykkt af
skipulags- og umhverfisráði,
með fyrirvara um full-
nægjandi gögn. Verður
fundargerð ráðsins tekin
fyrir á næsta sveitarstjórnar-
fundi sem hefst í dag kl.
15:00. /KSE
Í ársreikningi Sveitar-
félagsins Skagastrandar
kemur fram að
rekstrartekjur
samstæðunnar voru 537
m.kr. en voru 497,4 m.kr.
árið 2012 og hafa hækkað
um 8% milli ára.
Rekstrarniðurstaða var
jákvæð á árinu um 66,3
m.kr. í samanburði við
134,7 m.kr. neikvæða
afkomu árið 2012.
Í síðari umræðu um
ársreikninginn á fundi hjá
sveitarstjórninni sl. mánu-
dag kom fram að rekstrar-
afkoma ársins 2012 markað-
ist af því að undir rekstur
þess árs var fært 180 m.kr.
óafturkræft framlag til
hitaveituframkvæmda en án
þess framlags hefði rekstur
ársins verið jákvæður um
45,3 milljónir. Rekstrargjöld
samstæðu námu 480,8 millj-
ónum en voru 462,5 milljónir
2012 fyrir utan umrætt 180
milljóna hitaveituframlag.
Rekstrarafkoma hefur batn-
að milli ára um 26,4 milljónir
að teknu tilliti til kostnaðar
vegna hitaveituframkvæmda.
Rekstrarniðurstaða sam-
stæðunnar er 35,5 milljónum
hagstæðari en fjárhagsáætlun
með viðaukum gerði ráð
fyrir en áætluð rekstrar-
afkoma ársins var 30,8 m.kr.
Eigið fé samstæðu í árslok
2013 nam 1.209 m.kr. sam-
kvæmt efnahagsreikningi.
Eiginfjárhlutfall samstæðu
var 72% í lok árs 2013 en var
71,4% árið 2012. Veltufjár-
hlutfall samstæðunnar nam
8,65 en var 9.08 í árslok 2012.
Samkvæmt yfirliti um sjóð-
streymi var veltufé frá rekstri
samstæðunnar 75,3 m.kr. og
handbært fé frá rekstri 73,4
m.kr. Handbært fé samstæð-
unnar nam 520,8 m.kr. í
árslok en var 490,1 m.kr. í
árslok 2012. Sveitarstjórn
samþykkti ársreikning og
áritaði að lokinni umræðu. /GSG
Framboðslisti Skagastrandar-
listans fullskipaður
Steindór Haraldsson skipar
1. sæti Ð-listans – Við öll
Fullskipaður listi Skagastrandarlistans , H-lista, fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar sem
fara fram 31. maí nk. var samþykktur á fundi þann 7. maí sl. Adolf H. Berndsen skipar
fyrsta sætið, í öðru sæti er Halldór G. Ólafsson og í því þriðja er Róbert Kristjánsson.
Í fréttatilkynningu frá Ð-listanum á Skagaströnd segir að um sé að ræða hóp fólks sem vill
tryggja öllum íbúum Skagastrandar raunverulegan valkost á því að nýta lýðræðislegan rétt
sinn til að ganga til kosninga í vor.
„Ljóst má vera að framtíð bæjarins er í höndum bæjarbúa allra og því er áhersla framboðsins
að samfélagið skuli byggja á algeru gagnsæi stjórnsýslunnar, góðu siðferði og stóraukinni
þátttöku íbúa Skagastrandar í stjórnsýslu sveitafélagsins,“ segir í tilkynningunni.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2014
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2014
Listinn er eftirfarandi:
1. Adolf H. Berndsen framkv.stjóri
2. Halldór G. Ólafsson framkv.stjóri
3. Róbert Kristjánsson verslunarstjóri
4. Gunnar S. Halldórsson matreiðslumaður
5. Jón Ólafur Sigurjónsson iðnaðarmaður
6. Péturína L. Jakobsdóttir skrifstofustjóri
7. Árný S. Gísladóttir fulltrúi
8. Hrefna D. Þorsteinsdóttir stuðningsfulltrúi
9. Sigurlaug Lára Ingimundardóttir þjónustufulltrúi
10. Hafdís H. Ásgeirsdóttir hársnyrtir
Listinn er eftirfarandi:
1. Steindór Haraldsson, framleiðslustjóri
2. Inga Rós Sævarsdóttir, fulltrúi
3. Kristín Björk Leifsdóttir, háskólanemi
4. Guðlaug Grétarsdóttir, leikskólakennari
5. Eygló Amelía Valdimarsdóttir, snyrtifræðingur
6. Súsanna Þórhallsdóttir, húsmóðir
7. Kristín Birna Guðmundsdóttir, fulltrúi
8. Þröstur Líndal, bóndi
9. Sigríður Þórunn Gestsdóttir, húsmóðir.
10. Hallbjörn Björnsson, rafvirkjameistari