Feykir - 15.05.2014, Qupperneq 3
18/2014 Feykir 3
Samband skagfirskra kvenna,
SSK. hélt sinn árlega
aðalfund laugardaginn 10.
maí sl. í félagsheimili
Rípurhrepps í Hegranesi.
Konur í kvenfélagi
Rípurhrepps voru gestgjafar
að þessu sinni og tóku þær
að vanda höfðinglega á móti
fundargestum. Í frétta-
tilkynningu kemur fram að vel
var mætt og sátu konur úr
flestum kvenfélögum í
Skagafirði fundinn en SSK.
samanstendur af ellefu
kvenfélögum, sem í eru um
240 konur.
Fyrir utan hefðbundin aðal-
fundarstörf kom Unnar Ingvars-
son héraðsskjalavörður og flutti
fróðlegt erindi um hlutverk
kvenna í sögunni og Valdís
Óskarsdóttir frá Brekku var með
pistil um 19. júní nefndina
sálugu. Í lokin fór fram
afhending ágóða af Vinnuvöku,
þ.e. basar og kaffisölu kven-
félaganna í Skagafirði sem
haldin var í Varmahlíðarskóla 9.
mars sl. „Að þessu sinni rann
ágóðinn 360 þúsund krónur til
Björgunarsveitanna í Skagafirði.
Fulltrúar Björgunarsveitanna
þriggja í Skagafirði mættu á
fundinn og tóku á móti
ágóðanum sem vonandi og án
efa kemur í góðar þarfir.
„SSK. sendir Skagfirðingum
öllum ljúfar sumarkveðjur og
vill þakka öllum þeim sem lögðu
sitt að mörkum, bæði með því
að gefa handverk, sultur og
bakkelsi á basarinn svo og þeirra
sem komu og fengu sér kaffi og
með því og styrktu þar með
Björgunarsveitirnar í Skaga-
firði,“ segir loks í tilkynningunni.
/BÞ
Ferðasumarið er að hefjast
í Húnaþingi vestra sem og
annars staðar á
Norðurlandi vestra. Frá 1.
maí hefur Selasetrið á
Hvammstanga verið opið
alla virka daga og frá og
með deginum í dag verður
opið frá klukkan 9-19 alla
daga vikunnar.
Á vefnum VisitHunathing.is
er sagt frá því að þessa dagana
sé verið að gera klárt fyrir
komandi ferðasumar með
breytingu á afgreiðslu og upp-
lýsingamiðstöð og bættri nýt-
ingu í verslunarrými. Þá er
nýtt starfsfólk tekið til starfa í
afgreiðslu safnsins. Þá hefur
Hlaðan kaffihús opnað með
sumaropnunartíma frá 9-21
alla daga nema sunnudaga en
þá opnar kl 10. Það er því bjart
sumar framundan við höfnina
á Hvammstanga.
Tjaldsvæðið í Kirkjuhvammi
á Hvammstanga var opnað um
síðustu helgi. Tjaldsvæðið
stendur í skjólgóðum hvammi
ofan við Hvammstanga og þar
er að finna úrvals þjónustu
með góðu þjónustuhúsi og
þjónustu fyrir tjald- og
húsvagna. Góðar gönguleiðir
eru fyrir ofan svæðið í fallegri
náttúru. /KSE
Aðalfundur Sambands skagfirskra kvenna
Húnaþing vestra
Gáfu björgunarsveitum
ágóðann af Vinnuvöku
Ferðasumarið að byrja
Sauðárkróksvöllur. Mynd: Ómar Bragi.
Þessir ferðalangar gistu á Gistiheimili Hönnu Siggu og nutu svo leiðsagnar á kaffisopa á Byggðasafninu
á Reykjum í Hrútafirði á sumardaginn fyrsta. Mynd: fésbókarsíða Byggðasafnsins.
FERÐAFÉLAG SKAGFIRÐINGA
FERÐAÁÆTLUN 2014
21. júní Hefðbundin Jónsmessuganga í Glerhallarvík.
Þátttakendur aka á eigin bílum út að Reykjum.
Gengið af stað kl. 21. Grettiskaffi opið. Fararstjóri Hjalti Pálsson.
5. júlí Gönguferð á Kaldbak í Sæmundarhlíð.
Farið á einkabílum fram að Sólheimum í Sæmundarhlíð og gengið
þaðan. Farið frá Faxatorgi kl. 10. Fararstjóri Trond Olsen.
9. ágúst Gönguferð suður Laxárdal í Trölla. Gengið til byggða um
Kálfárdal. Þátttakendur koma sér sjálfir að Illugastöðum á Laxárdal.
Um 6-7 klst. göngutími. Brottför frá Faxatorgi kl. 9.
Fararstjóri Ágúst Guðmundsson.
30. ágúst Bílferð í Ingólfsskála. Farið á einkabílum sem stjórn FS leggur til
frá Faxatorgi kl. 9. Gist í Ingólfsskála. Komið heim á sunnudegi.
Ferðirnar verða nánar auglýstar síðar.
Stjórn F.S.
rsssssssss
Vrssússs Bsðssssss
ssssssss ssssss sysssss ús s vinbudin.is
sssssssssssssss ss ss ss sss ssssssssss
ssssss sssssssssss sssss sssssss ssssssssss
sssssssssssssssssssss s ssssssssss
rsssss ÁTVR ss ss ssss ssssússsssssss rðsssssssyssssrss ss rssss sysss sssssssssssss ssyssss
Fyssssrsss ssss ss ssssssssssssss ss sssssss ss sssssssssss rss sss rðssssss ss ssssssss
ssssssssss ss ssssssð rsssssss ss ssyssss
Helstu verkefni og ábyrgð
ððssssssð ssssssssssð ssssssssss
s sðsss ss sðssssðssss
Hæfniskröfur
s rss rðssssssssss
s rsssssrss ss ssssssss
s sssrsðssss rsss ss rsss sss ss sss sssss
s rsssssðssss ss sssfiss
Vrssússs Bsðssssss sssss ss ssss ssssssssss r ssssssflsysssssss
rssss Vrssússsss sss LIPsRÐ s ðsKKIsr s ÁBYRrÐs
Rssssssss r ssðsss rðs syssssrssss ssss ssss sss
ss rsssss ssssss