Feykir - 05.06.2014, Page 2
2 Feykir 21/2014
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Guðrún Sif Gísladóttir – gudrun@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Kosninga“vaka“
Mér er þannig farið að fátt virkar meira svæfandi á mig en
leiðinlegt sjónvarpsefni. Það fór því svo að kosningavaka RÚV,
sem oft hefur haldið mér á tánum fram á nótt, virkaði
einstaklega svæfandi á mig og
langt síðan ég hef vaknað jafn
endurnærð eftir góðan
nætursvefn. Ber ef til vill að
hrósa RÚV fyrir það.
Ég hygg þó að sá hafi ekki
verið tilgangur með kosninga-
vöku RÚV, að svæfa þreyttar
húsmæður vítt og breitt um
landið. En þá erum við komin
að kjarna málsins, nefnilega vítt
og breitt um landið. Ég var
tilbúin með poppið og snakkið
og beið spennt eftir dagskránni. En viti menn, löngu áður en
útsendingin hófst fóru tölur að berast úr smærri sveitarfélögum
sem ég hafði áhuga á að fylgjast með, svo sem Árneshreppi,
Strandabyggð og Skorradalshreppi. Það er kannski rosalega
lúðalegt að hafa áhuga á litlum sveitarfélögum þar sem boðið
er upp á persónukjör eða lista sem ekki tilheyra hinum
margumrædda fjórflokki, enda kom það í ljós að kosningavakt
RÚV hafði takmarkaðan áhuga á þeim.
Þarna hefðu hinir ýmsu fréttamenn sem hafa verið til
fyrirmyndar hvað varðandi fréttaflutning og dagskrárgerð af
landsbyggðinni mátt dreifa sér á kjördæmin og flytja okkur
fyrstu tölur t.d. úr Skagafirði. Leita hefði mátt til sérfræðinga í
hverjum landshluta og fara yfir helstu breytingar. Þá hefði að
meinalausu mátt birta nöfn þeirra sem náðu kjöri í hverju
sveitarfélagi fyrir sig.
Nú kann að vera að þetta sé allt of flókið í framkvæmd, að
minnsta kosti virtist tæknin „eitthvað vera að stríða okkur“ á
hinum annars ágæta kosningarvef RÚV sem ég hafði mikið
notað í aðdraganda kosninga, enda voru landsbyggðinni þar
gerð ágæt skil. Því skeði það í fyrsta sinn í áraraðir að maður
fór inn á textavarpið og skal ég aldrei framar gera gys að því
tækniundri.
Ég trúi því ekki að óreyndu að ég sé eina manneskjan fyrir
ofan Elliðaár sem hefur áhuga á landsbyggðinni og því sem
gerist í sveitarstjórnarmálum þar og öðrum ráðhúsum en
þessu við Tjörnina. Að mínu mati voru það vinir mínir á
fésbókinni sem héldu einhverri spennu í kosningarvaktinni
því sumar tölur var búið að birta á „veggjum“ þeirra áður en
þær var að finna í öðrum miðlum.
En áhugaleysið hefur fleiri birtingarmyndir, og er það með
ólíkindum hversu dræm kjörsókn er orðin og fer versnandi. Í
Hafnarfirði var kjörsóknin til að mynda 60,5%. Í Skagafirði
kusu 76,7%, sem er þó betri kjörsókn en í tólf stærstu
sveitarfélögum landsins.
Kristín Sigurrós Einarsdóttir,
útsofin eftir kosningavöku.
Minntust formæðra sinna
Mæðgin komu með viðhöfn á kjörstað
Athygli vakti þegar Ásta Ólöf
Jónsdóttir á Sauðárkróki,
ásamt syni sínum Jóni Ægi
Ingólfssyni, mætti ríðandi á
kjörstað. Bæði voru þau
uppábúin í íslenskum þjóð-
búningum og Ásta reið í söðli.
„Á síðasta ári mætti ég á
kjörstað uppábúin í þjóðbúning.
Þá fékk ég þá hugmynd að næst
myndi ég fara ríðandi í söðli á
kjörstað. Þetta geri ég af virðingu
við formæður okkar sem
börðust fyrir því að konur fengju
kosningarétt en það eru ennþá
innan við hundrað ár síðan
konur fengu fullan kosningarétt
og kjörgengi til alþingis til jafns
við karlmenn,“ sagði Ásta
aðspurð um þetta uppátæki sitt.
Feykir fékk leyfi til að birta
mynd sem tekin var af Ástu og
Jón Ægi við þetta tækifæri og
fylgdi myndinni eftirfarandi
hugleiðing hennar:
Tími er afstætt hugtak. Manni
finnst tíminn fljúga áfram en
þegar maður horfir á söguna eru
hundrað ár ekki svo langur tími.
Það eru t.d. innan við hundrað ár
síðan konur og vinnuhjú fengu
full pólitísk réttindi við 25 ára
aldur en það mun hafa verið
1920. Í virðingarskyni við for-
mæður okkar sem ruddu braut-
ina fórum við mæðgin Ásta Ólöf
Jónsdóttir og Jón Ægir Ingólfsson
með viðhöfn á kjörstað í dag.
Fólki er hollt að hugleiða það að
kosningarétturinn er ekkert svo
gamall í sögulegu samhengi. Við
erum heppin því við höfum
þennan rétt óskertan. Það er
ennþá víða þannig að þessi réttur
er fótum troðinn þó hann eigi að
heita við lýði. Við skulum því
bera virðingu fyrir kosningarétt-
inum og mæta á kjörstað. Í
kjörklefanum þarftu bara að
taka tillit til þinnar eigin sam-
visku. /KSE
Jón Ægir og Ásta Ólöf mættu prúðbúin á kjörstað.
Forðað frá skúffum og glatkistum
USAH gefur út 54. árgang Húnavöku
Ungmennasamband Austur-
Húnvetninga hefur gefið út
ritið Húnavöku og er það 54.
árgangur ritsins sem nú lítur
dagsins ljós. Ritið var kynnt í
sameiginlegu útgáfuhófi
vegna Húnavöku og ferða-
bæklingsins Milli fjalls og
fjöru í Eyvindarstofu á
uppstigningardag.
Að venju er Húnavaka tæpar
300 blaðsíður og efnið fjölbreytt.
Fremst í ritinu er viðtal við
hjónin Gunnar Ríkharðsson og
Helgu Thoroddsen á Þingeyrum
og María Markovic segir frá dvöl
sinni á Kyrrahafseyjunni Samoa.
Auk þess eru í ritinu sögur af
hrakningum á sjó og landi,
kveðskapur, smásögur og fleira.
Þá er fjallað um minnisstæða
Húnvetninga og þá sem látist
hafa á árinu í sýslunni. Að lokum
er viðamikill kafli með fréttum
síðasta árs.
Í máli Ingibergs Guðmunds-
sonar, ritstjóra, kom fram að
Húnavaka væri mikilvægt
framlag til sögu héraðsins fyrr
og síðar og hefði sem slíkt
verulegt heimildagildi. „Þar eru
upplýsingar um mannlíf og
þjóðhætti, störf, vinnubrögð og
fleira. Ritið hefur líka verið
vettvangur fyrir heimamenn til
að koma margs konar efni á
framfæri, sem annars hefði í
mörgum tilvikum legið í láginni
eða orðið skúffum og glatkistum
að bráð.
Milli fjalls og fjöru – Nýr
ferðabæklingur í A-Hún
Í útgáfuhófinu var einnig
kynntur veglegur ferðabækling-
ur sem Ferðamálafélag Austur-
Húnavatnssýslu gefur út og ber
hann heitið Milli fjalls og fjöru.
Bæklingurinn er 44 síður í
A5 broti og allur litprentaður,
auk þess sem þjónustukort er í
miðju hans. Allur texti er á
íslensku, ensku og þýsku en um
þýðingar sáu þær Cathrine
Chambers og Katharina
Schneider.
Í ritstjórn sátu þau Valgarður
Hilmarsson, Katharina Schneid-
er, Ingibergur Guðmundsson og
G. Ágúst Pétursson, sem
jafnframt var ritstjóri. Fjöl-
margir lögðu til myndir.
Bæklingurinn er allur hinn
veglegasti, en hann er hannaður
og uppsettur af Nýprent á
Sauðárkróki. /KSE
Valgarður Hilmarsson kynnir nýja ferðabæklinginn.
Gestir í útgáfuhófinu.