Feykir - 05.06.2014, Síða 3
21/2014 Feykir 3
FNV slitið í 35. sinn
Yfir 2200 nemendur brautskráðir frá upphafi
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra var slitið við hátíð-
lega athöfn í íþróttahúsinu
á Sauðárkróki í 35. sinn
laugardaginn 24. maí, að
viðstöddu fjölmenni. Alls
brautskráðust 53 nemend-
ur. Þar með er tala braut-
skráðra nemenda frá
skólanum komin í 2201.
Í máli skólameistara kom m.a.
fram hve mikilvægu hlutverki
skólinn gegnir fyrir menntun
á framhaldsskólastigi á
Norðurlandi vestra. Á síðast-
liðnu skólaári voru t.d. 38%
nemenda ekki á hefð-
bundnum framhaldsskóla-
aldri, þ.e. 16 til 20 ára og elsti
nemandi skólans var fæddur
árið 1943.
Skólinn hefur átt farsælt
samstarf við atvinnulífið og
sveitarfélög og leitast við að
bjóða upp á námsbrautir sem
unnar eru í samráði við
hagsmunaaðila í atvinnulífinu
auk þess að jafna framboð á
kynbundnu námsvali. Má þar
nefna nám í hársnyrtiiðn,
kvikmyndanám, nám á
nýsköpunar- og tæknibraut,
nám í slátraraiðn, nám á
fisktæknibraut og nám í
plastiðnum. Að auki er skólinn
aðili að Fjarmenntaskólanum
þar sem boðið er upp á
fjarnám og lotubundið nám til
að auðvelda nemendum að
stunda nám með vinnu.
Að lokum minntist skóla-
meistari tveggja nemenda
skólans, þeirra Önnu Jónu
Sigurbjörnsdóttur og Skarp-
héðins Andra Kristjánssonar,
sem létust af völdum bílslyss
sem átti sér stað þann 12.
janúar sl.
Í vetrarannál skólans, sem
Ásbjörn Karlsson, áfangastjóri,
flutti kom m.a. fram að
nemendur á haustönn voru
488, en 496 á vorönn. Alls hafa
550 nemendur sótt skólann á
þessu skólaári. Nemendur í
fjarnámi voru 107. Hér er um
fjölgun að ræða frá fyrri árum.
Ánægjulegt er að brottfall hefur
minnkað úr 9,2% fyrir fimm
árum síðan í 4,6% í ár. Meðal
nýjunga má nefna að dreifnámi
var komið á fót á Hólmavík og
Blönduósi til viðbótar við
Hvammstanga.
Að loknum vetrarannál fór
fram brautskráning og afhend-
ing viðurkenninga, sem var í
höndum skólameistara og
deildarstjóra skólans. Alls
brautskráðust 53 nemendur frá
skólanum. Þar af 31 nemandi
með stúdentspróf, sex nemend-
ur úr húsasmíði og bygginga-
greinum, sjö nemendur úr
rafiðna- og bílgreinadeild, þrír
nemendur af sjúkraliðabraut,
einn nemandi af starfsbraut og
fimm nemendur úr vélvirkjun
og vélstjórn.
Þórdís Þórarinsdóttir flutti
ávarp brautskráðra nemenda.
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
flutti ávarp 20 ára stúdenta og
Hrefna Björg Guðmundsdóttir
flutti ávarp 30 ára stúdenta. Að
lokum flutti skólameistari
nemendum heilræði fyrir lífið
og óskaði þeim velfarnaðar.
Eftirtaldir nemendur fengu
viðurkenningar:
Gústav Ferdinand Bentsson hlaut
viðurkenningu fyrir framúrskarandi
námsárangur í sérgreinum húsasmíða.
Jón Helgi Sigurgeirsson hlaut
viðurkenningu fyrir framúrskarandi
námsárangur í sérgreinum vélstjórnar-
brautar A.
Karen Helga R. Steinsdóttir hlaut
eftirtaldar viðurkenningar:
1. Fyrir framúrskarandi námsárangur í
sérgreinum náttúrufræðibrautar á
stúdentsprófi.
2. Frá Háskólanum í Reykjavík fyrir
framúrskarandi námsárangur í
raungreinum á stúdentsprófi
náttúrufræðibrautar.
3. Frá danska sendiráðinu fyrir
framúrskarandi námsárangur í
dönsku á stúdentsprófi.
4. Frá Þýska sendiráðinu fyrir
framúrskarandi námsárangur í
þýsku á stúdentsprófi.
5. Fyrir framúrskarandi námsárangur í
íslensku á stúdentsprófi.
Sigríður Eygló Unnarsdóttir hlaut
eftirtaldar viðurkenningar:
1. Fyrir framúrskarandi alhliða
námsárangur á stúdentsprófi
náttúrufræðibrautar.
2. Frá Hugvísindasviði Háskóla
Íslands fyrir framúrskarandi
námsárangur í erlendum
tungumálum á stúdentsprófi.
3. Fyrir framúrskarandi námsárangur í
íslensku á stúdentsprófi.
Stella Jórunn Levy fékk Nýja testa-
mentið að gjöf frá Gídeonfélaginu.
Þórdís Þórarinsdóttir hlaut viðurkenn-
ingar fyrir framúrskarandi námsárangur
í sérgreinum náttúrufræðibrautar á
stúdentsprófi og frá Efnafræðifélagi
Íslands fyrir framúrskarandi náms-
árangur í efnafræði á stúdentsprófi
náttúrufræðibrautar.
/fnv.is
Frá brautskráningu FNV 2014. Mynd: Pétur Ingi
Karen Helga R. Steinsdóttir og Þorkell V. Þorsteinsson aðstoðarskólameistari.
Atvinnuráðgjafi
með sérhæfingu
á sviði ferðaþjónustu
SSNV óskar eftir að ráða fjölhæfan og metnaðarfullan
einstakling í starf atvinnuráðgjafa á sviði
ferðaþjónustu.
Starfsstöð atvinnuráðgjafans verður á Norðurlandi vestra og
búseta þar er skilyrði. Um er að ræða ráðningu til tveggja ára
með möguleika á framlengingu. Atvinnuráðgjafinn starfar
náið með fagráði ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra og
starfsfólki SSNV.
Starfssvið:
• Stuðningur við framkvæmd og útfærslu samstarfssamnings um
ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra.
• Samstarf með fyrirtækjum, einstaklingum og sveitarfélögum að
atvinnu- og vöruþróun, markaðsstarfi, viðburðum og fleiru á vettvangi
ferðaþjónustu á svæðinu.
• Öflun upplýsinga og tilboða, skýrslugerð, aðstoð við gerð
kynningarefnis og umsókna, gerð áætlana og önnur ýmis konar
skipulags- og skjalavinna.
• Undirbúningur nýrra verkefna og ýmis önnur störf sem tengjast
starfsemi SSNV og ferðaþjónustu í landshlutanum.
Menntun og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Menntun á sviði ferðaþjónustu er
mikill kostur en ekki skilyrði.
• Hagnýt starfsreynsla, s.s. á sviði ferðaþjónustu, verkefnastjórnunar,
rekstrar- og vöruþróunar.
• Þekking, innsæi og áhugi á ferðaþjónustu, atvinnu- og byggðaþróun.
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að leiða samstarf og
verkefni með öflugum og farsælum hætti.
• Færni í ræðu og riti á íslensku og ensku, kunnátta í fleiri tungumálum er
kostur.
• Frumkvæði og metnaður.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf þar sem skapandi og
duglegur einstaklingur getur haft mótandi áhrif á starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 19. júní 2014.
Nánari upplýsingar veitir Katrín María Andrésdóttir
framkvæmdastjóri SSNV, sími 455 2510, netfang: kata@ssnv.is.
Vinsamlegast sendið umsóknir ásamt ferilskrá í pósti til Samtaka sveitarfélaga
á Norðurlandi vestra, b.t. Katrínar Maríu Andrésdóttur, Höfðabraut 6, 530
Hvammstanga merktar: Atvinnuráðgjafi – Ferðaþjónusta
Lucas 2 kominn í hús
Söfnun á sjálfvirku hjartahnoðtæki
Sjúkraflutningamenn á
Hvammstanga fóru í byrjun
maí af stað með söfnun fyrir
sjálfvirku hjartahnoðtæki
sem nefnist Lucas 2.
Söfnunin gekk glimrandi vel
að sögn Gunnars Sveinssonar
sjúkraflutningamanns og er
Lucas 2 nú kominn í hús.
Í samtali við Feyki í byrjun
maí sagði Gunnar frá því að
Lucas 2 muni hafa mikla
þýðingu fyrir samfélagið þar
sem fáir koma að endurlífgun
þegar hún á sér stað. Lucas 2
kemur alveg í stað fyrir þann
sem hnoðar og viðheldur
fullkomnu hnoði í langan tíma
svo lengi sem hann hefur
rafmagn, sem er mun lengur
heldur en venjulegur maður
hefði úthald til.
-Við viljum koma á framfæri
miklu þakklæti til þeirra ein-
staklinga, fyrirtækja og stofn-
ana sem styrktu verkefnið, þau
eiga heiður skilið fyrir að koma
svona sterkt að söfnuninni,
segir Gunnar. /GSG