Feykir - 05.06.2014, Side 4
4 Feykir 21/2014
Sveitarstjórnarkosningar fóru fram síðastliðinn laugardag. Af sjö sveitarfélögum á Norðurlandi
vestra voru listakosningar í fimm þeirra og óhlutbundnar í tveimur. Við birtum hér viðbrögð
oddvita þeirra lista sem hlutu meirihluta í þremur af stærstu sveitarfélögunum, en á forsíðu er
rætt við oddvita framsóknarmanna í Skagafirði um kosningasigur þeirra. Þá eru hér til hliðar
úrslit kosninga í öllum sjö sveitarfélögunum á Norðurlandi vestra.
Aflafréttir vikuna 25.-31. maí
Rúm 230 tonn að landi
Í viku 22 var landað tæpum 180 tonnum á
Sauðárkróki, tæpum 10 tonnum á Hofsósi, 30
tonnum á Skagaströnd og tæpum 14 tonnum á
Hvammstanga. /KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Sæunn HU Handfæri 1.524
Alls á Skagaströnd: 30.403
Aggi SI-8 Handfæri 278
Ásmundur SK-123 Landb.lína 6.032
Hafbjörg SK-58 Handfæri 1.476
Skáley SK-32 Handfæri 1.945
Alls á Hofsósi 9.731
Fannar SK-11 Handfæri 1.616
Gammur II SK-120 Grásleppunet 4.453
Klakkur SK-5 Botnvarpa 138.656
Kristín SK-77 Handfæri 1.969
Maró SK-33 Handfæri 859
Nona SK-141 Handfæri 1.599
Nökkvi ÞH-27 Rækjuvarpa 8.831
Óskar SK-13 Handfæri 753
Röst SK-17 Rækjuvarpa 14.009
Séra Árni SK-101 Grásleppunet 3.856
Steini G SK-14 Grásleppunet 1.052
Vinur SK-22 Handfæri 368
Ösp SK-135 Handfæri 1.440
Alls á Sauðárkróki 179.461
Brák HU-8 Handfæri 1.079
Harpa HU-4 Dragnót 12.597
Óli HU-115 Handfæri 83
Alls á Hvammstanga 13.759
Arney HU-36 Handfæri 1.367
Ásdís ÍS-2 Handfæri 1.481
Bergur Sterki HU-17 Landb.lína 1.205
Bjarmi HU-33 Handfæri 1.193
Blær HU-77 Landb.lína 1.288
Bogga í Vík Handfæri 1.343
Dagrún HU-121 Grásleppunet 1.535
Elín ÞH-82 Handfæri 1.382
Fjöður GK-90 Handfæri 658
Garpur HU-58 Handfæri 1.620
Greifinn SK-19 Handfæri 1.712
Guðrún Ragna BA-162 Handfæri 2.017
Lukka Handfæri 1.014
María HU-46 Handfæri 478
Nonni HU-9 Handfæri 1.765
Ólafur Magn. HU-54 Grásleppunet 3.116
Rún EA-351 Handfæri 1.668
Snorri ST-24 Landb.lína 707
Sveinbjörg HU-49 Handfæri 1.980
Sæborg HU-80 Handfæri 1.350
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2014x 14
Úrslit kosninga í sveitarfélögunum
Norðurland vestra
SIGURÐUR HANSENKLAUSUR
M.E.H. 4
Varúðin og óttinn, geta haldist í hendur
því þeirra er ekki óttaleysið.
Að ganga á móti óttanum
er að sigra hann með þekkingunni
því þekkingin og varúðin
eru eyðingaröfl óttans
og óttinn leysir ekki vandamálin
en varúðin kemur í veg fyrir þau.
SVEITARFÉLAG % fylgi kjörnir fulltrúar
Sveitarfélagið Skagafjörður
Framsóknarflokkur (B) 45,4 5
Sjálfstæðisflokkur (D) 26,7 2
VG og óháðir (V) 15,1 1
Skagafjarðarlistinn (K) 12,8 1
Húnaþing vestra
Nýtt afl í Húnaþing v (N) 59,2 4
Framsóknarflokkur (B) 40,8 3
Blönduósbær
Listi Blönduósbæjar (L) 51,0 4
Umbótasinnaðir Blönduósingar (J) 49,0 3
Sveitarfélagið Skagaströnd
Skagastrandarlistinn (H) 65,0 4
Við öll á Skagaströnd (Ð) 35,0 3
Húnavatnshreppur
Listi framtíðar í Húnavatnshreppi (A) 61,9 4
Nýtt afl í Húnavatnshreppi (E) 38,1 3
Skagaströnd
Skagastrandarlistinn með
mesta fylgið frá upphafi
„Auðvitað erum við svekkt að það vantaði aðeins að sex atkvæði
færu af Ð lista yfir til okkar til að fá Gunna okkar inn. Eftir stendur
að við fengum 65% atkvæða – tveir af hverjum þremur bæjarbúum
fylgdu okkur,“ sagði Adolf H Berndsen, oddviti Skagastrandar-
listans, en listinn fékk 65% atkvæða á móti 35% sem Ð-listinn
fékk. „Til upprifjunar þá fékk Skagastrandarlistinn 63.7% árið
1994 þegar hann bauð fyrst fram. Núna fengum við 65% en aldrei
fyrr hefur listinn fengið meiri stuðning. Þetta er afrek – þökk sé
flottum lista og frábærum stuðningsmönnum,“ sagði Adolf
ennfremur.
Blönduós
Jákvæð kosningabarátta og
lítill málefnaágreiningur
„Við hjá L-listanum í Blönduósbæ teljum að niðurstöður kosn-
inganna megi þakka samstarfi og samstöðu fólksins á listanum og
þeirra sem unnu fyrir framboðið. Þá hafði áhrif að kosninga-
baráttan var byggð á jákvæðni og trú á okkar samfélag og
möguleika á eflingu þess,“ sagði Valgarður Hilmarsson, oddviti
L-listans, þegar Feykir innti hann eftir viðbrögðum við úrslitum
kosninga þar í bæ. Sagðist hann gera ráð fyrir að samið yrði við
Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóra um áframhaldandi starf.
„Ekki var mikill málefnaágreiningur milli framboðanna og
þess vegna frekar tekist á um hverjum ætti að fela stjórn sveitar-
félagsins næsta kjörtímabil,“ sagði Valgarður ennfremur, og vildi
koma á framfæri þakklæti til kjósenda listans fyrir stuðninginn.
Akrahreppur
óhlutbundin kosning
Agnar Halldór Gunnarsson
Eiríkur Skarphéðinsson
Jón Sigurðsson
Þorkell Gíslason
Drífa Árnadóttir
Skagabyggð
óhlutbundin kosning
Vignir Ásmundur Sveinsson
Helga Björg Ingimarsdóttir
Magnús B. Guðmannsson
Magnús Jóhann Björnsson
Dagný Rósa Úlfarsdóttir
Húnaþing vestra
Spennandi tímar framundan
N - listinn í Húnaþingi vestra
fékk í kosningunum á laugar-
daginn hreinan meirihluta
með um 60% atkvæða og fjóra
menn í sveitarstjórn. „Við erum
afar stolt af því skýra umboði
sem íbúar sveitarfélagsins veita
okkur með þessari góðu
kosningu. Við þökkum þennan
árangur fyrst og síðast þeim
sterka lista sem við tefldum
fram, en á listanum er valinn
maður í hverju rúmi, fólk með
víðtæka reynslu og bakgrunn
sem nýtist vel við sveitar-
stjórnarstörf,“ sagði Unnur
Valborg Hilmarsdóttir, oddviti
listans, í samtali við Feyki í
vikunni. „Framundan eru
spennandi tímar við að hrinda
stefnumálum okkar í fram-
kvæmd í þágu íbúanna. Við
hlökkum til þess verkefnis og
erum þakklát fyrir það traust
sem okkur er sýnt,“ sagði
Unnur ennfremur.