Feykir - 05.06.2014, Page 5
21/2014 Feykir 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR www.feykir.is/ithrottir
Bríet Lilja og Linda Þórdís
Norðurlandameistarar
Körfubolti U16
Bríet Lilja Sigurðardóttir og
Linda Þórdís Róbertsdóttir úr
Tindastóli urðu Norðurlanda-
meistarar í körfuknattleik
með íslenska U16 landsliðinu
eftir 52:37 sigur á Svíþjóð
síðastliðinn laugardag.
Íslenska stúlknalandsliðið
sigraði alla leiki sína á mótinu
sem fram fór í Solna í Svíþjóð í
síðustu viku. Árangur stúlkn-
anna er glæsilegur en þetta er
fyrsti Norðurlandameistara-
titill Íslands í kvennaflokki
síðan árið 2004. /GSG
Byrja af fullum krafti í haust
Júdódeild Tindastóls endurvakin eftir 10 ára hlé
Júdódeild Tindstóls hefur hægt og bítandi
verið að fara aftur af stað eftir 10 ára hlé en
hér áður fór fram öflugt starf innan
deildarinnar. Blaðamaður Feykis leit inn á
æfingu hjá júdódeildinni og fékk að fylgjast
með íþróttagörpunum takast á.
„Við erum að endurvekja deildina sem hefur
legið í dvala frá árinu 2004,“ segir Jón Axel
Hansson formaður júdódeildar Tindastóls en
hann tók aftur við hlutverki formanns eftir 10
ára hlé. „Deildin lagðist af þegar að kennari
okkar, Antje Müller, fór héðan en þá minnkaði
áhuginn vegna skorts á menntuðum kennur-
um,“ útskýrir Jón Axel. „Núverandi þjálfari
okkar Einar Örn Hreinsson hefur svo verið að
koma þessu aftur af stað í gegnum Karl
Lúðvíksson, sem stofnaði deildina fyrir um 20
árum og hefur verið með námskeið í Varmahlíð
öðru hvoru.“
Einar Örn Hreinsson segist hafa æft júdó frá
því hann var polli, fyrst á Egilsstöðum hjá
Kjarna, svo æfði hann í nokkur ár hjá Ármanni
í Reykjavík og um stund hjá Júdófélagi
Reykjavíkur. Nú síðast hefur hann verið við
æfingar hjá Draupni á Akureyri og sækir
æfingar þangað einu sinni í viku. „Ég flutti
hingað í bæinn. Ég kann eitthvað í júdó, hér
voru áhugasamir gamlir júdógaurar sem vildu
halda áfram og mig langaði til að þjálfa,“ segir
Einar af hógværð um það hvernig júdóstarfið
hófst á ný. „Við byrjuðum að æfa í Varmahlíð í
febrúar á þessu ári. Nú höfum við fært okkur
hingað í íþróttahúsið í gamla barnaskólanum og
æfum hér á miðvikudögum kl. 19:30 – 21:00.
Við ætlum svo að starta klúbbi fyrir alvöru
næsta haust og þá vonandi með krökkum.“
Fram til þessa hefur hópurinn verið að æfa einu
sinni í viku en Einar segir Júdódeild Tindastóls
stefna að því að bjóða upp á æfingar allavega
tvisvar og jafnvel þrisvar í viku næsta vetur, það
eigi eftir að skírast betur með tímanum.
Safna fyrir dýnum
Júdódeild Tindastóls safnar nú fyrir dýnum svo
hægt sé að hefja æfingar af fullum krafti í haust
en fram til þessa hefur deildin notið góðs af
velvilja Kalla Lúðvíks og Júdósambands Íslands,
sem hefur lánað þeim dýnur. „Við erum að safna
fyrir gólfi, erum að ganga í fyrirtæki og biðja um
peninga, það hefur gengið ágætlega,“ segir
Einar brosandi og bætir við að enn vanti nokkuð
upp á en dýnurnar kosta um 1,2 milljónir með
öllu. „Við byrjuðum að æfa í Varmahlíð því Kalli
Lúðvíks var með dýnur í kennslu í einhverjum
valfögum í Varmahlíðaskóla. Svo lánuði JSÍ
okkur líka dýnur til að hjálpa okkur af stað og
eru þær í notkun hjá okkur núna,“ útskýrir
Einar.
Í sumar mun Júdódeildin bjóða upp á fjögurra
daga námskeið, fyrir krakka á aldrinum 6-12
ára, í tengslum við Sumar TÍM og gefst krökkum
þá tækifæri til þess að kynnast íþróttinni. „Við
ætlum líka að vera með kynningu á Unglinga-
landsmótinu um verslunarmannahelgina. Þá
verður boðið upp á júdó í þrjá daga fyrir þá sem
vilja prófa. Við erum að reyna að kynna þetta
aðeins en ég veit ekki hvernig þetta verður í
haust en vonandi nánum við að safna saman
nokkrum áhugasömum krökkum,“ segir Einar
en hann segist vera bjartsýnn á framhaldið. „Við
erum nú þegar með nokkra unga stráka, þeir
eru hörkugóðir og áhugasamir. Svo eru alltaf
einhverjir sem hafa áhuga á sjálfsvarnar- og
bardagaíþróttum í þetta stórum bæ,“ segir hann
að endingu. Einar bendir áhugasömum á að
senda tölvupóst á Júdódeild Tindastóls á
netfangið judo@tindastoll.is.
Á æfingunni voru afhentar viðurkenningar fyrir efnilegustu júdókonuna og júdókarlinn. Heiðurinn hlutu þau Ásta Birna
Jónsdóttir og Ísak Róbertsson.
Frá júdóæfingu.
Linda Þórdís og Bríet Lilja með bikarinn. Mynd: Róbert Óttarsson
Sigur á Ísafirði
1. deild kvenna : BÍ/Bolungarvík - Tindastóll 0-2
Meistaraflokkur kvenna hjá
Tindastóli mætti liði BÍ/
Bolungarvík á Ísafirði
síðastliðinn sunnudag.
Stólastúlkur náðu fljótlega
forskoti í leiknum og á 29.
mínútu skoraði Ashley Marie
Jaskula fyrsta markið í
leiknum fyrir Stólana.
Nokkrum mínútum síðar
bætti Carolyn Polcari við öðru
marki fyrir Stólana og staðan
því í hálfleik 0-2 fyrir Tindastól.
Engin mörk voru skoruð í
seinni hálfleik og fóru Stóla-
stúlkur sigursælar upp í rútu
eftir leikinn með þrjú ný stig.
Stólastúlkur eru nú með fimm
stig eftir þrjár umferðir. Næsti
leikur hjá stelpunum er sunnu-
daginn 8. júní kl. 14 og fer fram
á grasvellinum á Hofsósi. /GSG
Frábær árangur
Jóhanns Björns
Frjálsíþróttir
Vormót UFA var haldið á
Akureyri síðasta laugardag,
þann 31. maí. Í 100 m hlaupi
karla sigraði Jóhann Björn
Sigurbjörnsson UMSS á
11,10 sek. Í 2. sæti varð
Kolbeinn Höður Gunnarsson
UFA á 11,23 sek. Sagt er frá
þessu á vef Tindastóls.
Í 200 m hlaupi karla sigraði
Jóhann Björn einnig, hljóp á
22,12 sek, sem er hans besti tími
á vegalengdinni utanhúss, átti
22,65 sek frá 2012. Í 2. sæti varð
Kolbeinn Höður á 22,25 sek og
Daníel Þórarinsson UMSS í 3.
sæti á 23,00 sek, sem er hans
besti tími. Nokkur mótvindur
var í báðum hlaupunum.
Fleiri Skagfirðingar kepptu á
mótinu og stóðu sig vel. /KSE
Carolyn Polcari gerði annað markið.