Feykir - 05.06.2014, Qupperneq 9
21/2014 Feykir 9
Hér í Feyki hefur nú göngu
sína nýr þáttur sem ætlað er
pláss í blaðinu, að minnsta
kosti út sumarið. Fjallað
verður um nærtækar
gönguleiðir í Skagafirði og
Húnavatnssýslum, með það
að markmiði að vekja athygli
heimamanna og annarra
lesenda á góðri og ódýrri
afþreyingu og útivist í
nærumhverfinu.
Við byrjum á Hrollleifshöfða í
Sléttuhlíð. Meðan aðrir fóru í
kröfugöngur á degi verkalýðs-
ins þann 1. maí sl., brá
blaðamaður Feykis sér í dags-
ferð, við þriðja mann. Ferðinni
var heitið á Hrollleifshöfða í
Sléttuhlíð í Skagafirði. Að
fengnu leyfi landeiganda að
Felli í Sléttuhlíð var haldið að
eyðibýlinu Mýrum í sömu sveit.
Þangað er tæplega 20 km akstur
frá Hofsósi.
Bílnum var lagt við þjóð-
veginn og gengið að Melum,
hvar íbúðarhúsi hefur verið rutt
af grunni en útihús eru
uppistandandi. Þaðan var
Falin gersemi við þjóðveg 76
Fallaegar klettamyndanir á göngunni um Hrollleifshöfa.
„Við Grænland er 900
millibara lægð sem
hreyfist hratt ....“, þessi
veðurfarslýsing rann
áreynslulaust úr útvarpstæki
bernsku minnar. Svona
rétt eins og lagbúturinn:
„hamingju leita og
lífsdansinn þreyta í sátt,
þetta augnablik er ævintýr,
sem ekki liður hjá, og án
þess væri lífið lítils virði...“.
Þetta söng stórsveit
Geirmundar á fullu blasti,
svona í takt við holóttan
malarveginn með Stebba
Ben staðfastan við stýrið
í skólabílnum fyrir margt
löngu.
Í þessum hversdaglegu
staðreyndum veðursins og
laginu hans Geirmundar held
ég því fram að starfslýsingu
íslenska bóndans sé að
finna. Veðurfar er vinnulýsing
dagsins hjá honum og svo
sannarlega höndlar hann
með hamingjuna og þreytir
lífsdansinn í sátt. Því annað
eins æðruleysi og sátt er
vandfundin og í geðslagi
íslenska bóndans, og
hamingjan býr í sveitinni –
segi ég og hangi heilshugar í
hverju augnabliki sem ævintýri
því án þess væri lífið lítils
virði! Þetta vita líka íslenskir
bændur og kunna manna
best. Þess vegna verð ég alltaf
í huga og hjarta, íslenskur
bóndi!
Og þess vegna elska ég alla
íslenska bændur, þessa
harðgerðu og harðduglegu
veðurbörðu þúsundþjalasmiði
– og auglýsi hér með eftir
degi íslenska bóndans!
Svona svipað og við höldum
upp á sjómannadaginn,
frídag verslunarmanna og
fiskidaginn mikla á Dalvík.
En í öllu þessu lofi mínu til
íslenska bóndans býr dulbúin
fortíðar- og frelsisþrá og ég
geri mér fullkomlega grein fyrir
alvöru málsins.
Þannig hugsa ég að þeim sem
þekkja mig og sérstaklega
mömmu svelgist því illilega á
þessari framsetningu minni,
að ég líti á mig sem íslenskan
bónda. Mamma veit nefnilega
jafnvel og ég að veðurglögg
verð ég aldrei, mér væri seint
trúandi fyrir skepnuhaldi
og ekki þarf að fjölyrða um
tignarleg tilþrif þegar kemur að
landbúnaðarvélum.
Það breytir því hinsvegar
ekki að fátt gleður lyktarskyn
mitt jafn mikið og iðjagrænt
nýslegið gras eða heimareykt
hangikjöt, lítil lömb sprengja
öll mín krúttviðmið, fjallakyrrð
og busl í læk eru eitt besta
geðlyf í heimi, göngur og réttir
eru jafn ómissandi blanda
og malt & appelsín auk
þess sem fátt færir lífinu jafn
mikið innihald og tilgang og
baslið í sveitinni. Þrælahald
klukkunnar hverfur og náttúran
andar í takt við veðurfarið, og
þannig gerist í augnablikinu
ævintýri sem er svo
mannbætandi sálarfóður fyrir
huga og hjarta. Og þannig
verð ég skagfirskur nostalgíu
bóndi um stund! Sem kemur
í hlaðið á hvítum hesti með
karlakórnum Heimi, dansar
í sveiflu með Geirmundi
og fær sér svo blund með
Álftagerðisbræðrum undir háu
hamrabelti.
- - - - -
Þegar Feykir fór í prentun var
Sigríður Ásta ekki búin að
finna penna til að taka við
af sér.
Sigríður Ásta Hauksdóttir, frá Deplum í Fljótum, skrifar
Ég er skagfirskur bóndi
ÁSKORENDAPENNINN
UMSJÓN kristin@feykir.is
Hrollleifshöfði
í Sléttuhlíð
haldið á Fell, sem er um 161
metra hátt fjall, og gengið upp
austan við sjónvarpsmastrið.
Þegar upp er komið tekur við
langur spotti eftir endilöngu
fellinu og er síðan komið niður
við enda Kappastaðavatns. Næst
var haldið í átt til sjávar, á sjálfan
Hrollleifshöfðann, og gengið
yfir ræsi sem afrennsli vatnsins
rennur gegnum. Stefnan var
tekin á miðbik Málmeyjar og
gengið fram hjá tóftum tveggja
eyðibýla. Þegar komið er til
sjávar við svokallaðan Háhöfða
er gangan tæplega hálfnuð, það
er um 9 km lokið af rúmum 20.
Er þá gengið sem leið liggur
með ströndinni, fram hjá víkum
og fallegum klettamyndunum
og farið niður í eina víkina,
Lækjarvík. Þar blasir við
allnokkur rekaviður. Þegar
komið er að Straumnesvita er
gengið áleiðis á vegarslóða í átt
að Melum. Þarna ber að gæta
þess að fylgja annað hvort
ströndinni áfram um Mýrnavík,
eða labba inn á vegslóðann
nokkru austan við sjónvarps-
mastrið. Þreyttum ferðalöngum
tókst að villast af leið þegar
þarna var komið sögu og bæta
því um 2-3 km við vegalengdina
í þýfðu og erfiðu landi.
Gangan í heild er um 22 km,
sé bílnum lagt við þjóðveginn,
en um 20 km sé lagt við
eyðibýlið Mýrar. Hækkunin er
um 240 metrar og er hæsti
punktur, upp á Fellinu, tæpir
170 metrar. Landið er víðast
þægilegt yfirferðar, melar,
melöldur og móar, en á köflum
háar þúfur og gæta þarf að
mýrum sem eru allnokkrar á
leiðinni. Þá var ennþá nokkuð
um snjó í lautum og lægðum
þegar gengið var um svæðið í
maíbyrjun. Með því að fara
villur vegar og ganga um 25
km, í mjög hægri yfirferð með
mörgum stoppum til að taka
myndir, njóta útsýnis og snæða
nesti, tók gangan í heild um 10
og hálfa klukkustund, en
uppgefinn göngutími á
göngukorti fyrir Skagafjörð og
Tröllaskaga er um 5-6 tímar.
Flestir ættu að ráða við þessa
ferð sem hafa úthald til að
ganga nokkrar klukkustundir í
senn og þola vel göngur í ójöfnu
landslagi, en stór hluti leiðar-
innar er markaður vegslóð-um
og kindastígum.
Útsýnið er vel þess virði að
lagt sé upp í þessa göngu. Stór
hluti svæðisins sem gengið er
um sést ekki frá vegi. Þegar
komið er upp á Fellið gefst góð
útsýn til fjallanna í austan-
verðum Fljótum og langleiðina
til Siglufjarðar, yfir Sléttu-
hlíðarvatn og nærliggjandi fjöll,
vestur yfir allan Skagafjörð, auk
þess sem óvenjulegt sjónarhorn
fæst á Drangey, Málmey og
Þórðarhöfða. Góð myndavél er
nauðsynlegur ferðafélagi og
einnig er gaman að hafa með
sér kíki og GPS tæki eða aðra
tækni til að mæla vegalengd og
göngutíma.
FEYKIR Á FARALDSFÆTI
UMSJÓN kristin@feykir.is
Rekaviður í Lækjarvík.