Feykir


Feykir - 12.06.2014, Blaðsíða 8

Feykir - 12.06.2014, Blaðsíða 8
8 Feykir 22/2014 Heilir og sælir lesendur góðir. Lárus Salómonsson var þekktur íbúi í Kópa- vogi á sinni tíð. Margt var honum til lista lagt, meðal annars að yrkja vel gerðar hringhendur. Held að þessar tvær séu eftir hann. Hver einn þjónar sínum sið, svo af tjóni glapinn. Oft vill prjóna afsök við aðal-dónaskapinn. Gleði þver við glapaker glötun sér um mátið. Þannig fer með allt sem er út á vergang látið. Oft heyrist um að hinir ýmsu gleðimenn bregði sér í ferð til Kanaríeyja. Svo mun hafa verið er næsta vísa varð til. Höfundur hennar, Margeir Hallgrímsson, mun eftir því sem ég best veit hafa búið í Reykjavíkurhreppi. Stjórnarfarsins styrka hönd stopul ráðin gefur. Enn fer Matti út í lönd á Alþingi hann sefur. Hér mun átt við ráðherra sem eitt sinn sat í ríkisstjórn Íslands. Önnur vísa í svipuðum dúr kemur hér eftir Margeir. Á Kanarí er kvennaströnd ein kolsvört var í framan. Leiddumst við þá hönd í hönd. Helvíti var það gaman. Sá magnaði baráttumaður Emil Petersen mun hafa ort margar vísur um garpinn sem kallaður var Magnús sálarháski. Þessi er ein af þeim. Illa þoldi hann allan gáska enga mátti skemmtun bjóða. Mestan sagði hann sálarháska sjafnardrauma ungra fljóða. Man ekki fyrir víst af hvaða tilefni sú magnaða skáldkona Ólína Jónasdóttir orti eftirfarandi vísu. Heim í æsku hlýjan stað hugann aftur langar. Veslings Jarpur veistu það við erum bæði fangar. Mörgum mannslífum hefur blessaður hesturinn bjargað eftir þeim sögnum sem við höfum heyrt í gegnum tíðina. Jakob Thorarensen mun hafa ort næstu vísu eftir að hafa séð hest skila knapa sínum heilum í land eftir ferð yfir Jökulsá á Sólheimasandi. Hann á skilið hesturinn hlýlegt klapp á makkann. Þegar ertu alkomin upp á sigurbakkann. Margar sagnir eru til af afrekum hesta í glímu við jökulsvötn. Vigfús Runólfsson sem var læknir í Borgarfirði og átti afburða reiðhest sem kallaður var Blesi mun hafa riðið honum yfir Hvítá í foráttu vexti. Vísnaþáttur 619 Öruggt fimum fótum brá fákur á vaði naumu. Þó að bryti bógum á bólginn jökulflaumur. Svo fallega mun Vigfús hafa ort til Blesa eftir að komið var yfir ána. Önnur sögn er til sem segir að læknirinn hafi ort tvær vísur, og hafi tilefni þeirrar seinni verið það að hann hafi verið með í vasa sínum brennivínsflösku sem hann hafi tæmt er hann kom yfir ána, síðan hent henni frá sér og hún brotnað. Þá hafi þessi kunna vísa orðið til. Brestur vín og brotnar gler bregðast vinir kærir. En á Blesa eru mér allir vegir færir. Gaman væri að heyra frá lesendum hvort þeir telja þetta vera rétt. Það mun hafa verið Guðmundur Magnússon bóndi í Stóru-Skógum sem orti svo um sinn reiðhest. Mesta gull í myrkri og ám mjúkt á lullar grundum. Einatt sullast ég á Glám og hálffullur stundum. Kannski hentar að rifja næst upp þennan bitra sannleika skáldsins Páls Ólafssonar. Ég hef selt hann yngra Rauð er því sjaldan glaður. Svona er að vanta veraldarauð og vera drykkjumaður. Sá magnaði Emil Petersen sem getið er um hér að framan mun hafa átt góðan reiðhest sem hann harmaði mjög við fráfall hans. Mun þessi vísa segja allt um það. Ó, hve snauðan ég mig finn ýfast nauðasárin. Að vita dauðan vininn minn vera, rauða klárinn. Jón Sigurðsson sem ég held að hafi átt heimili í Reykjavíkurhreppi lýsir sínum kynnum af þarfasta þjóninum á þessa leið. Þó að flest sé þrotlaus smæð, þarf ei um að kvarta. Góður hestur opnar æð inn að mannsins hjarta. Fer vel að enda enn einn vísnaþátt með ágætri vísu um góðan hest. Höfundur Ingimar Bogason á Sauðárkróki. Aldrei mun ég aftur hest eignast svona góðan. Því hann Gráni bar mig best brattan götuslóðann. Verið þar með sæl að sinni. / Guðmundur Valtýsson Eiríksstöðum, 541 Blönduósi Sími 452 7154 ( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) kristin@feykir.is Feykir.is Smá í Feyki :: Síminn er 455 7171 smáAUGLÝSINGAR Helgarmarkaður Kringlumýri 14. og 15. júní Vinnustofa Maríu. Opið kl. 13–17. Handverk gamalt og nýtt. Ný sending af antíkmunum; bollum og allskonar postulíni,ljósakrónum, dúkum og dúllum. Börnin verða með tombólu til styrktar RKÍ Heitt á könnunni - verið velkomin. Hlökkum til að sjá ykkur Um 180 nemendur í tónlistarnámi Skólaslit Tónlistarskóla Skagafjarðar Við skólaslit Tónlistarskóla Skagafjarðar þann 22. maí í Höfðaborg Hofsósi voru afhent verðlaun úr tveimur minningarsjóðum. Úr minningar-sjóði Jóns Björnssonar frá Hafsteinsstöðum veitti Eiður Guðvinsson Matthildi Kemp Guðnadóttur verðlaun fyrir góðan námsárangur. Þá voru veitt tvenn verðlaun úr minningarsjóði Aðalheiðar Erlu Gunnarsdóttur frá Syðra- Vallholti. Þær sem hlutu verðlaun úr þessum sjóði voru Linda Þórdís Róbertsdóttir á kontrabassa og Vala Rún Stefánsdóttir á píanó. Að sögn Sveins Sigurbjörnssonar skólastjóra tónlistarskólans var fjölmennt á skólaslitum og komu nemendur fram ýmist sem einleikarar eða í hópum. „Um 180 nemendur stunduðu nám í vetur og fer kennslan fram á fimm stöðum í héraðinu. Þess skal getið að til stendur að bjóða nemendum 1. bekk grunnskóla upp á forskóla- kennslu á vegum tónlistarskólans næsta vetur, þar sem blandað verður saman tónmennta- og tón- listarskólakennslu, sem er góður undirbúningur fyrir frekara tónlistarnám. Vonandi verður farið í það að byggja við Árskóla þar sem gert er ráð fyrir að Tónlistarskólinn verði í framtíðinni, en við það mun nemendum í tónlistarnámi fjölga auk þess sem nágrenni við grunnskólann gerir nemend- um kleift að ljúka sínu tónlistarnámi á skólatíma,“ sagði Sveinn í samtali við Feyki. /BÞ Eiður Guðvinsson veitti Matthildi Kemp Guðnadóttur verðlaun úr Minningarsjóði Jóns Björnssonar. Sveinn Sigurbjörnsson ásamt Lindu Þórdísi Róbertsdóttur. Sveinn Sigurbjörnsson skólastjóri og Vala Rún Stefánsdóttir.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.