Feykir - 17.07.2014, Blaðsíða 8
8 Feykir 27/2014
Ég brá mér á tónleika með
Neil Young um daginn
og þegar ég kom út úr
Höllinni hljómaði enn
í höfðinu á mér Going
home sem kappinn söng
af mikilli tilfinningu og
mér fannst ég vera orðinn
indíáni og Reykjavík böðuð
kúrekasólskini. Loksins
fallegt sumarkvöld í
bænum og með Neil Young
í höfðinu fór ég í létt
fótboltahugarflug til Brasilíu
en þegar ég sá Esjuna fékk
ég fast land undir iljarnar og
flaug norður.
Það er fortíðarsumar frammi í
Blönduhlíð, brakandi þurrkur,
sól og bálhvöss hafgola eins
og alltaf á þessum árum og
maður orðinn vindhanginn eftir
að sitja á gráa Fergusoninum
og klukkan orðin margt, ég
svangur og fótboltaæfing
úti á Vallabökkum í kvöld.
Loksins er síðasti vagninn
kominn heim að hlöðu og
Landroverinn leystur frá.
Hlaupið inn í kvöldmat,
stokkið í stuttbuxurnar og
takkaskórnir reimaðir. Kannski
var ég búinn að eignast
Adidas-skóna mína sem
gerðu mig nærri að snillingi
(bara við að fara í þá). Svo
varð að plata pabba til að
skutla okkur á æfinguna
og gott ef sá gamli tók ekki
nokkrar utanfótarspyrnur með
vinstri ef hann var í stuði.
Við tókum Miðsitjustrákana
með. Þar var í fararbroddi
Kiddi heitinn fermingarbróðir
sem ekki var hægt að ná
boltanum af, enda spilaði
hann í slönguskóm og var
þindarlaus. Við rennum út
Hlíðina með sólina á ská í
augun og yfir gömlu brúna á
Grundarstokknum og þar er
mættur vaskur hópur, margir
úr Úthlíðinni, enda var heilt
fótboltalið að alast upp á
Frostastöðum og tvíbbarnir
Kolli og Leifur strax ansi
skeinuhættir og maður hætti
fljótt að ráða við þá. Mig
minnir að markstangirnar
hafi ekki verið burðugar til að
byrja með. Kannski voru það
bara peysurnar okkar sem
orsökuðu stundum smádeilur
um hvort hann væri inni eða
ekki eftir meistaraskotin, því
við vorum ansi góðir strákarnir.
Ég var nú oftast aftarlega á
miðjunni eða bakvörður, var
ekki góður að sóla en býsna
fljótur að hlaupa finnst mér
núna … kannski það hafi
verið smá Philipp Lahm í mér
eða jafnvel Roberto Carlos
og já, það er svo gaman
þegar maður endurlifir þessi
sólskinskvöld á Vallabökkum
og man að þá ætlaði maður
að komast í lið og gera
garðinn frægan! Og nú er sólin
að hverfa undir Hegranesið,
farið að kula á sunnan og mál
að klæða sig í markstangirnar
og troða sér uppgefinn
og haltur inn í gamla
Uppsalalandroverinn og
skýlaus Mælifellshnjúkurinn
spáir víst þurrki á morgun.
Þá vissi ég sennilega ekki að
Neil Young væri til og hvað
þá frægur í útlöndum … en
svona getur lífið farið með
mann þar sem maður stendur
með Going home í höfðinu og
horfir yfir Flóann og bíður eftir
að gamla sólin taki sitt fræga
gítarsóló yfir Snæfellsnesinu.
Með kveðju norður
Eyþór Árnason frá Uppsölum
- - - - -
Ég skora á Bjarna Stefán
Konráðsson, íþróttafræðing
frá Frostastöðum, að taka við
pennanum.
Eyþór Árnason frá Uppsölum í Blönduhlíð skrifar
Flogið norður
ÁSKORENDAPENNINN
UMSJÓN kristin@feykir.is
Stóri fyrirtækjadagurinn
verður haldinn nk. föstudag
í tengslum við Húnavöku.
Þá munu ýmis fyrirtæki
opna dyr sínar fyrir gestum
og gangandi og verða jafnvel
með ýmis tilboð í tilefni
dagsins.
Þetta er þriðja árið sem Vilko
tekur þátt í fyrirtækjadeginum
en að sögn Kára Kárasonar
framkvæmdastjóra hafa þeir
dagar alltaf heppnast mjög vel
og fjöldi fólks komið í
heimsókn og gert góð kaup í
leiðinni.
Að sögn Kára verður
áhersla lögð á að kynna Prima
kryddið að þessu sinni og þær
80 tegundir af gæðakryddi
sem fyrirtækið framleiðir frá
öllum heimsins hornum. „Um
leið gefst fólki tækifæri á að
versla á lagerverðum allar
vörur Vilko og Prima, auk
þess sem við verðum með
súper Húnavökutilboð á
völdum vörum,“ segir Kári í
samtali við Feyki. Heitt verður
á könnunni og léttar veitingar
fyrir börn og fullorðna.
Einnig verður hægt að líta
inn hjá SAH Afurðum, Sam-
kaupum og Stíganda sem
einnig verða með ýmis tilboð í
gangi í tilefni Húnavöku.
Fyrirtækin Ístex, N1 píparinn,
Bifreiðaverkstæði Blönduóss,
Ísgel, Átak og Léttitækni taka
á móti gestum við Efstubraut
2 en þar verður grillað, hoppu-
kastali á staðnum og candy
floss og fleira skemmtilegt. /BÞ
Fjölbreytt og fjöl-
skylduvæn dagskrá
Húnavaka 2014 um næstu helgi
Bæjarhátíð Blönduósbæjar,
Húnavaka er á næsta leyti.
Systkinin Eysteinn og Kristín
Lárusbörn tóku undirbúning
hátíðarinnar að sér með
stuttum fyrirvara í fyrra og
þau taka slaginn aftur í ár,
reynslunni ríkari. Óhætt er að
segja að dagskráin sé
fjölbreytt og metnaðarfull.
Blaðamaður Feykis hafði
samband við þau systkinin og
lagði fyrir þau nokkrar
spurningar um hátíðina í ár
og undirbúning hennar.
Hvernig kom það til að þið
tókuð að ykkur Húnavöku?
„Sennilega af því að þetta gekk
vel í fyrra þrátt fyrir stuttan
fyrirvara og þess vegna var
leitað til okkar aftur höldum
við. Eins var þetta mjög
skemmtilegt verkefni sem við
vorum alveg til í að gera aftur.“
Þið höfðuð lítinn fyrirvara í
fyrra, hafið þið meira svigrún
til að setja ykkar svip á hátíðina
núna?
„Já og nei, þetta er í raun mikið í
föstum skorðum þ.e. dagskráin.
En jú, við höfðum meiri tíma
núna og reynum að sjálfsögðu
að koma okkar hugmyndum
smátt og smátt að og laga það
sem maður heyrir að hafi betur
mátt fara.“
Hvað er helst á dagskrá?
„Það er svo margt. Tónlist er
fyrirferðarmikil, þ.e. tónleikar,
böll og míkróhúnninn fyrir
Systkinin Kristín Ingibjörg og Eysteinn Pétur Lárusbörn.
Súper Húnavökutilboð á
Stóra fyrirtækjadeginum
Fyrirtæki bjóða gestum í heimsókn
yngstu kynslóðina. Þá má nefna
fyrirtækjadaginn, grillpartý í
gamla bænum, kassabílarallý,
hjólabrettanámskeið, kvöld-
vöku, markaðsstemningu,
Blöndugöngu, skemmtun á
útisviði, söfn og setur bæjarins
með skemmtilega dagskrá og
margt, margt fleira. Bara mæta
á svæðið.“
Eru einhverjar nýjungar?
„Já, við ákváðum að prófa að
byrja aðeins fyrr eða í vikunni á
undan og erum með kassa-
bílarallý sem er nýtt. Þar fá
krakkarnir aðstoð við að smíða
og hanna sína kassabíla frá
grunni fyrir kassabílarallýið
sem fram fer á laugardeginum.
Þá ákváðum við líka að reyna
hafa fleiri viðburði fyrir yngri
kynslóðina án þess að það sé
aðgangseyrir og má þar helst
nefna að Íþróttaálfurinn og
Solla Stirða verða á útisviðinu á
laugardeginum ásamt Lalla
töframanni. Þá er nýbúið að
setja hér upp brettapalla og
fannst okkur tilvalið að fá
hingað til okkar brettasnilling til
að kenna krökkunum og halda
brettanámskeið þeim að kostn-
aðarlausu. Fjölskyldudansleikur
fyrir alla fjölskylduna er á föstu-
dagskvöldinu með Hvanndals-
bræðum þar sem aðgangur er
einnig ókeypis. Við endum
síðan „krakkaþemað" með
sápurennibraut í kirkjukbrekk-
unni á sunnudeginum. Þannig
að það er jú margt nýtt og
skemmtilegt í boði að okkar
mati.“
Hvernig gengur undirbúning-
urinn?
„Hann gengur bara mjög vel og
hefur allavega gert það hingað
til. Núna er bara verið að semja
við veðurguðina um hagstætt
veður meðan á hátíðinni stend-
ur og vonandi gengur það eftir.“
Hvernig gengur samstarfið,
enginn systkinarígur?
„Samstarfið gengur fínt og lítill
rígur í gangi. Ég (Eysteinn
Pétur) er eldri og ræð ef upp
kemur ágreiningur – það er
bara þannig.“
Kári Kárason, framkvæmdastjóri Vilko.
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir