Feykir - 17.07.2014, Qupperneq 10
10 Feykir 27/2014
Við óskum blönduósingum
gleðilegrar húnavöku
Flúðabakka 2 Blönduósi Sími 452 4385 www.lyfja.is
Húnabraut 6 Blönduósi Sími 452 4464 Gsm 847 2317
Sauðárkróki, Blönduósi og Hvammstanga | Sími 455 9200 www.tengillehf.is
Ægisbraut 1 Blönduósi Sími 452 4272 www.prima.is
Efstubraut 2 Blönduósi Sími 452 7100
Árbraut 29 Blönduósi Sími 452 4067 www.textile.is/
Skagfirðingabraut 17-21 550 Sauðárkróki Sími 455 6000
Blöndustöð www.landsvirkjun.is
Árbraut 31 Blönduósi Sími 452 4030
Efstubraut 2 Blönduósi Sími 451 2727 www.isgel.is
Feykir.is
Borgarflöt 1 550 Sauðárkróki Sími 455 7176 www.feykir.is
ATVINNUÞRÓUN
SAMTÖK SVEITARFÉLAGA Á NORÐURLANDI VESTRA
Hnjúkabyggð 33 Blönduósi Sími 455 4300 www.ssnv.is
Hvammstangabraut 5 Hvammstanga Sími 455 2400 www.hunathing.is
Efstubraut 1 Blönduósi Sími 452 2900 www.laxasetur.is
Hnjúkabyggð 32 Blönduósi Sími 580 1200 www.postur.is
„Liðsheildin hjá hópnum frábær!“
Svava Rún hefur spilað 105 leiki með mfl. kvenna hjá Tindastóli
Svava Rún Ingimarsdóttir er fyrsti
leikmaðurinn til að spila yfir 100 leiki
með mfl. kvenna hjá Tindastóli. Svava
Rún hefur verið með boltann á tánum
frá því hún man eftir sér og mætti á
sína fyrstu fótboltaæfingu með
Tindastóli aðeins sex ára gömul.
Svava Rún er dóttir Ingimars Rúnars
Ástvaldssonar og Elínborgar
Svavarsdóttur.
Svava Rún segir fótboltann hafa gefið
sér ótrúlega margt í gegnum árin, meðal
annars mikla ánægju og skemmtun. ,,Í
gegnum árin hefur maður eignast nýja
vini í gegnum fótboltann og hefur sú
vinátta haldist þó sumir hafi hætt iðkun.
Algengt er að margir hætti knatt-
spyrnuiðkun þegar komið er upp í 3.
flokk, og eru getgátur um að ástæða þess
sé sú að alvara sé farin að færast í leikinn
og velja þarf orðið á milli ákveðinna
hluta og fótboltans. Hvet ég því alla sem
eru á þessum aldri að halda áfram þó
valið sé erfitt, þetta skilar sér í ánægju og
mikilli samheldni innan hópsins. Þó
Svava Rún í baráttunni um boltann við leikmann Keflavíkur fyrr í sumar.
erfitt sé að horfa upp á vini sína sem ekki
stunda fótboltann gera eitthvað skemmti-
legt sem iðkandinn verður að hafna
fótboltans vegna að þá er hópurinn það
samheldur að hann býr sér til einhverja
skemmtun í staðinn.”
Þó að það sé mjög krefjandi að vera
hluti af liðsheild segir Svava það einnig
vera eitt það skemmtilegasta sem hún
viti um. ,,Síðustu tvö sumur hefur verið
sami kjarninn í hópnum og varla hægt
að segja annað en að liðsheildin hjá
hópnum sé frábær. Allar virðast vera
tilbúnar til að leggja það sama á sig til að
ná ákveðnum markmiðum sem krefjast
þess að fórna þarf ákveðnum hlutum í
staðinn. Mjög góður andi hefur
einkennt þennan hóp og er alltaf hlegið
og haft gaman. Það sem er hvað sterkast
í okkar liðsheild nú er hvað við erum
allar góðar vinkonur þótt aldursbilið sé
breytt, sú elsta er 25 ára og yngsta er 16
ára.”
Aðspurð að lokum hvert stefnan er
sett í boltanum segir Svava að draum-
urinn sé að spila i deild þeirra bestu á
Íslandi. ,,Alltaf vill maður stefna langt,
en stefnan núna er að ná að spila sem
best með Tindastóli og reyna að ná sem
lengst með þeim. Það hefur alltaf verið
draumur að komast með liði Tindastóls
í úrslitakeppnina í 1. deild kvenna.
Hefur þetta verið eitt af langtímamark-
miðum okkar í svolítinn tíma og alltaf
erum við að ná betri árangri, vonandi
verður stutt í það að mfl. kvenna hjá
Tindastóli nái þessu markmiði.” /GSG
Það er jafnan mikið um að vera í
söfnum landsins á Íslenska safna-
deginum, sem að þessu sinni var
haldinn hátíðlegur sunnudaginn 13.
júlí. Söfnin á Norðurlandi vestra eru
þar engin undantekning og efndu þau
til viðburða í tilefni dagsins.
Tónlistamennirnir Einar Lövdahl og
Skúli Jónsson voru með bráðskemmti-
lega tónleika í hákarlaskipinu Ófeigi
sem staðsett er á byggðasafni Húnvetn-
inga og Strandamanna á Reykjum í
Hrútafirði. Voru það þriðju tónleikar
sumarsins í skipinu forna og hafa þeir að
sögn Sigríðar Bachman forstöðumanns
mælst vel fyrir.
Margt var um manninn á Heimilis-
iðnaðarsafninu á Blönduósi og þar voru
sýndar ýmsar aðferðir við handverk, svo
sem tekið ofan af, kembt, spunnið,
prjónað, saumað út, gimbað, heklað og
slegið í vef. Að sögn Elínar Sigurðar-
dóttur forstöðumanns safnsins var
ánægjulegt hve margir gáfu sér tíma til
að eiga samveru stund og þiggja bónda-
kökur sem skolað var niður með kaffi
eða kókómjólk.
Aðsókn að Byggðasafni Skagfirðinga
var góð þennan dag, og segir Sigríður
Sigurðardóttir safnvörður að gestir hafi
verið 752 í Glaumbæ og 72 í minjahúsinu
á Sauðárkróki, eða samtals 824 á báðum
sýningarstöðum safnsins. /KSE
Haldinn hátíð-
legur á Blönduósi,
Reykjum og
í Glaumbæ
Íslenski safnadagurinn 2014