Feykir


Feykir - 28.08.2014, Blaðsíða 8

Feykir - 28.08.2014, Blaðsíða 8
8 32/2014 „Tómarúmið sem alltaf var til staðar hefur verið fyllt“ Sylvía Magnúsdóttir á Hlíðarenda í Óslandshlíð fann systkini sín eftir áratuga aðskilnað Sylvía Magnúsdóttir á Hlíðarenda í Óslandshlíð var ung þegar hún komst að því að hún væri ættleidd. Blóðforeldrar hennar reyndust þýskir og um fertugt fór hún að leita systkina sinna í annað sinn, eftir árangurslausa tilraun nærri aldarfjórðung fyrr. Í dag hefur hún hitt tvö af systkinum sínum og hefur einnig samband við systurdóttur sína sem í sumar heimsótti hana í Skaga- fjörðinn. Sylvía sagði blaðamanni Feykis sögu sína á dögunum. Sylvía er fædd í Karlsruhe í Þýskalandi og var ættleidd kringum þriggja mánaða aldur. Hún segir að foreldrar sínir hafi dvalið með sig í einhvern tíma þar ytra áður en þau fóru sjó- leiðina heim, en pabbi hennar var skipstjóri. Hjá þeim ólst hún síðan upp á Íslandi en hin systkinin urðu eftir í Þýskalandi og fóru smátt og smátt hvert í sína áttina og aðeins tvö þeirra vissu hvert af öðru. „Ég var frekar ung, sennilega um níu ára, þegar ég komst að því að ég væri ættleidd. Það eina sem ég vissi til að byrja með var að ég hefði komið frá Þýskalandi Þá væri Afríka og Evrópa ef til vill ein heimsálfa. Þá hefðu valdasjúk Evrópuríki ekki getað kúgað Afríkuríki eins og þau gerðu öldum saman. Afleiðingin er fátækt og fáfræði sem varir enn og leiðir af sér hungur og hungurdauða. Ríflega 20.000 börn deyja úr hungri á hverjum einasta sólarhring í heiminum. 50% allra þeirra sem deyja úr hungri í heiminum koma frá litlum jörðum í Afríku sem fátækir smábændur búa á. Á næsta bæ, aðeins norðar, er mat hent í tonnavís eða borgun þegin fyrir að framleiða ekki mat. Þarna er eitthvað meira en lítið að. Á Íslandi er mat hent fyrir 10 milljarða á ári. Það er þriðjungur af því sem við eyðum í mat. Miðað við meðalútgjöld fjölskyldu til matarkaupa á ári gætu rúmlega 400 fjölskyldur borðað frítt í heilt ár ef ég reikna rétt. Hvað skyldu það vera margar fjölskyldur í Afríku? Það er svipað hlutfall og er á heimsvísu (1,7 milljörðum tonna af mat hent árlega) Bjarni Stefán Konráðsson, brottfluttur Skagfirðingur, skrifar Það væri óskandi að Miðjarðarhafið væri ekki til ÁSKORENDAPENNINN UMSJÓN kristin@feykir.is og því til viðbótar má nefna, að víða í Evrópu til dæmis, er ekki nóg með að mat sé hent sem búið er að framleiða af því það fæst „ekki nógu hátt verð fyrir hann“ (maturinn fer sem sé aldrei í verslanir, til dæmis í Þýskalandi), heldur er bændum BORGAÐ FYRIR að rækta EKKI ákveðnar spildur til að draga úr framleiðslu, á meðan fólk aðeins sunnar á jarðarkúlunni DEYR ÚR HUNGRI svo milljónum skiptir. Ég fæ mig ekki til að skilja það að þetta sé rétt. Það er gjörsamlega galið og siðblint að framleiða ekki mat og henda mat af því það fást ekki nógu miklir PENINGAR fyrir hann á sama tíma og fólk deyr unnvörpum úr hungri á næsta bæ. Hvenær ætlum við að ná því að hugsa út fyrir landamæri og álfur þegar mannslíf er í húfi? Hvað veldur því að við gerum það ekki? Gæti verið að sóun og græðgi eigi þar hlut að máli? Jafnvel firring og sjálfselska? Þröngur sjóndeildarhringur? Ég veit það ekki. En ég veit að svo lengi sem einhver græðir á fátækt, þá verður fátækt. Og ég veit að það væri óskandi að Miðjarðarhafið væri ekki til. - - - - - Ég skora á Kristján Björn Snorrason að taka við pennanum. og hvert ættarnafn mitt væri. Ég var auðvitað það ung að ég spáði ekkert í þetta, enda átti ég yndislega foreldra sem elskuðu mig og hugsuðu vel um mig. En þegar ég fór að eldast vildi ég komast að meiru, enda fannst mér alltaf eins og vantaði eitt- hvað,“ segir Sylvía um tildrög þess að hún fór að leita upp- runans. Sylvía segir það hafa verið fremur óþægilegt hvernig henni bárust þær fréttir að hún væri ættleidd því það var frænka hennar sem talaði af sér, hélt hreinlega að hún vissi þetta. „Ég komst að því fyrir slysni og það fór ekki vel í mig að vita það.“ Hún segir að þangað til hafi hún ekki haft neina ástæðu til að gruna neitt, en foreldrar hennar hafi ekki ætlað að segja henni frá ættleiðingunni. Hún ráðleggur þó foreldrum ætt-leiddra barna að segja þeim frá uppruna sínum þegar þau eru á hentugum aldri til að vita sannleikann. Um fimmtán ára aldur fór Sylvía á stúfana til að reyna að ná tengslum við hugsanleg systkini sín. „Ég vissi hvaða lögfræðingur sá um ættleiðinguna og talaði við hann fyrir sirka 25 árum en hann sagðist ekkert getað hjálpað mér. Þetta lá þungt á mér og ég reyndi margar leiðir til að finna upplýsingar um blóð- fjölskylduna,“ rifjar Sylvía upp. „Mér datt svo allt í einu í hug, fyrir um tveimur árum, að hafa samband við þýska sendiráðið á Íslandi. Þangað fór ég í viðtal og gekk það vel. Mér var strax gerð grein fyrir því að annað hvort gæti þetta orðið ein allsherjar hamingja eða mikil vonbrigði. Ég sætti mig jú við það, því ég hugsaði að ég væri þá allavega búin að reyna, hver svo sem útkoman yrði.“ Þegar hér var komið við sögu var móðir Sylvíu fallin frá, en hún telur að hún hefði ekki reynt að stoppa sig af. Tíminn leið og rúmlega tveimur árum síðar, eða árið 2012, var Sylvíu boðið á fund í þýska sendiráðinu. Þar fékk hún upp- lýsingar um hverjir blóðfor- eldrar hennar væru og að þau væru enn á lífi. „Ég hafði samt í raun ekki áhuga á að kynnast þeim, mig langaði að kynnast systkinum mínum. Ég bað um þær upplýsingar en fékk ekki vegna þess að þau skjöl voru lokuð. Sendiráðið var hinsvegar mjög hjálplegt, því þetta þarf að vera þveröfugt, þau þurftu að láta í ljós áhuga á að hafa samband við mig.“ Sylvía segir móður sína ekki hafa sýnt áhuga á samskiptum við þau systkinin. Hún hefur skrifað föður sínum en hann ekki svarað. En markmið hennar var að kynnast systkinunum og hún segist sátt með það. „Bíómyndarmóment“ Nokkru síðar fékk Sylvía svo tölvupóst um að hún ætti fimm systkini og þau hefðu öll fengið heimilisfangið hennar. „Þann 31. júlí 2013 leit ég á tölvupóstinn minn og sá þá póst frá blóð- bróður mínum. Það bréf var stutt og laggott. Ég skrifaði strax á móti og gaf upp facebook- nafnið mitt og þar „addaði“ hann mér og við höfum verið í samskiptum síðan,“ segir Sylvía og bætir við að með því að hitta systkini sín og komast í samband við þau hafi það tómarúm sem hún fann fyrir verið fyllt. Þetta er ein stór hamingja hjá mér og ég gæti ekki verið ánægðari.“ Þann 3. apríl 2014 hélt Sylvía svo til Þýskalands. Hún lenti í Frankfurt og tók þaðan lest til Heidelberg, ásamt dóttur sinni sem var með í för. Stefnan var tekin á fund fjölskyldumeð- limanna í fyrsta skipti. „Spennan var mikil á leiðinni í lestinni. Hugurinn reikaði fram og til baka því við ætluðum að hitta frænku mína þar í fyrsta skipti. Svo þegar við komum á lestar- stöðina sáum við frænku mína og systur mína sem ég var líka að hitta í fyrsta skipti.“ Sylvía segir erfitt að lýsa endurfundunum öðruvísi en svona bíómyndamómenti. „Þetta var eins og í bíómynd. Hún gekk í átt til mín hágrátandi, jók svo hraðann þangað til hún var komin í faðm minn og hélt virkilega fast og vildi ekki sleppa. Þetta stóð örugglega í tíu mínútur en síðan var ákveðið að fara og borða og kynnast betur,“ rifjar Sylvía upp. Eftir þessa endurfundi hefur Sylvía verið í reglulegu sambandi við systur sína og bróður, og frænku sína, Jenny, sem heimsótti hana í Óslandshlíðina í sumar. „Ég hvet alla sem eru efins um að hitta sínar fjölskyldur, sem þeir hafa ekki hitt áður, eindregið til að gera það. Þetta getur auðvitað farið á báða vegu en þetta er eitt af þeim augna- blikum sem ég myndi vilja lifa aftur. Ég veit að ekki eru allir jafn heppnir og ég að finna sínar fjölskyldur. Ég veit að ég fékk hjálp að ofan, ekki spurning. Ég lít svo á að ég hafi ekki átt að hitta þau fyrir 25 árum, ég hafi ekki verið tilbúin, en nú var rétti tíminn,“ segir Sylvía að lokum. VIÐTAL Kristín Sigurrós Einarsdóttir Þessi mynd er tekin tíu mínútum eftir að Sylvía (t.h.) hitti systur sína í fyrsta sinn.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.