Feykir - 28.08.2014, Blaðsíða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
32
TBL
28. ágúst 2014 34. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð aðstoðaði
Með tvö sprungin dekk
Flugbjörgunarsveitin í
Varmahlíð var sl.
mánudag kölluð út að
Ásbjarnarvötnum, austan
Hofsjökuls, til aðstoðar
fjölskyldu sem þar var
stopp vegna þess að
sprungið hafði á tveimur
dekkjum á bifreið þeirra.
Þegar útkallið barst
höfðu þau verið stopp í þrjá til fjóra tíma.
Það tók björgunarsveitarmenn síðan þrjá tíma í við-
bót að komast á staðinn. Aðstoðuðu þeir ferðalangana
við að skipta um dekkin og fylgdu þeim síða niður til
byggða. Ekkert amaði að fólkinu, að sögn Þorsteins Guð-
mundssonar, formanns Flugbjörgunarsveitarinnar. /KSE
Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð kom ferða-
löngum með sprungin dekk til aðstoðar.
Forvitnast í fataskápa:
Solveig Lára Guðmundsdóttir
Mjólkursjalið í uppáhaldi
Hún Sigurveig Dögg, seinasti
fataskápsfrömuður skoraði á
Solveigu Láru Guðmundsdóttur,
vígslubiskup Hólastiftis, að opna
fyrir okkur dyrnar að
fataskápnum og leyfa okkur
aðeins að forvitnast um þá
fjársjóði sem þar kynnu að
leynast.
Rætur Solveigar liggja um allt
Norðurland þrátt fyrir að vera fædd
og uppalin í Reykjavík. Langafi
hennar og amma bjuggu á
Möðruvöllum þar sem Solveig svo
bjó í tólf ár. Langafi hennar var
kaupmaður í Grafarósi þar sem
hann bjó ásamt langömmu hennar,
Kristínu Briem sem fæddist á
Reynistað í Skagafirði, og fæddist afi
hennar þar. Seinna bjuggu þau svo á
Sauðárkróki, þannig að rætur
Solveigar í fjörðinn fagra eru sterkar!
Fyrir tveimur árum fluttist Solveig,
svo ásamt manni sínum Gylfa, heim
að Hólum í Hjaltadal og tók þar við
embætti vígslubiskups, og að eigin
sögn reynir hún eftir fremsta megni
að verða Skagfirðingur.
En svo við snúum okkur nú að
fataskápnum, hvað er það sem er
í algjöru uppáhaldi hjá Solveigu
þessa dagana?
- Fötin mín eru öll mjög þægileg þar
sem ég þjáist í óþægilegum flíkum.
Ég á tvær uppáhaldsflíkur þessa
dagana og þær eru báðar íslensk
hönnun. Annars vegar er það bleik-
fjólublár kjóll sem hannaður er af
UMSJÓN MEÐ
FRÖKEN FABJÚLÖSS
Hrafnhildur Viðarsdóttir
[ frokenfab@feykir.is ]
Guðmundi Jörundssyni JÖR, en
hann er mágur sonar míns. Auður
tengdadóttir mín og systir Guð-
mundar dró mig inn í búðina hans
þegar ég var að fara á kvenna-
ráðstefnu í Þýskalandi í vor. Henni
fannst að ég yrði að vera fín í tauinu
á þessari ráðstefnu og valdi þennan
kjól á mig. Svo á ég yndislegt sjal
sem búið er til úr mjólk og er hannað
af Bóasi Kristjánssyni en pabbi hans
og mamma, Kristján Valur Ingólfs-
son vígslubiskup í Skálholti og
Margrét Bóasdóttir verkefnisstjóri
kirkjutónlistar, gáfu mér sjalið í
vígslugjöf.
Hversu skemmtilegt er það að
eiga sjal úr mjólk?
-Yndislegt!
Hver er það svo sem Solveig vill
að taki við gestgjafahlutverkinu í
næsta tískuhorni?
-Ég skora á sr. Döllu Þórðardóttur
prófast Skagfirðinga til að vera með
næsta þátt.
Full búð af nýjum haustvörum!
Flottustu skólaskórnir frá SIX MIX eru komnir
Under Armour haust 2014 er komið
– Geggjuð flott lína
Ný sending frá Speedo
Ný, falleg haustefni að
tínast inn og fleira og fl.
Verið
velkomin