Feykir


Feykir - 28.08.2014, Blaðsíða 10

Feykir - 28.08.2014, Blaðsíða 10
10 32/2014 SAMVINNUBÓKIN og KS-BÓKIN Þrír góðir kostir til að ávaxta spariféð þitt KS-bókin er með 2% vexti, bundin í 3 ár og verðtryggð. Önnur KS-bók með innistæðu yfir 20 milljónir, 4,20% vextir. Samvinnubókin er með lausri bindingu, óverðtryggð og óbundin 4,10% vextir. Hafið þið séð betri vexti? Ártorgi 1 550 Sauðárkróki & 455 4515 KS INNLÁNSDEILD N Ý PR EN T eh f Helgarnám í fisktækni Nám í fisktækni í samvinnu við Fisktækniskóla Íslands, Farskóla Norðurlands vestra og FISK Seafood fer af stað nú á haustönn. Kennt verður einn til tvo eftirmiðdaga á viku og um helgar. Námið tekur fjórar annir og lýkur með framhaldsskólaprófi. Umsóknarfrestur er til 3. september 2014. Nánari upplýsingar og skráning í námið eru hjá skrifstofu FjölbrautaskólaNorðurlands vestra í síma 455-8000. Góður straumur af fólki allan daginn Sannkölluð Sveitasæla í Reiðhöllinni Svaðastöðum Landbúnaðarsýningin og bændahátíðin Sveitasæla var haldin í reiðhöllinni Svaðastöðum sl. laugardag og státaði hún m.a. af fjöldanum öllum af sýningarbásum fyrirtækja og handverksfólks, húsdýragarði og áhuga- verðum viðburðum tengdum þema hátíðarinnar. Sýningin gekk í heild sinni mjög vel að sögn Söru Reykdal, fram- kvæmdastjóra sýningarinnar, öll dagskrá rúllaði sinn gang og var góður straumur af fólki allan daginn. Veðrið var með eindæmum gott þennan dag og sagði Sara erfitt að kasta tölu á fjölda gesta en hún sagðist telja að þeir hafi verið vel yfir 3000 manns. Fjöldann sagði hún hafa dreifst vel um allt svæði sýningarinnar, innandyra sem utan, og einnig á mótssvæði Léttfeta þar sem var haldið gæðingamót. „Kálfa- sýning barnanna vakti góða lukku og hlaut mikið áhorf sem endranær. Hrútaþuklið var einnig vinsælt þar sem menn kepptust um að raða fjórum hrútum í rétta sætaröð eftir gæðum. Dýragarðurinn vekur alla jafna mikla lukku þar sem fjöldi ólíkra húsdýra er til sýnis. Fjölmörg fyrirtæki sýndu vörur sínar innanhúss og var mikið að sjá og skoða og hægt að versla. Einnig var til sölu aragrúi af handverksvörum og fatnaði. Stórvirku landbúnaðartækin utanhúss voru mjög vinsæl og töluvert um nýjungar þar á ferð. Kvöldvakan var svo vel sótt þar sem bændur og búalið öttu kappi í bændafitness og reipitogi ásamt því að flutt voru tón- listaratriði,“ sagði Sara í samtali við Feyki. Sumir gestir sýningarinnar Góð stemning á Sveitasælunni. höfðu orð á því við Feyki að erfitt hafi reynst að heyra hvað kom fram í kallkerfi sýningarinnar. Því svaraði Sara að það sé eitt- hvað sem verið sé að bæta úr með hverju árinu en að reiðhöll- in sé með afar erfiða hljóðdreif- ingu þegar svona margt fólk er þar samankomið, með tilheyr- andi skvaldri. Að þessu sinni voru tvö hljóðkerfi og heyrðist betur nú en í fyrra en það virtist einnig skipta máli hvar fólk var statt hvernig heyrðist í kerfinu. Aðstandendur sýningarinnar vilja koma þökkum til allra þeirra sem lögðu leið sína á sýninguna. „Sérstakar þakkir sendum við svo til allra þeirra sem lögðu hönd á plóg við framkvæmd og uppsetningu sýningarinnar sem og annarra sem lögðu sitt af mörkum. Sjáumst svo hress að ári eða þann 22. ágúst 2015,“ segir Sara að endingu. /BÞ

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.