Feykir - 06.11.2014, Blaðsíða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
42
TBL
6. nóvember 2014 34. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Akstursíþróttamaður ársins 2014
Baldur hlaut heiðurinn
Baldur Haraldsson á
Sauðárkróki og Ásta
Sigurðardóttir voru um
síðustu helgi útnefnd
akstursíþróttamenn
ársins 2014. Útnefn-
ingin fór fram á loka-
hófi akstursíþrótta-
manna á Akureyri.
Eftir að tilnefningu frá keppnisráðum einstakra
greina og netkosningu kaus formannafundur aksturs-
íþróttasambands Íslands (Akís) eina konu og einn karl til
titilsins. Eins og Feykir hefur greint frá áttu Baldur og
aðstoðarökumaður hans, Aðalsteinn Símonarson, frá-
bært keppnistímabil í sumar og höfðu þegar tryggt sér
Íslandsmeistaratitilinn í rallý þegar ein keppni var eftir af
Íslandsmótinu. /KSE
SAMTÖK SVEITARFÉLAGA Á NORÐURLANDI VESTRA
ATVINNUÞRÓUN
VAXTARSAMNINGUR
NORÐURLANDS VESTRA
óskar eftir umsóknum um styrki.
Umsóknarfrestur rennur út
á miðnætti föstudaginn
28.nóvember 2014.
Sækja skal um með rafrænum hætti á eyðublöðum
sem fást á vefsíðunni: http://www.ssnv.is
Á vefsíðunni liggja frammi úthlutunarreglur
og nánari upplýsingar.
Einnig er velkomið að hafa samband með vefpósti
á netfangið: solveig@ssnv.is eða hringja í
Sólveigu Olgu í síma 455 6015.
Áherslur Vaxtarsamnings Norðurlands vestra
2014 lúta einkum að uppbyggingu samstarfs
og framgangi rannsókna og vöruþróunar á
eftirfarandi sviðum:
• Ferðaþjónustu og menningartengdum verkefnum.
• Auðlindalíftækni og uppbyggingu þekkingarsetra.
• Matvælum
• Sameiginlegum verkefnum sem unnin eru með
öðrum vaxtarsamningum í landinu og/eða
verkefnum innan þeirra.
Að auki er horft sérstaklega til verkefna sem:
• Vel eru til þess fallin að stuðla að fjölbreyttari
atvinnutækifærum fyrir konur og ungt fólk á
svæðinu.
• Stuðla að nýtingu auðlinda svæðisins til
atvinnusköpunar á Norðurlandi vestra.
• Stuðla að virðisaukningu á sviði
matvælaframleiðslu.
Verkefnin sem styrkt verða þurfa að fela í sér eflingu
starfsemi viðkomandi aðila og vera til þess fallin að fjölga
störfum á Norðurlandi vestra og/eða auka þekkingu
innan svæðisins.
Verkefnin skulu unnin í samstarfi þriggja eða fleiri aðila.
Skilgreina skal hlutverk og framlag hvers samstarfsaðila.
Markmið, framtíðarsýn, framvinda og árangursmat
verkefnanna skal vera vel skilgreint.
Reikningshald vegna verkefnisins þarf að vera aðskilið
öðrum rekstri umsækjenda.
Stuðningur við verkefnið getur verið allt að 50% af
áætluðum heildarkostnaði þess.
Gerður er sérstakur verksamningur um framkvæmd
verkefna sem hljóta stuðning, þar er nánar kveðið á um
framvindu, greiðslur og tímasetningar.
Ekki er heimilt að veita styrki til fjárfestinga í fyrirtækjum
eða til reksturs fyrirtækja eða opinberra stofnana, auk
þess sem stofnkostnaður er ekki styrkhæfur.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel úthlutunar-
reglur og önnur gögn varðandi samninginn.
Baldur tók á móti verðlaununum á
lokahófi AKÍS. MYND: ÚR EINKASAFNI
Frökenin ákvað að í þetta sinn
yrði lax matreiddur, og var ekki
lengi að finna mjög girnilega
uppskrift af Mango Chutney og
pistasíulaxi á blogginu, og ekki
skemmdi það fyrir hversu einföld
uppskriftin var! Beisikklí að kreista
sítrónurnar yfir laxinn, krydda
hann svo með kryddunum úr
uppskriftinni, blanda chutney-inu
saman og pennsla laxinn með því,
strá svo hnetunum yfir og inn í ofn-
undirbúningur tók sirka fimm
mínútur! Kartöflurnar voru ekki
flóknari: soðnar kartöflurnar
skornar í 4 hluta, settar á pönnu
með smjöri og steiktar. Steinseljan
söxuð og sett út á rétt áður en
kartöflurnar eru teknar af pönn-
unni!
Fljótlegar uppskriftir eru eitt af
því vinalegra sem Frökenin hnýtur
um, og þessvegna fannst henni svo
einstaklega gráupplagt að slá tvær
flugur í einu höggi með þessum
rétt: Elda góðann mat og láta það
líta út eins og hún hafi stritað í
eldhúsinu tímunum saman, full-
komin blanda alveg hreint!
Laxinn fór mjög vel í matar-
gesti og þar sem annar gestanna er
yfirhöfuð ekkert sérstaklega hrifin
af bleikum fiski fannst Frökeninni
einstaklega gaman að fylgjast með
gestum sínum dásama matinn í
hástert á meðan þau andvörpuðu
yfir því að lax gæti virkilega verið
svona góður! Daginn eftir fékk
frökenin svo að vita að annar gesta
var ennþá að óskapast yfir ljúf-
metinu og yljaði það hjarta Fröken
Fabjúlöss!
En við hérna í heimshorni
Fabjúlössmans mælum eindregið
með því að matgæðingar læði sér
inn á matarbloggið Ljúfmeti.com
ef hugmyndaskortur er í mat-
seðlagerð!
Matarbloggið sem Frökenin ákvað að
leggjast yfir í þetta skipti er Ljúfmeti
(ljufmeti.com) en þær eru ófáar
uppskriftirnar sem hafa ratað inn í eldhús
Fröken Fabjúlöss rýnir í matarblogg:
Ljúfmeti.com
Pistasíulaxinn sem sló óvænt í gegn!
UMSJÓN
Hrafnhildur Viðarsdóttir
[ frokenfab@feykir.is ]
Fröken Fabjúlössar á undanförnum mánuðum við ómældann
fögnuð viðstaddra þar á meðal hið margfræga Milljón dollara pasta!
Ljúfmeti virðist gefa sig út fyrir fljótlegar en samt sem áður góðar
uppskriftir og finnst Fabjúlöss því einstaklega gaman að kíkja
þangað inn þegar hugmyndir vantar að kvöldmat.
2 laxaflök (1,6 – 2 kg) / safi úr 2-3 sítrónum / paprikuduft
/ salt / pipar / 1 stór krukka sweet mango chutney
/ 1 lítil krukka mango chutney
/ 300 gr grófsaxaðar pistasíuhnetukjarna
Lax með Mango Chutney
og Pistasíum
2-3 msk smjör / 1 kg forsoðnar kartöflur
/ salt / pipar / 2 bollar söxuð steinselja
Steinselju-
kartöflur