Feykir


Feykir - 20.11.2014, Side 7

Feykir - 20.11.2014, Side 7
44/2014 7 KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar hefur tíma til að tékka á jólaseríunum! Spakmæli vikunnar Sannleikurinn er oft svo einfaldur að við afskrifum hann sem barnalegan þvætting. - Dag Hammerskjöld Sudoku Vissirðu að... ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT ... sólin er 330,330 sinnum stærri en Jörðin? ... þriðjungur Ameríkana sturtar niður meðan þeir eru enn sitjandi á klósettinu? ... hægra lungað tekur við meira lofti en það vinstra? ... hákarlar geta fundið lyktina af blóðdropa í 4 km fjarlægð? ... 14. mars er Bjargaðu kónguló dagurinn? FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is Hahahahaha... Sigurður gamli kom í eftirlit hjá lækninum sínum. Lækninum leist ekki meira en svo vel á heilsufar hans og spurði. „Hefur þú ekki fylgt ráðleggingum mínum? Þú manst að ég ráðlagði þér að reykja 5 vindla á dag og alls ekki meira.“ „Jú,“ - sagði vesalings Sigurður og dró við sig svarið. „Vandinn er bara sá, að ég hefi aldrei reykt fyrr.“ Krossgáta SIGRÍÐUR ELFA EYJÓLFSDÓTTIR -Heyrðu, svona 10 dögum fyrir jól. VÉDÍS ELFA TORFADÓTTIR -Ég byrja að skreyta fyrsta sunnudag í aðventu. AUÐBJÖRG ÓSK GUÐJÓNSDÓTTIR -Ég passa mig alltaf á að hafa eitt jólaskraut uppi allt árið svo ég geti sagst vera byrjuð þegar spurningin stingur fyrst upp kollinum. Kjúklingaréttur í karrý og Snickerskaka AÐALRÉTTUR Kjúklingaréttur í karrý 1 poki kjúklingabringur 1 msk karrý ½ krukka Mangó Chutney 1 peli matreiðslurjómi 4 rif hvítlaukur Aðferð: Kjúklingurinn er skorinn í bita og steiktur á pönnu. Þegar kjúklingurinn er tilbúin er hinu hráefninu hellt út á og hrært saman. Látið malla í um 15 mín. Borið fram með hrísgrjónum og brauði. EFTIRRÉTTUR Snickerskaka 4 egg 4,5 dl sykur 2 tsk vanillusykur 8 msk kakó 3 dl hveiti 200 g brætt smjör 100 Pipp súkkulaði með karamellu (má sleppa). Krem: 2 dl salthnetur 200 g rjómasúkkulaði Aðferð: Hita ofninn í 175°C með undir- og yfirhita. Smyrja um 26 sm smelluform að innan. Smjörið brætt og látið kólna. Egg og sykur þeytt saman, því næst er vanillusykri, kakói, bræddu smjöri og hveiti hrært útí. Deiginu er hellt í formið og Pippmolunum stungið í deigið hér og þar. Bakist í miðjum ofni í 30-40 mín. Kakan á að vera blaut í miðjunni. Á meðan kakan er í ofninum er rjómasúkkulaðið brætt yfir vatnsbaði og hnetum bætt útí. MATGÆÐINGAR VIKUNNAR UMSJÓN berglind@feykir.is Matgæðingur vikunnar er Guðrún Björk Elísdóttir á Blönduósi en hún starfar á leikskólanum Barnabæ. Guðrún Björk tók við áskorun frá Ragnheiði Blöndal Benediktsdóttur og Magnúsi Val Ómarssyni í sama bæjarfélagi. Guðrún Björk skorar á Sunnu Hólm Kristjánsdóttur og Brynjar Bjarkason að koma með uppskriftir í Feyki. Guðrún Björk ætlar að bjóða lesendum Feykis upp á uppskrift af kjúklingarétt í karrý og gómsæta Snickersköku. Kremið sett á þegar kakan hefur kólnað dálítið. Kakan er kæld í minnst 2 klst. áður en hún er borinn fram með þeyttum rjóma. Verði ykkur að góðu! BYLGJA FINNSDÓTTIR -Að kvöldi 11. desember þegar frumburðurinn okkar Camilla Líf á afmæli kveikjum við á öllum seríum í gluggum og á húsinu okkar. 18. desember á afmælisdegi ömmu minnar heitinnar Bettýjar set ég upp lítið jólatré með öllu því handgerða dúllerýi sem ég á eftir ömmu. Annað skraut erum við að hengja upp í desember mánuði en jólatréð er aldrei sett upp né skreytt fyrr en að kvöldi Þorláksmessu. Feykir spyr... [SPURT Á FACEBOOK] Hversu snemma byrjar þú að skreyta fyrir jólin? Guðrún Björk matreiðir Sögufélagið Húnvetningur Saga og menning við Húnaflóa Næstkomandi laugardag heldur Sögufélagið Húnvetningur fund í þjóðskjalasafninu þar sem tveir sagnfræðingar hafa framsögu og kynnt verður ný bók Hallgríms Gíslasonar, Klénsmiðurinn á Kjörvogi. Framsögurnar fjalla um Gísla biskup Magnússon og Daða Davísson, fræðimann í Vatnsdal. Jón Torfason sagnfræðingur fjallar um vísitasíu Gísla biskups Magnússonar, þess sem stóð að byggingu dómkirkjunnar á Hólum, sem nú prýðir staðinn og Hjaltadal. Framsaga Unnars Ingvarssonar fjallar um fræðimann í Vatnsdal, Daða hinn fróða Davíðsson á Gilá. Loks verður kynnt ný bók Hallgríms Gíslasonar: Klénsmiðurinn á Kjörvogi, sem er um Þorstein bónda og smið í Kjörvogi, manns með læknishendur, son Þorleifs á Hjallalandi og Skáld-Helgu konu hans. Húnvetningur býður áhugamenn um sagnfræði og menningu við Húnaflóa velkomna á fundinn sem hefst í Þjóðskjalasafninu, við Laugarveg 162, klukkan 14. /KSE

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.