Feykir


Feykir - 20.11.2014, Síða 8

Feykir - 20.11.2014, Síða 8
Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 44 TBL 20. nóvember 2014 34. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Steinunn Jóhannesdóttir skrifar barnabók Jólin hans Hallgríms Sögulegar skáldsögur Steinunnar Jóhannes- dóttur um Tyrkja-Guddu, Reisubók Guðríðar Símonardóttur og um Hallgrím Pétursson; Heimanfylgju, þekkja margir. Nýverið sendi Steinunn frá sér barnabók um Hallgrím, sem hefur að geyma hugljúfa jólasögu, Jólin hans Hallgríms, myndskreytta af Önnu Cynthiu Leplar. Bókin segir frá aðventunni í Gröf á Höfðaströnd árið 1621, þegar Hallgrímur Pétursson er sjö ára gamall. Þótt margt hafi breyst á fjórum öldum er ýmislegt kunnuglegt við jólahald heimilisfólksins í Gröf. Þá eins og nú kviknar ljós í hjörtum mannanna, þótt myrkrið grúfi yfir. /KSE Sykur 1 kg ......................................399 Flórsykur 500 gr. ............................269 Púðursykur dökkur 500 gr. .......... 279 FP rúsínur 250 gr. ...........................179 First class kakó 250 gr ....................298 Royal lyftiduft 200 gr. ....................229 Heima smjörlíki 500 gr. .................198 Lyles golden syrup 454 gr............. 329 First Prise hveiti 2 kg. .....................198 Hagver döðlur 375 gr. ....................159 H-berg kókosmjöl 500 gr. ............. 298 Síríus Konsum 300 gr. .................. 439 Síríus Konsum 200 gr. .................. 339 Síríus Konsum hvítt 100 gr. ............219 Síríus Konsum orange 100 gr. ........159 Mónu súkkulaðidropar 200 gr. .......339 Freyju súkkulaðibitar 56% 200 gr. .....279 Freyju spænir ljós 200 gr. ...............239 Freyju spænir dökkur 200 gr. ........239 Lindu suðusúkkulaði 200 gr. ..........189 Appelsínu rjómasúkkulaði 100 gr. ..119 Nóa hjúpdropar dökkir 150 gr. .......129 Nóa hjúpdropar ljósir 150 gr ..........129 Lindu súkkulaði hvítt 200 gr. ..........298 Nóa lakkrískurl 150 gr. ..................239 Appolo lakkrískurl 150 gr. ..............169 BÖKUNARTILBOÐ Allt í jólabaksturinn! List- og verkgreinasýning nemenda Höfðaskóla á Skagaströnd Skapandi hugsun og nýtni í fyrirrúmi Í Höfðaskóla eru kenndar list- og verkgreinar í lotum og við lok hverrar annar, sem eru þrjár yfir skólaárið, er haldin sýning á afrakstri vinnu nemendanna. Haldin var list- og verkgreinasýning hjá nemendum skólans þann 5. nóvember sl. og má sjá nokkur dæmi um flottan og skapandi afrakstur vinnu nemendanna á meðfylgjandi myndum. Að sögn Elvu Þórisdóttur textílkennara voru þau verkefni sem nemendur í 5. og 6. bekk unnu m.a. galdraveski þar sem nemendur unnu með roð (fiskileður) frá Sjávarleðri, pennaveski unnin úr tómum nammiumbúð- um, ofnhanskar gerðir úr rassvösum af gömlum ónýtum gallabuxum, hirslur undir penna eða eitthvað þessháttar sem gerðar voru úr „einmana“ sokkum og niðursuðu- dósum. Að lokum voru heklaðar eða prjónaðar hitahlífar utan um bolla þar sem garnafgangar og gamlar tölur voru notaðar. „Með þessum verkefnum þjálfuðust nemendur í skapandi hugsun, hönnun og nýtni, æfðu sig í að sauma í saumavél, unnu að útsaumi, lærðu eða þjálfuðu prjón og hekl ásamt því að kynnast mis- munandi textílefnum,“ útskýrir Elva. Þorgerður Þóra Hlynsdóttir kennir smíðar í 1. – 7. bekk og gerðu nemendur hennar standa fyrir bananaknippi, krítartöflur, spegla, krumma, hillu undir hleðslutæki fyrir borvélar, svo eitthvað sé nefnt. Nemendur í heimilisfræði voru einnig að ljúka smiðjum og að sögn Dagnýjar Rósu Úlfarsdóttur heimilis- fræðikennara gerðu nemendur 1.- 2. bekkjar hrökkbrauð, 5.-6. bekkur bjó til gómsætt döðlunammi og hrökkbrauð og unglingastig bakaði bananabrauð, súkkulaðiköku og bjó til döðlunammi. /BÞ

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.