Feykir - 12.02.2015, Blaðsíða 10
10 6/2015
Dúddabeinið verður
varðveitt á Skörðugili
Lið Elvars Einarssonar sigraði Mjúkísmótið 2015
Á laugardaginn fór fram svokallað Mjúkísmót á Holtstjörn í
fyrrum Seyluhreppi í Skagafirði. Mót þetta hefur verið haldið
með nokkuð reglubundnum hætti síðustu 13 árin. Hingað til
hefur það þó ekki ratað mikið í fjölmiðla, enda um
staðbundinn viðburð að ræða þar sem þátttökurétt hafa
landeigendur að tjörninni og liðsmenn þeirra.
við hæfi þar sem keppt er um
svokallað Dúddabein, hannað af
Guðmundi Hermannssyni,
kennt við hestamanninn Dúdda
heitinn á Skörðugili sem var
goðsögn í lifanda lífi.
Að þessu sinni var óvenju
mikið umleikis þar sem í ár eru
liðin 100 ár frá fæðingu Dúdda.
Sjá nánar á Feykir.is. /KSE
Að sögn Ásdísar Sigurjóns-
dóttur á Syðra-Skörðugili ein-
kennist mótið af keppnisgleði
þar sem „bræður munu berjast“
en gleðin og húmorinn eru
aldrei langt undan. Er það vel
Keppendur og þeirra fylgifiskar gæddu sér á góðri súpu áður en mótið
hófst. Það eru húsfreyjurnar Kolla á Ytra-Skörðugili og Ásdís á Syðra-
Skörðugili og tengdadætur Ásdísar sem hafa veg og vanda af þessum
glæsilegu veitingum.
Ásdís hélt utan um skipulagningu mótsins af mikilli röggsemi, tók á
móti gestum og ávarpaði þá. Hér eru Lárus sonur Bjarna Har, kona
hans Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri í Hveragerði og sonur þeirra.
Á Mjúkísmótinu er ýmislegt leyft sem ekki tíðkast á öðrum formlegri
mótum. Þarna er Eyþór Einarsson að bera mútur á Agnar á Miklabæ
sem hefur jafnan verið formaður dómnefndar mótsins. Þess má geta
að Eyþór er nú búsettur í Blönduhlíð en heldur keppnisrétti sínum
á mótinu út á hefðina, enda má segja að hann og Ingimar á Ytra-
Skörðugili hafi verið forsprakkar þess að koma mótinu á koppinn á
sínum tíma.
Það fór vel á með þeim félögum Sigurði Hansen á Kringlumýri og
Einari K. Guðfinnssyni forseta alþingis og fyrrverandi snúningastrák á
Skörðugili. Einar hélt skemmtilega tölu þar sem hann minntist Dúdda
og áranna sem hann dvaldi í sveit á Syðra-Skörðugili hjá honum og
Sigrúnu Júlíusdóttur. Í lok ræðunnar setti hann upp gamla derhúfu
sem hann hafði keypt sérí æsku til að líkjast fyrirmyndinni Dúdda.
Gunnar Rögnvaldsson var kynnir mótsins. Þarna er hann að útbýta ís
frá Kjörís. Fyrirtækið framleiðir Mjúkís og er styrktaraðili mótsins. Einar
Einarsson á Skörðugili heldur á dóttur sinni Eddu Björgu.
Hjónin Einar Gíslason og Ásdís Sigurjónsdóttir á Syðra-Skörðugili
og Einar Kristinn Guðfinnsson skála í minningu Dúdda á Skörðugili.
Mottó Dúdda var að „menn ættu að hafa vit á því að vera í góðu
skapi.“
Eftir mótið var boðið upp á kaffiveitingar, ræðuhöld og söng en
settur var saman sérstakur kór í tilefni mótsins. Sungu þeir nokkur af
uppáhaldslögum Dúdda við góðar undirtektir gesta sem hafa verið
eitthvað á annað hundraðið þegar þarna var komið sögu.
Þessi fimm voru verðlaunuð sem best ríðandi einstaklingar mótsins. F.v.:
Þórainn Eymundsson sem keppti fyrir Eyþór Einarsson, Skapti Stein-
björnsson sem keppti fyrir Elvar Einarsson, Ásdís Ósk Elvarsdóttir Sem
keppti fyrir Elvar Einarsson, Magnús Magnússon á Íbishóli sem keppti fyrir
Eyþór Einarsson og Bjössi á Varmalæk sem keppti fyrir Ingimar.
Þorrablót um allar
koppagrundir
Skagfirðingar og A-Húnvetningar blóta af miklum móð
Um síðustu helgi var fjöldi þorrablóta á Norðurlandi vestra
eins og gengur og gerist á þessum árstíma. Feyki hafa borist
nokkrar myndir frá þessum blótum, en auk þeirra sem
myndirnar sýna mun hafa verið svokallað hreppablót á
Blönduósi um helgina og þorrablót Seyluhrepps í Miðgarði.
/KSE
Leikþáttur á þorrablóti Hóla- og Viðvíkurhrepps. MYND: KLARA HELGADÓTTIR
Kátir gestir á Króksblóti. MYND: SIGRÚN FOSSBERG
Skagstrendingar gerðu óspart grín að Útsvars-liði sínu. MYND JAMES KENNEDY
Prúðbúnir gestir og glæsilegt hlaðborð á Skagaströnd. MYND JAMES KENNEDY