Feykir - 16.04.2015, Blaðsíða 2
2 14/2015
Það er svo magnað þegar maður hittir fólk sem hefur tileinkað
sér jákvætt hugarfar. Það geislar af því orkan og því virðast
allir vegir færir og eftir smá stund í samvist þess finnst manni
það sama eigi við um mann
sjálfan. Með jákvæðni sinni
og opnum hug og hjarta gefur
það af sér orku og eftir stutta
samveru með viðkomandi fer
maður endurnærður og léttur
í lund.
Öll höfum við hitt þessa
manngerð en þekkjum einnig
andstæðu hennar - orkusug-
una. Þann sem á einhverjum
tímapunkti hefur tileinkað
sér neikvætt hugarfar og fests í þeim vítahring. Oft á tíðum
gerir fólk sér ekki grein fyrir skaðanum sem það veldur
sjálfum sér með því að hugsa að glasið sé alltaf hálf tómt -
neikvæðnin er niðurrífandi og smitandi afl, bæði fyrir þá sem
umlykja þá og ekki síst fyrir þá sjálfa. Þó trúi ég því að við
séum ekki föst í viðjum þessara plúsa og mínusa, þetta er val
sem hefst með einni hugsun, svo annarri og svo koll af kolli
þar til þér eru allir vegir færir.
Góðar og jákvæðar stundir.
Berglind Þorsteinsdóttir, ritstjóri
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Þóra Kristín Þórarinsdóttir – thora@nyprent.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Plús og mínus
„Lýðræðið virkjað
sem mest“
Skoða nafnbreytingu á Grunnskóla Húnaþings vestra
Frá síðastliðnu hausti hefur
fræðsluráð Húnaþings vestra
verið að skoða möguleikann á
nafnbreytingu á Grunnskóla
Húnaþings vestra. Málið var
tekið til umræðu á fundi
fræðsluráðs þann 1. apríl.
„Á sl. hausti kom til umræðu
innan fræðsluráðs hvort finna
ætti nýtt nafn á Grunnskóla
Húnaþings vestra í tilefni þess að
skólarnir á Hvammstanga og
Laugarbakka hefðu sameinast á
einum stað. Fræðsluráð fól
skólastjóra Grunnskóla Húna-
þings vestra að kanna áhuga
skólasamfélagsins á nafnbreyt-
ingu og voru undirtektir
jákvæðar meðal nemenda og
starfsmanna skólans sem og
meðal foreldra grunnskóla-
nema,“ segir í tillögu sem sam-
þykkt var á fundinum.
Í tillögunni segir einnig að
kannað hafi verið meðal annarra
sveitarfélaga á landinu þar sem
nafnbreyting grunnskóla hefði
farið fram hvernig staðið hefði
verið að slíkri breytingu. Niður-
staðan var að á öllum stöðum er
lýðræðið virkjað sem mest.
Fræðsluráð gerði tillögu um
verktilhögun en gert er ráð fyrir
að hvort tveggja, tillögu-
Hreinsunarátak á Hofsósi
Eins og Feykir hefur greint frá
hefur verið auglýst hreins-
unarátak á Hofsósi. Er þá
einkum horft til þess að
hreinsa svæðið austan við
frystihús FISK. Hefur eig-
endum járnarusls, bílflaka,
gáma og smárra sem stórra
hluta sem eru lýti á svæðinu
verið gert að fjarlægja eigur
sínar fyrir 30. apríl. Það sem
ekki verður fjarlægt mun
verða flutt til förgunar í maí.
Er verkefnið unnið í sam-
vinnu Sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar og Heilbrigðiseftirlits
Norðurlands vestra. Að sögn
Sigríðar Magnúsdóttur, sem er
formaður umhverfis- og
samgöngunefndar og jafnframt
formaður heilbrigðiseftirlits-
nefndar, var átak af þessu tagi
löngu orðið tímabært á Hofsósi.
„Það eru allir orðnir hundleiðir á
þessu,“ eins og hún komst að
orði í samtali við Feyki í síðustu
viku. „Hofsós er fallegur bær og
rusl sem safnast hefur fyrir í
Sprækur sem lækur
Hafðu samband við Feyki
í síma 455 7176 eða sendu póst á feykir@feykir.is ...allir með!
BioPol, Iceprotein og
FISK Seafood hljóta styrki
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur
samþykkt tillögu úthlutunarnefndar AVS
rannsóknasjóðs í sjávarútvegi um úthlutun
þessa árs. Á meðal styrkþega eru sjávarlíf-
tæknisetrið BioPol ehf. á Skagaströnd,
líftæknifyrirtækið Iceprotein ehf. og útgerðar-
og fiskvinnslufyrirtækið FISK Seafood hf.
Sauðárkróki.
Í fréttatilkynningu frá AVS rannsóknarsjóði
segir að styrkirnir skiptist í fimm styrktarflokka. Þeir
eru fiskeldi, markaðir, líftækni, veiðar og vinnsla og
atvinnuþróun og nýsköpun í sjávarbyggðum. Alls
voru veittir 40 styrkir upp á tæplega 222 milljónir.
Styrkirnir sem fóru til BioPols og Iceproteins voru á
sviði líftækni en FISK Seafoods á sviði veiða og
vinnslu, alls fengu fyrirtækin 17.330 þús.kr.
•BioPol ehf. Halldór Gunnar Ólafsson –
Glycosaminoglycan pruduction from lumpfish –
4.550 þús.kr.
•Iceprotein ehf. Hólmfríður Sveinsdóttir – Athug-
anir á mettandi virkni þorskprótein hýdrólysata –
7.200 þús.kr.
•FISK Seafood hf Gunnlaugur Sighvatsson –
Geymsluþol léttsaltaðra flaka í frosti – 5.580 þús.kr.
Skrá yfir styrkþega og styrki má nálgast á
heimasíðu sjóðsins. /BÞ
Allar tölur
réttar
Vinningsmiðinn keyptur á
N1 Sauðárkróki
Það var heppinn
viðskiptavinur á N1 á
Sauðárkróki sem datt í
lukkupottinn sl.
laugardagskvöld þegar
hann vann tæpar 6,5
milljónir í lottóinu.
Samkvæmt vefsíðu Ís-
lenskrar getspár var hann sá
eini sem var með allar
tölurnar réttar. /BÞ
Flestir orðnir hundleiðir á ruslinu
gegnum tíðina, og reyndar
versnað mikið á fáeinum árum,
er mikið lýti, bæði fyrir íbúa og
ferðafólk.“
Sigríður segir næsta skref að
eigendur komi verðmætum í
burtu og spyrji sig með gagnrýnu
hugarfari hvort um sé að ræða
eitthvað sem þeir ætli að nota.
Síðan verði svæðið hreinsað og
skipulagt. Þá verði komið upp
geymslusvæði, eins og Feykir
hefur greint frá. Einnig þurfi að
huga að rusli sem er innan lóðar
frystihúss FISK, í sérstakri
samvinnu við fyrirtækið.
Að sögn Sigríðar eru mál eins
og þetta hreinsunarátak lengi í
gegnum stjórnsýsluna og
vissulega sé aðgerða þörf á fleiri
stöðum, t.d. í Varmahlíð. „Svona
verkefni verða æ dýrari en um
leið mikilvægari. Það skiptir
okkur öll máli að gera rétt og
gera vel. Ég hvet alla, hvar sem er
í firðinum, til að taka upp rusl og
leggja sitt af mörkum.“ /KSE
innsendingin og kosningin, fari
fram rafrænt. Áætlað er að
kostnaður geti numið allt að kr.
200 þús. /BÞ
Ævisagan Lífsins
skák væntanleg
Anna Pálína Þórðardóttir áttræð
Á laugardaginn fagnaði Anna
Pálína Þórðardóttir á
Sauðárkróki 80 ára afmæli
sínu ásamt vinum og
ættingjum. Boðið var til veislu
í Ljósheimum og þrátt fyrir
aftaka veður var fjölmenni.
Margir afmælisgestanna
skráðu sig á heiðurslista
vegna ævisögu Önnu sem
kemur út innan skamms.
Bókin hefur fengið heitið
Lífsins skák. Anna hefur notið
aðstoðar Þóru Kristjánsdóttur
frá Óslandi við að skrásetja
söguna en ævi Önnu er um
margt óvenjuleg. Bókin er nú í
umbroti hjá Nýprent. Feykir
fjallar nánar um bókina þegar
nær líður útgáfu. /KSE
mt ...
Anna P. Þórðardóttir og frænka hennar
Stella Guðmundsdóttir í Heydal í
Mjóafirði í afmælinu síðastliðinn
laugardag.