Feykir - 16.04.2015, Blaðsíða 4
4 14/2015
Grásleppuvertíðin stendur nú sem hæst eins og meðfylgjandi aflatölur gefa til kynna. Dagana
5. - 11. apríl var 64 tonnum landað á Skagaströnd, rúmum 28 tonnum á Hofsósi og 277 tonnum
á Sauðárkróki. Alls gera þetta ríflega 370 tonn á Norðurlandi vestra. Ekki bárust aflatölur frá
Hvammstanga. /KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Skagaströnd
Addi afi GK Grásleppunet 3.169
Auður SH 94 Grásleppunet 2.918
Bergur Sterki HU 17 Landb.lína 8.522
Dagrún HU 121 Grásleppunet 2.207
Hafrún HU 121 Dragnót 32.915
Ólafur Magnús.HU 54 Handfæri 1.868
Sæbjörg EA 184 Þorskanet 3.142
Sæfari HU 200 Landbeitt lína 6.630
Þorleifur EA 88 Þorskanet 3.013
Alls á Skagaströnd 64.384
Hofsós
Geisli SK 66 Línutrekt 3.710
Skáley SK 32 Grásleppunet 10.008
Sæborg EA 125 Grásleppunet 5.459
Þorgrímur SK 27 Grásleppunet 7.876
Þytur SK 18 Grásleppunet 1.579
Geisli SK 66 Línutrekt 1.737
Alls á Hofsósi 28.632
Sauðárkrókur
Fannar SK 11 Grásleppunet 5.335
Gammur SK 12 Þorskfisknet 3.418
Hafey SK 10 Grásleppunet 6.621
Klakkur Sk 5 Botnvarpa 113.258
Kristín SK 77 Handfæri 460
Málmey SK 1 Botnvarpa 131.549
Nona SK 141 Grásleppunet 4.403
Steini G SK 14 Grásleppunet 5.178
Vinur SK 22 Grásleppunet 2.796
Þorleifur EA 88 Þorskfisknet 1.160
Þytur SK 18 Grásleppunet 3.152
Alls á Sauðárkróki 277.330
Aflatölur 5.-11. apríl 2015
Grásleppuvertíðin stendur sem hæst
Bjarni frá Gretti í Hofsósi, Skarphéðinn frá Flubjörgunarsveitinni í Varmahlíð, Kristín Snæland, Erla Unnur og Sigurbjörg frá
Lionsklúbbnum Björk og loks Baldur frá Skagfirðingasveit. Mynd KSE
Nú skal heimta
hærri laun...
Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga
Vísnakeppni Safnahúss
Skagfirðinga hefur átt sinn
fasta sess í aðdraganda
Sæluviku Skagfirðinga og
notið mikilla vinsælda í
hartnær fjóra áratugi eða
allt frá árinu 1976 er hún
var haldin í fyrsta sinn.
Magnús Bjarnason kennari
á Sauðárkróki gaf hálfa
milljón króna í sérstakan
sjóð til að styrkja og styðja
við bakið á lausavísnagerð
og fyrir tilstyrk sjóðsins var
keppnin haldin um langt
árabil.
Samkvæmt venju mun
Safnahúsið standa fyrir
vísnakeppni þetta árið og
verður hún með sama sniði og
undanfarin ár. Annars vegar
eru hagyrðingar beðnir um að
yrkja um það hvernig hinn
dæmigerði Skagfirðingur
kemur þeim fyrir sjónir sem og
að botna einn eða fleiri af
eftirfarandi fyrripörtum.
Nú skal heimta hærri laun
og hafna vesaldómi.
Dalir, firðir, fjöll og grund
fegurst er á vorin.
Nálgast ellin alla jafnt
enda brellin kelling.
Eltir aftur lægðin lægð
lát er vart að finna.
Sé ég blik við sjónarrönd
Sæluvika kemur.
Á Sæluviku feginn fer
að fanga menninguna.
Veitt verða tvenn peninga-
verðlaun, annars vegar fyrir
bestu Skagfirðingavísuna og
hins vegar fyrir besta botninn.
Ekki er skilyrði að allir
fyrripartar séu botnaðir og
einnig er leyfilegt að senda
einungis Skagfirðingavísu.
Vísur og botnar verða að hafa
borist Safnahúsi Skagfirðinga,
Faxatorgi 550 Sauðárkróki í
síðasta lagi miðvikudaginn 22.
apríl nk. Nauðsynlegt er að
vísurnar séu merktar dulnefni,
en rétt nafn og símanúmer
fylgi með í lokuðu umslagi.
Einnig er hægt að senda vísur
og botna í tölvupósti á net-
fangið bokasafn@skagafjordur.
is og verður þá viðkomandi
höfundi gefið dulnefni áður en
vísunar fara til dómnefndar. /PF
150 þúsund til hverrar sveitar
Svakalegt show í Sæluviku
Lionskonur styrkja þrjá björgunarsveitir
Tónleikar í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki
Á síðasta fundi Lionsklúbbs-ins Bjarkar á
Sauðárkróki voru afhentir styrkir til
björgunarsveitanna í Skagafirði, að upphæði
150 þúsund til hverrar sveitar. Lionskonur fóru
fögrum orðum um starfsemi sveitanna og
sögðu þær vel að styrkjunum komnar.
Um er að ræða Flugbjörgunarsveitina í Varma-
hlíð, Björgunarsveitina Gretti á Hofsósi og
Skagfirðingasveit á Sauðárkróki. Þess má geta að
Björgunarsveitin Grettir fagnaði 80 ára afmæli sínu
á síðasta ári og Skagfirðingasveit fagnar 50 ára
afmæli sínu þann 1. maí næstkomandi, en forveri
sveitarinnar var slysavarnardeild. Af því tilefni
verður opið hús í Sveinsbúð. Allir eru velkomnir að
líta við af því tilefni, en þá verði tæki og tól
sveitarinnar til sýnis. /KSE
Sæluvikutónleikar verða
haldnir í Íþróttahúsinu á
Sauðárkróki þann 1. maí nk.
Nú eru fjögur ár liðin frá því
að hin vinsæla Dægurlaga-
keppni var á Sæluviku og nú
hefur verið ákveðið að blása
til stórtónleika á ný – þar sem
haldið verður í hefðina.
„Ég hef verið að skipuleggja
Gæruna tónlistarhátíð og mér
fannst tilvalið að gera eitthvað
meira í Skagafirði. Nú eru komin
fjögur ár síðan eitthvað var gert í
Íþróttahúsinu í Sæluvikunni, ég
ákvað því að taka slaginn og setja
upp Sæluvikutónleika,“ sagði
Adam Smári Hermannsson
skipuleggjandi tónleikana í sam-
tali við Feyki. Á tónleikunum
stígur stórskotalið söngvara á
svið og flytur íslenskar dægur-
lagaperlur, þau Jógvan Hansen,
Eurovisionfarinn Alma Rut úr
Vestanáttinni, Rúnar Örn úr
Sixties og Birgitta Haukdal. „Við
förum alveg töluvert aftur í
tímann með íslensk dægurlög.
Birgitta Haukdal ætlar t.d. að
taka „Ort í sandinn“ eftir Geir-
mund Valtýsson, hún sagðist
ekki vera búin að heyra það lag í
20 ár og vildi endilega taka það,“
sagði Adam Smári. Heimamenn
munu heldur ekki að láta sig
vanta og má nefna Róbert
Óttarsson, Sigvalda Gunnarsson
og Kristján Gíslason.
Adam Smári segir allt stefna í
svakalegt „show“, hann eigi von
á 40 feta gám fullum af búnaði til
að gera tónleikana sem glæsi-
legasta. Meðal þess er stór LED
skjár, sem m.a. hefur verið
notaður í Ísland got Talent á Stöð
2, og verður lifandi grafík á
skjánum meðan á tónleikunum
stendur sem gerir enn meira úr
„show-inu“, segir Adam Smári.
Þannig að það verður ekki bara
ljósabúnaður sem mun gera
þessa upplifun stórkostlega.
Adam Smári vonast til að sjá
sem flesta koma og skemmta sér
á tónleikunum og að þetta verði
upphafið að árvissum viðburði í
Sæluviku Skagfirðinga. Miða er
hægt að nálgast í Blóma- og
gjafabúðinni á Sauðárkróki og á
Tix.is.“ /BÞ
Herdís formaður stjórnar
Byggðastofnun
Á ársfundi Byggðastofnunar
sem haldinn var í
Vestmannaeyjum 10. apríl sl.
var greint frá því að Herdís
Sæmundardóttir á Sauðár-
króki hefði verið skipuð
formaður stjórnar Byggða-
stofnunar. Herdís, sem er
fræðslustjóri Sveitarfélagsins
Skagafjarðar, hefur áður
gegn embættinu, á árunum
2003-2008.
Samkvæmt 3. gr. laga nr.
106/1999 um Byggðastofnun
skipar sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra sjö menn í
stjórn stofnunarinnar og jafn-
marga til vara til eins árs í senn.
Sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra skipar jafnframt for-
mann og varaformann. Herdís
tekur við sætinu af Þóroddi
Bjarnasyni. Núverandi stjórn
skipa eftirfarandi: Herdís Sæ-
mundardóttir formaður, Einar E.
Einarsson varaformaður, Valdi-
mar Hafsteinsson, Ásthildur
Sturludóttir, Karl Björnsson,
Oddný María Gunnarsdóttir og
Sigríður Jóhannesdóttir. /KSE
Datt úr keppni í Útsvari
Lið Skagafjarðar
Skagfirðingar biðu lægri hlut fyrir Fljótsdalshéraði í Útsvari
sem lauk í beinni útsendingu á RÚV sl. föstudagskvöld.
Fljótsdalshérað tók forystu strax í upphafi þáttarins og hélt
henni til loka og lauk viðureigninni 68-36.
Lið Skagfirðinga skipa þau Guðný Zöega, Guðrún Rögn-
valdardóttir og Vilhjálmur Egilsson. Lið Skagafjarðar hafði náð
þeim frábæra árangri að komast í undanúrslit, líkt og fyrir þremur
árum, en féll aftur út fyrir frábæru liði Fljótsdalshéraðs. /KSE