Feykir - 16.06.2015, Page 3
23/2015 3
Mælifellskirkja 90 ára
Sunnudaginn 7. júní sl. var
minnst 90 ára afmælis
Mælifellskirkju í Skagafirði, en
kirkjan var vígð 7. júní 1925.
Hátíðarmessa var í kirkjunni
kl. 14. Sr. María Ágústsdóttir
frá Mælifelli prédikaði og
fléttaði mál sitt bernskuminn-
ingum sínum þaðan, en faðir
hennar, sr. Ágúst Sigurðsson,
þjónaði sem sóknarprestur á
Mælifelli 1972-1983.
Sóknarprestur, sr. Dalla Þórð-
ardóttir, þjónaði fyrir altari ásamt
sr. Maríu. Helga Rós Indriðadóttir
söng einsöng, og söng hún sálm
eftir sr. Tryggva H. Kvaran, prest
á Mælifelli: Yfir byggð og ból.
AÐSENT ÓLAFUR HALLGRÍMSSON SKRIFAR
Viðstaddir tóku undir við söng
og organisti var Thomas
Higgerson. Að lokinni athöfn
bauð sóknarnefnd til kaffi-
samsætis í Árgarði. Þar flutti sr.
Ólafur Þ. Hallgrímsson, fyrrver-
andi sóknarprestur, erindi um
kirkju og stað.
Einnig tók til máls frú Guðrún
Ásgeirsdóttir, sem rifjaði upp
ýmislegt frá árunum liðnu á
Mælifelli. Hrefna Sigríður Bjart-
marsdóttir, Kristjánssonar, prests
á Mælifelli, afhenti kirkjunni að
gjöf frá sér og systkinum sínum
stóra mynd af Mælifelli 1946, er
foreldrar hennar, sr. Bjartmar og
frú Hrefna Magnúsdóttir, komu
þangað. Verður myndinni valinn
staður í kirkjunni. Um 50 manns
lögðu leið sína heim að Mælifelli
þennan dag til að samfagna
þessum áfanga.
Mælifellskirkja er fagurt guðs-
hús og vel búin myndverki. Þar
ber hæst altaristöfluna, hina
Mikilvægt tengslanet
Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði
Félag ferðaþjónustunnar í
Skagafirði er hugsað sem
vettvangur fyrir samstarf og
tengslanet ferðaþjónustu-
fyrirtækjanna í Skagafirði.
Telur það um 45 félags-
menn. Félagið vinnur að
ýmsum sameiginlegum
málefnum, svo sem
kynningarmálum og
námskeiðahaldi. Um þessar
mundir er svo starfandi
sérstakur verkefnahópur um
vetrarferðaþjónustu.
„Tilgangurinn er að vera
vettvangur fyrir samstarf og
tengslanet ferðaþjónustufyrir-
tækjanna í Skagafirði, til að
kynnast öðrum fyrirtækjum og
þeirra vöruframboði, til að
miðla þekkingu og til að vinna
að sameiginlegri kynningu
svæðisins með bæklingum, á
sýningum og til dæmis með
móttöku blaðamanna og
ferðasöluaðila,“ segir Evelyn Ýr
Kuhne, stjórnarmaður í
félaginu.
Félagið heldur tvo til fjóra
fundi á ári þar sem málefni
ferðaþjónustunnar í Skagafirði
eru rædd og sameiginleg
verkefni ákveðin og kynnt.
„Stundum fáum við fyrirlestra
til okkar og fræðumst um
ýmislegt gagnlegt tengt
ferðaþjónustu. Félagið bíður
félögum upp á námskeið, sem
oft eru haldin í samvinnu við
Farskólann, en nú á vordögum
eru einmitt haldin þjónustu-
og þrifanámskeið.
Haustferðin er fastur liður í
starfsemi félagsins en þá er
farið í sameiginlega ferð um
Skagafjörð til að heimsækja
félaga og fyrirtæki þeirra.
„Þessar ferðir eru mjög
skemmtilegar, fræðandi og gefa
okkur tækifæri til að kynnast
betur. Það er mikilvægt að eiga
gott tengslanet og vinna saman
að ýmsum málefnum,“ segir
Evelyn.
Um þessar mundir er
starfandi sérstakur verkefna-
hópur til eflingar á vetrarferða-
þjónustu í Skagafirði. Vinnur
hann að kynningarefni sem
notað verður á ferðasýningum
næsta haust og vetur. Að sögn
Evelyn hlaut félagið mikil-
vægan styrk úr Vaxtarsamningi
Norðurlands vestra til að vinna
að því verkefni.
Félagið er með hóp á
facebook og póstlista. Í stjórn
félagsins sitja þrír félagar, auk
varamanns. Formaður þess er
Svanhildur Pálsdóttir, Hótel
Varmahlíð. Til að gerast félagi
þarf ekkert nema hafa samband
við hana gegnum netfangið
svanhild@hotelvarmahlid.is og
eru nýjir félagar eru hjartanlega
velkomnir. /KSE
Ég vil þakka Matthildi
Birgisdóttur fyrir þessa
áskorun. Við fjölskyldan
ákváðum að flytja aftur
út á land fyrir tíu árum
síðan eftir að hafa
verið nokkur góð ár í
Reykjavík. Ég og konan
mín erum bæði frá
Bolungarvík þannig að
við þekktum vel þá kosti
að búa í litlu samfélagi
í mikilli nálægð við
fallega náttúru. Við
erum mjög dugleg að
fara í gönguferðir í
bænum okkar og næsta
nágrenni og eigum ótal
uppáhaldsstaði.
Mig langar að fjalla
um útivistar- og
afþreyingarmöguleika á
Blönduósi fyrir fjölskyldur
á ferðalagi. Það sem mig
langar þá að skrifa um
tengist því að ég fæ oft
sömu spurninguna frá
vinum, kunningjum og
reyndar viðskiptavinum
líka, þar sem ég starfa
sem forstöðumaður í
Íþróttamiðstöðinni á
Blönduósi, sem er: „Hvað
er eiginlega hægt að gera
á Blönduósi?“.
Einn vinur minn sem er
mikill húmoristi sagði einu
sinni, „stoppar maður ekki
bara á bensínsjoppunni,
skóflar í sig, prumpar og
heldur áfram til Akureyrar“.
Mig langar að leiðrétta
þennan miskilning og
benda á hvað er hægt að
gera sér til afþreyingar á
Blönduósi og þá svoldið
fjölskyldumiðað.
Blönduós er algjör
útivistarparadís, fallegar
gönguleiðir, mikið fuglalíf
og klárlega staður
veiðimannsins þar
sem margar þekktustu
laxveiðiár landsins eru
í næsta nágrenni og
veiðivötnin fjölmörg.
Sólsetrin eru stórkostleg
og sjást svo fallega ef horft
er frá ósi Blöndu og út á
Húnaflóann.
Það eru margir möguleikar
fyrir þá sem vilja stoppa í
lengri tíma en mig langar
að koma með hugmyndir
ef fjölskyldan ætlar að
stoppa í u.þ.b. þrjá tíma á
Blönduósi. Þá langar mig
að mæla með þremum
fjölskyldustoppum sem er
hægt er að stokka upp að
sjálfsögðu:
Fjölskyldustopp númer 1
Í fyrstu þá mæli ég
með gönguferð í Hrútey
sem er eyja sem klíýur
Blöndu í tvennt. Í eyjunni
er mikið fuglalíf og
fallegar gönguleiðir í
ævintýralegu umhverfi.
Eftir gönguferðina er komið
að sundferðinni en hér
er glæsileg útisundlaug
og aðstaðan þar eins og
best verður á kosið fyrir
fjölskyldufólk; heitir pottar,
vaðlaug og rennibrautir.
Þannig að það er bæði
hægt að fá útrás og ná
góðri slökun. Að lokum
eftir sundferðina þegar allir
eru orðnir svangir er farið
á Ömmukaffi og fengið sér
hressingu en Ömmukaffi
er krúttlegt kaffihús við
sundlaugina í gulu húsi
sem opnaði í maí.
Fjölskyldustopp númer 2
(fyrir þá sem eru að koma
t.d. frá Reykjavík).
Gönguferð upp með Giljá
sem er rétt vestan við
Blönduós sem hefst hjá
bílaplani móts við bæinn
Stóru-Giljá. Gangan er
einn kílómetra upp með
ánni og svo til baka aftur.
Þetta er skemmtileg
fjölskylduganga meðfram
fallegum gljúfrum og
endar við Efstafoss. Eftir
gönguferðina er tilvalið
að koma við á Laxsetrinu
á Blönduósi og skoða
fróðlega sýningu, lifandi
fiska og barnahorn. Að því
loknu er tilvalið að borða á
veitingastaðnum Pottinum
sem er mjög barnvænn.
Fjölskyldustopp númer 3
Hestaferð hjá hesta-
leigunni Galsa. Ferðin sem
ég ætla mæla með tekur
1 ½ klst. Einnig er hægt
að láta teyma undir í gerði
sem er tilvalið fyrir þau
yngstu, það tekur um 20
mínútur. Eftir hestaferð er
tilvalið að leggja bílnum
hjá Kvennaskólanum
og fara í gönguferð
eftir Bakkastígnum,
yfir Blöndubrúna og
ganga vestan megin
við ánna að ósnum. Í
fuglaskoðunarhúsinu
á Einarsnesi eru góðar
upplýsingar um fuglana á
svæðinu og flott aðstaða
til að taka myndir og
fyrir sjónauka líka. Góð
nestisaðstaða er við
fuglahúsið, þannig að
endilega taka nesti með.
- - - - -
Ég skora næst á
Himma löggu (Hilmar Þór
Hilmarsson) að stíga næst
fram og hamra lyklaborðið
góða.
Róbert Daníel Jónsson á Blönduósi skrifar
Nálægðin við náttúruna
ÁSKORENDAPENNINN
UMSJÓN kristin@feykir.is
stóru, er sýnir Fjallræðuna og
Magnús Jónsson, guðfræðipró-
fessor, málaði og gaf kirkjunni.
Einnig prédikunarstólinn, en á
honum eru myndir af guðspjalla-
mönnunum fjórum og Páli post-
ula, málaðar af Hauki Stefánssyni,
listmálara á Akureyri.
Á hliðarveggjum eru inn-
römmuð slitur af altarisklæði, er
bjargað var úr kirkjunni, er brann
á Mælifelli 21. sept. 1921, ásamt
bæjarhúsum. Klæðið saumaði
Elinborg Pétursdóttir, prestsfrú á
Mælifelli, og er ártalið 1857 á
klæðinu.
Mælifellskirkja er steinsteypt
hús og klædd með álklæðningu.
Hún tekur um 60 manns í sæti.
Kirkjuna teiknaði Guðjón
Samúelsson, en yfirsmiður var
Ólafur Kristjánsson frá Ábæ.
Ólafur Hallgrímsson