Feykir - 16.06.2015, Blaðsíða 7
23/2015 7
EFTIRRÉTTUR
Sænsk Kladdkaka með
karamellukremi
100 gr smjör
2 egg
3 dl sykur
1 ½ dl hveiti
5 msk kakó
2 tsk vanillusykur
hnífsoddur salt
Aðferð: Þessi kaka slær alltaf í
gegn enda þrusugóð. Tilvalin sem
eftirréttur þar sem ein sneið er
alveg nóg, svo sæt er hún.
Bakaraofn hitaður í 175°C, undir-
og yfirhita. Smjörið brætt. Restin af
hráefninu sett í skál og brædda
smjörinu bætt út, hrært þar til að
deigið hefur blandast vel saman.
Bakað í smurðu lausbotna formi
(um 22 – 24 sm) eða sílikonformi
við 175°C í 20 mín. Kökunni leyft
að kólna í um 10 mín.
Karamellukrem:
2 dl rjómi
1 dl sykur
1 dl sýróp
100 gr suðusúkkulaði
100 gr smjör
Aðferð: Öll hráefnin, fyrir utan
smjörið, sett í pott. Hrært í
blöndunni og suðan látin koma
upp. Blandan látin malla þar til að
hún þykknar, tekur um 10 mín.,
gott að hræra í svolítið á meðan. Þá
er potturinn tekin af hellunni og
smjörinu bætt út í. Hrært þar til allt
hefur blandast vel saman. Gott er
að láta kremið standa um stund til
þess að það verði aðeins þykkara.
Þá er kreminu hellt yfir kökuna og
hún látin kólna í ísskáp í um 2-3
tíma. Borin fram með þeyttum
rjóma og/eða ís, og jafnvel góðri
blöndu af berjum.
Verði ykkur að góðu!
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar ætti að fara að
hafa upp á lummu uppskriftunum sínum...
Spakmæli vikunnar
Ef lífið er óhamingjuríkt þá er erfitt að lifa. Ef lífið er hamingjuríkt þá
er hræðilegt að deyja. En hvort tveggja kemur út á eitt.
– La Bruyére
Sudoku
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... blóm vaxa hraðar ef þau heyra tónlist.
... það sem fólk hræðist mest eru trúðar og lofthræðsla.
... meira en 50% af heiminum hefur aldrei talað í síma.
... karlmenn eyða heilu ári í að glápa á konur sem þeir þekkja ekki.
... þú notar 17 vöðva þegar þú brosir.
... svín geta ekki horft upp í loftið.
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Hahahahaha... Roskin hjón úr Reykjavík skruppu í bíltúr norður á
Blönduós. Þau stoppuðu í Staðaskála og fengu að borða. Síðan héldu þau
ferðinni áfram. Rétt áður en þau komu í Austur-Húnavatnssýslu áttar konan
sig á því að hún hafði gleymt gleraugunum sínum í Staðaskála. Maðurinn
fussaði og sveiaði yfir gleymsku og kæruleysi kvenna en snéri þó við til að ná
í gleraugun. Þegar hjónin komu til baka í Staðaskála og konan var að fara út
úr bílnum, sagði maðurinn hálfargur: „Fyrst að þú ert að fara þarna inn hvort
sem er, þá getur þú alveg náð í hattinn minn líka!“
Krossgáta
STEFÁN ÁSGRÍMUR
SVERRISSON
Ég ætla að vera í sumarbústað í
Varmahlíð og kíkja á Jónsmessuhátíð
á Hofsósi.
Bruchetta, kjúklingur
og sænsk Kladdkaka
FORRÉTTUR
Bruschetta fyrir 4
2 snittubrauð
ólífuolía
salt
4 tómatar
1 rauðlaukur
hnefi af ferskum Basil
2 kúlur mozzarella ostur
Aðferð: Þessi réttur er einnig
tilvalinn sem stakur réttur þegar
gesti ber að garði. Snittubrauð
skorin niður og pensluð báðum
megin með ólífuolíu, salti stráð yfir
og sett í 180°C heitan ofn og látið
bakast aðeins eða þar til brauðið er
farið að brúnast og orðið stökkt.
Tómatar, rauðlaukur og basil
skorið smátt og sett í skál. 1 msk af
ólífuolíu bætt við tómatablönduna
og saltið eftir smekk. Mozzarella
osturinn skorinn í þunnar sneiðar.
Ein sneið af osti er sett á brauð og
tómatamaukið þar ofan á.
AÐALRÉTTUR
Hunangs- og soja-
gljáður kjúklingur
fyrir 4
5 kjúklingabringur
2 msk soja sósa
3 msk hunang (akasíu)
1 msk ólífuolía
100 gr kasjúhnetur
Aðferð: Þessi er afar einfaldur og
fljótlegt að elda. Með honum er
gott að bera fram hýðishrísgrjón
ásamt helling af fersku salati.
Blandið sojasósu og hunangi í
skál og hrærið vel saman. Skerið
kjúklingabringur í bita og setjið út
í blönduna, látið standa í 5 mín.
Hitið olíu á pönnu og steikið
kjúklinginn í við meðalhita í 4-5
mínútur. Hækkið hitann og steikið
áfram í 3-5 mín. Ef það er mikill
vökvi á pönnunni látið hann þá
gufa upp á meðan þið steikið. Setjið
kasjúhneturnar út á pönnuna og
látið karamellast á pönnunni.
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
Matgæðingar vikunnar eru Sæunn
Vigdís Sigvaldadóttir og Brynjar
Már Eðvaldsson. Þau bjóða
lesendum upp á girnilegar uppskriftir af Bruschetta í forrétt, Hunangs-
og sojagljáðum kjúkling og sænska Kladdköku með karamellukremi í
eftirrétt. Þau segjast vera á Laugarbakka í fæðingarorlofi næsta árið en
búa á Egilsstöðum þar sem Sæunn vinnur sem ráðgjafaþroskaþjálfi og
Brynjar vann hjá Alcoa. „Við skorum á Stellu og Ægi á Jörfa að koma með
uppskrift af einhverju góðgæti.“
Feykir spyr...
[ spurt á Facebook ]
Hvað ætlar
þú að gera á
Jónsmessunni?
Brynjar Már og Sæunn Vigdís matreiða
M
YN
D:
Ú
R
EI
NK
AS
AF
NI
UMSJÓN berglind@feykir.is
KRISTÍN BJÖRG
RAGNARSDÓTTIR
Ég ætla meðal annars með yngsta
soninn á Smábæjarleikana á
Blönduósi, fótboltamót, en svo
kemur í ljós hvort maður gerir
eitthvað fleira. ...Og jú, ekki má
gleyma fertugsafmælinu hjá vinkonu.
Heilsuveisla í heita pottinum.
HRÖNN BRANDSDÓTTIR
Ég verð á ættarmóti í Vík í Mýrdal.
SIGURLAUG DÓRA
INGIMUNDARDÓTTIR
-Vinna, svo er aldrei að vita nema
maður kíki á Jónsmessuhátíð á
Hofsósi.