Feykir - 16.06.2015, Page 5
23/2015 5
Dráttarvélaakstur og stígvélakast á
meðal keppnisgreina
Von á um 400 keppendum á Landsmót UMFÍ 50+ á Blönduósi
Landsmót UMFÍ 50+ verður
að þessu sinni haldið á
Blönduósi dagana 26. til 28.
júní. Þetta er fimmta sinn
sem mótið er haldið. Allir 50
ára og eldri geta tekið þátt á
mótinu, alveg óháð hvort þeir
séu í einhverju íþróttafélagi
eða ekki. Feykir náði tali af
Ómari Braga Stefánssyni,
framkvæmdastjóra mótsins.
„Fyrsta mótið var haldið árið
2011 á Hvammstanga. Ákveðið
var að leggja af stað í þennan
leiðangur þar sem fjölmargir
einstaklingar 50 ára og eldri
stunda íþróttir og almenna
líkamsrækt og eru mun betur á
sig komnir en áður. Okkur
fannst því tilvalið að prófa
eitthvað svona, fá þennan hóp til
að koma saman, keppa í íþrótt-
um og skemmta sér í góðra vina
hópi,“ segir Ómar Bragi. Þátttaka
á landsmóti 50 ára og eldri hefur
verið nokkuð góð síðustu ár en
góðir hlutir gerast hægt. Í ár
vonar Ómar Bragi að keppendur
verði um 400 talsins.
Á Blönduósi verður hægt að
keppa í rétt innan við 20 greinum
en þær eru hestaíþróttir, frjálsar,
Margar hendur vinna létt verk
Landsbankamótið á Sauðárkróki
Landabankamótið fer fram
á Sauðárkróki í tíunda sinn
helgina 27. – 28. júní nk.
Að mótinu standa
knattspyrnudeild Tindastóls,
Landsbankinn, foreldrar
iðkenda og fjölda sjálfboða-
liða. Að sögn Ingva Hrann-
ars Ómarssonar mótsstjóra
hefur mótshaldið gengið vel
undanfarin ár og markar sú
mikla ásókn þá velgengni.
„Það er þó ljóst að ekki er
hægt að halda svona mót án
mikils stuðnings bæjarbúa
sem vinna hin ýmsu störf, m.a.
dómgæslu, að skammta mat,
afgreiða í sjoppunni, standa
vaktir í gistingunni, baka kök-
ur fyrir fararstjórafundinn á
laugardegi, ganga frá í lok móts
svo eitthvað sé nefnt,“ sagði
Ingvi Hrannar í samtali við
Feyki. Að jafnaði hafa þátt-
takendur verið um 300-500 en
í ár eru þeir rétt tæplega 1000
og með hverjum iðkanda má
búast við 1-4 aðstandendum.
Mótið verður með hefð-
bundnu sniði, liðin koma í
bæinn á föstudegi og á
laugardegi hefjast svo leikir
snemma morguns. Um hádegi
er grillveisla og leikir halda
áfram eftir hádegi. Að loknum
leikjum verður kvöldmatur í
Íþróttahúsinu og kvöldvaka á
sama stað um kl. 20:30 þar sem
m.a. Magni mun skemmta. Á
sunnudegi hefjast leikir kl. 8:00
og eru frameftir degi með
Pizza-pásu í hádeginu. Um kl.
15 eru svo mótsslit og þá
verður hafist handa við að
ganga frá.
Aðspurður um hver sé upp-
skriftin af hinu fullkomna
móti svarar Ingvi Hrannar að
hún sé gott veður og góður
hópur fólks sem hjálpast að við
hin ýmsu störf. Þá gangi allt
upp. „Margar hendur vinna
létt verk og gott mót gerir það
að verkum að við getum áfram
haldið úti góðu starfi allt árið
og stutt unga fólkið okkar í
íþrótta-og tómstundastarfi. Að
lokum vil ég óska eftir fólki á
öllum aldri, hvort sem það á
börn í fótbolta eða ekki, að
aðstoða okkur við ýmis störf,
oftast svona 2-4 tíma vaktir.
Þeir sem hafa tök á því að
leggja sitt að mörkum við
dómgæslu, að skammta mat,
standa vaktir í skólunum við
gistingu svo eitthvað sé nefnt.“
Áhugasamir geta haft
samband í síma 660-4684 eða
sent tölvupóst á netfangið
ingvihrannar@me.com. /BÞ
Frá Landsmóti UMFÍ 50+ á Húsavík í fyrra.
Óðinshani MYND: SNORRI E.
www.glerborg.is
VIÐ ERUM Á SVÆÐINU
Glerborg býður upp á góða þjónustu og fjölbreytt
vöruúrval. Í gluggum má sérstaklega benda á
timburglugga, álklædda timburglugga, álglugga
og viðhaldsfría plastglugga sem hafa notið mikilla
vinsælda undanfarið.
Glerborg býður líka upp á gler í miklu úrvali,
t.d tvöfalt gler og hert gler, sem er allt að fimm
sinnum sterkara en venjulegt flotgler. Herta glerið
hentar vel á svalir, sem stigahandrið, skilrúm,
glerhurð og fl. Einnig bjóðum við mikið úrval
spegla og sturtuklefa.
Ykkur er velkomið að hafa samband,
ef spurningar vakna, við sölumenn
Glerborgar sem verða á staðnum:
Sigurjón, sími 660 3897
Halldór, sími 660 3898
Við erum
sérfræðingar
í gluggum og gleri.
HVAR
HVENÆR
/
Hlaðan Kaffihús, Hvammstangi
Mánudagur 22. júní kl. 11.00-17.00
HVAR
HVENÆR
/
Potturinn Resturant, Blönduós
Þriðjudagur 23. júní kl. 11.00-17.00
HVAR
HVENÆR
/
Kaffi Krókur, Sauðárkrókur
Miðvikudagur 24. júní kl. 11.00-17.00
SÉRTILBOÐ
VERÐA Í BOÐI
MEÐAN Á
KYNNINGU
STENDUR
Dagana 22.-24. júní verðum við á ferðalagi um Norðurland vestra. Verið velkomin
að kíkja á okkur og fá faglega ráðgjöf um val á gluggum, gleri eða annarri
gæðavöru frá Glerborg.
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
boccia, bridds, dráttarvélaakstur,
golf, júdó, línudans, lombert,
pútt, ringó, skák, skotfimi,
starfshlaup, dalahlaup, sund,
pönnubökubakstur og stígvéla-
kast. „Boccia hefur verið mjög
vinsæl grein en svo eru sund og
frjálsar einnig vinsælar greinar.
Við vonumst einnig eftir góðri
þátttöku í bridds og golfinu sem
og auðvitað í öllum keppnisgrein-
unum,“ segir Ómar Bragi.
Landsmótið er góð skemmtun
fyrir alla keppendur sem og
áhorfendur en það verður að
sjálfsögðu eitthvað annað en
keppnin sjálf til afþreyingar.
„Já,við erum að leggja meiri vigt
á afþreyingarþáttinn þar sem ég
tel að félagslegi þátturinn skipi
ekki minni sess en keppnin sjálf.
Það verða ýmsar skemmtilegar
nýjungar á mótinu sem við
vonum að mótsgestir kunni að
meta. Ég vona að Skagfirðingar
fjölmenni á þetta mót sem aldrei
fyrr enda ekki langt að fara fyrir
þá. Svo þetta sem allir velta fyrir
sér þá vona ég auðvitað að við
fáum gott veður þessa helgi - það
skiptir svo miklu máli í þessu
öllu. Og í lokin vil ég þakka
Húnvetningum, þeim sem
komið hafa að undirbúningnum,
fyrir þeirra vinnu og gott
samstarf,“ segir Ómar að lokum.
/ÞKÞ