Feykir - 25.06.2015, Síða 4
4 24/2015
Opið Íþróttamót Þyts í flottu veðri
Skapti sigursæll á Vormóti
HESTAR
Dagana 14. -20. júní var 259 tonnum landað á Skagaströnd, tæpum 13 tonnum á Hofsósi, hátt
í átta tonnum á Hvammstanga og rúmum 991 tonnum á Sauðárkróki, þar af voru rúm 782
tonn af rækju úr Green Frost og einnig kom Málmey að landi með um 150 tonn eftir túrinn.
Alls gera þetta um 1.271 tonn á Norðurlandi vestra. /KSE
Aflatölur 14.-20. júní
Málmey með 150 tonn eftir túrinn
Opna íþróttamót Þyts var
haldið á Hvammstanga 13.
júní sl. Á heimasíðu
Hestamannafélagsins Þyts
segir að sterkir hestar hafi
mætt til leiks í flestum
greinum – veðrið var flott og
allir skemmtu sér vel.
Það var Elvar Logi Friðriksson
sem sigraði töltið T1 á Byr frá
Grafarkoti og í T2 bar Fanney
Dögg Indriðadóttir sigur úr
býtum á Brúney frá Grafarkoti.
Bjarni Jónasson sigraði í
fjórgangi V1 á Hafrúnu frá Ytra-
Vallholti en í V5 var Elvar Logi
Friðriksson og Auðlegð frá
Grafarkoti í 1. sæti. Bjarni
Jónasson og Dynur frá Dals-
mynni voru í 1. sæti í fimmgang
F1 og Jóhann Magnússon sigraði
gæðingaskeiðið á Sjöund frá
Bessastöðum. Í 100 metra
flugskeiði sigraði Kristófer
Smári Gunnarsson á Kofra frá
Efri-Þverá.
Ítarleg úrslit mótsins má finna
á Feyki.is undir Hestar. /BÞ
Vormót og sameiginlegt
félagsmót hestamanna-
félaganna í Skagafirði
Léttfeta, Stíganda og Svaða
fór fram á Vindheimamelum
helgina 13.- 14. júní. Keppt
var í barnaflokk, unglinga-
flokk, ungmennaflokk,
A-flokk og B-flokk.
Samkvæmt fréttatilkynningu
var það Skapti Steinbjörnsson á
Hafsteinsstöðum sem vann
bæði A og B flokk Vormótsins.
Bjarmi frá Enni og Jón Helgi
Sigurgeirsson voru í 1. sæti í A-
flokk Stíganda, Sleipnir frá Barði
og Laufey Rún Sveinsdóttir í
A-flokk Svaða en Grágás frá
Hafsteinsstöðum og Skapti
Steinbjörnsson hjá Léttfeta.
Ingólfur Pálmason og Orka frá
Stóru-Hildisey voru valin
glæsilegasta par mótsins.
Ítarleg úrslit má finna á Feyki.is
undir Hestar. /BÞ
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 7.937
Alls á Hvammstanga 7.937
SKAGASTRÖND
Addi afi GK 97 Landbeitt lína 21.170
Alda HU 112 Grásleppunet 21.147
Auður SH 94 Handfæri 1.553
Ásdís HU 24 Handfæri 2.303
Ásdís ÓF 250 Handfæri 826
Bergur Sterki HU 17 Lína 6.666
Bergur Vigfús GK 43 Lína 43.377
Bjartur í Vík HU 112 Handfæri 1.167
Blær HU 77 Landb. lína 2.155
Bogga í Vík HU 6 Grásleppunet 2.203
Dagrún HU 121 Grásleppunet 10.518
Diddi GK 56 Grásleppunet 1.602
Eiður EA 13 Handfæri 2.592
Elín ÞH 82 Handfæri 1.938
Félaginn KÓ 25 Handfæri 1.722
Fjöður HU 90 Handfæri 1.953
Garpur ST 44 Grásleppunet 2.506
Geiri HU 69 Handfæri 1.886
Guðbjörg GK 666 Landb.lína 15.181
Guðm.á Hópi HU 203 Lína 21.510
Guðrún Petr. GK 107 Lína 19.633
Guðrún R. HU 162 Handfæri 2.003
Gyðjan EA 44 Handfæri 2.340
Hafdís HU 85 Handfæri 2.316
Hafrún HU 121 Dragnót 396
Hjördís HU 16 Grásleppunet 396
Húni HU 62 Grásleppunet 5.668
Jenný HU 36 Handfæri 1.917
Katrín GK 266 Landb.lína 16.912
Kristborg SH 108 Handfæri 1.916
Nonni HU 9 Handfæri 2.345
Óli á Stað GK 99 Lína 20.743
Signý HU 13 Landb.lína 7.326
Slyngur EA 74 Handfæri 2.973
Smári HU 7 Handfæri 1.678
Snorri ST 24 Handfæri 2.367
Stefanía HU 136 Handfæri 2.324
Steini GK 34 Handfæri 1.617
Sveinbjörg HU 49 Handfæri 1.696
Sæborg HU 80 Handfæri 1.329
Sæfari HU 200 Landb.lína 1.464
Sæunn HU 30 Handfæri 2.318
Víðir ÞH 210 Handfæri 1.514
Alls á Skagaströnd 258.839
HOFSÓS
Álborg SK 88 Handfæri 1.148
Hafbjörg SK 58 Handfæri 1.469
Geisli SK 66 Handfæri 2.357
Skáley SK 32 Handfæri 2.632
Von SK 21 Handfæri 1.635
Þorgrímur SK 27 Handfæri 1.657
Þytur SK 18 Handfæri 1.957
Alls á Hofsósi 12.855
SAUÐÁRKRÓKUR
Badda SK 113 Handfæri 2.473
Fannar SK 11 Handfæri 5.447
Farsæll SH 30 Rækjuvarpa 18.027
Gammur SK 12 Þorskfisknet 508
Green Frost RU 999 Rækjuvarpa 782.247
Grímsnes GK 555 Rækjuvarpa 5.266
Hafey SK 10 Handfæri 2.142
Helga Guðm. SK 23 Handfæri 2.280
Kristín SK 77 Handfæri 2.573
Maró SK 33 Handfæri 823
Málmey SK 1 Botnvarpa 150.931
Már SK 33 Handfæri 2.440
Nona SK 141 Handfæri 2.153
Óskar SK 13 Grásleppunet 2.740
Röst SK 17 Rækjuvarpa 6.061
Steini G SK 14 Handfæri 2.919
Vinur SK 22 Handfæri 1.855
Ösp SK 135 Handfæri 737
Alls á Sauðárkróki 991.631
Húnvetningar – Skagfirðingar – og allir aðrir Íslendingar!
Ekki fleiri erlendar stóriðjur. Gerum ekki Ísland að
eiturspúandi ruslahaug. Hugsum.
María Erla Eðvaldsdóttir, Hvammstanga.
„Ég vil elska mitt land“
Las Vegas eða Strandir
AÐSENT
AÐSENT
MARÍA ERLA EÐVALDSDÓTTIR
ELÍSABET RÁN ANDRÉSDÓTTIR
Blaðamaður fékk veður af brúðkaupi sem mun eiga sér stað í
Trékyllisvík á Ströndum í sumar og ákvað að hringja í
brúðina og forvitnast aðeins um málið.
Péturína Laufey Jakobsdóttir er skrifstofu- og starfsmannastjóri
hjá Léttitækni á Blönduósi. Þetta er sannkallað fjölskyldu-
fyrirtæki sem faðir hennar, Jakob Jónsson frá Bakka í Vatnsdal,
stofnaði. „Starf mitt í Léttó felst aðallega í því að létta á öllu í
fyrirtækinu,“ segir Péturína, oftast kölluð Peta. Ljóst er á fasi
hennar að hún tekur sig ekki of alvarlega og segist ekki vera
deginum eldri en 22 ára, og hlær kröftuglega.
Þið hafið, eftir öll þessi ár, loksins ákveðið að ganga í
heilagt hjónaband - af hverju fyrst núna? „Nú það vill svo til
að það er ekki sjálfgefið að giftast Skagga (Skagstrendingi)
verandi Blönduósingur, enda gamall bæjarrígur á milli þessara
staða. Reynir, tilvonandi eiginmaður minn, hefur átt erfitt með
að fá samþykki frá föður mínum. Það var ekki fyrr en núna, 18
árum og þremur börnum síðar að hann fékk þetta í gegn.
Staðsetning brúðkaupsins spilaði líka inn í þetta því hvorki
mátti halda þetta á Skagaströnd né Blönduósi. Blönduósingar
neita að mæta til athafnar á Skagaströnd og Skagstrendingar
segja Blönduós eingöngu vera til að keyra í gegnum. Það var því
bara tvennt í stöðunni, Las Vegas eða Strandir. Við köstuðum
bara upp á það og Strandir urðu fyrir valinu.“
Áhugamál Petu eru fyrst og fremst Biggest Loser, borða
góðan mat og bílar. En af einskærri hógværð nefnir hún að árið
2001 hafi hún hlotið titilinn akstursíþróttamaður ársins. Peta
segist ennfremur vera heilluð af náttúrunni og fái útrás við að
hlaupa upp á Spákonufellið enda ekkert fegurra en að horfa yfir
Ströndina af toppnum. Að lokum kveðst Peta ekki geta beðið
eftir stóra deginum sem verður 25. júlí næstkomandi.
Tilvonandi eiginmaður Petu er Reynir Lýðsson og eiga þau
þrjú börn, Jóhann Almar 12 ára, Anton Loga 6 ára og Katrínu
Söru 2 ára. /Elísabet Rán Andrésdóttir.
Frá verðlaunaafhendingu í fimmgangi, 1. flokki. MYND: Þytur.
Athugasemdir varðandi grein um
gistiheimilið Gimbur í 23. tölublaði.
Feykir hafa borist ábendingar um grein um Gistiheimilið Gimbur
Annars vegar varð ruglingur í myndatexta, þar sem Bjarni Bjarnason
var sagður t.v. á myndinni en hann er að sjálfsögðu lengst til hægri,
og Sjöfn Guðmundsdóttir þá lengst til vinstri en Jón Sigurmundsson
fyrir miðju. Iðunn Jónsdóttir sem nefnd er í myndatextanum er ekki
á myndinni. Einnig barst ábending um að Reykjarhóll sá sem
gistiheimilið stendur á sé á Bökkum en ekki í Fljótum. Svæðið frá
Haganesvík að Stafá var í daglegu tali kallað bakkar og enn í dag er
talað um annars vegar Reykjarhól í Fljótum (í Austur-Fljótum) og
hins vegar Reykjarhól á Bökkum, þó báðir séu bæirnir í Fljótahreppi
hinum forna. Er þessu hvoru tveggja hér með komið á framfæri. /KSE