Feykir - 25.06.2015, Blaðsíða 6
6 24/2015
Jóhanna og Karla umkringdar börnum.
Charlotte Kalvik er eigandi
búðarinnar Lottu K á
Aðalgötunni á Sauðárkróki.
VIÐTAL
Þóra Kristín Þórarinsdóttir
Elti ástina
til Íslands
Rætt við Garðar Jónsson á Melstað í Óslandshlíð
um raforkuverð í dreifbýli
Reksturinn hefur gengið eins og í sögu og margir segja að
svipaða búð hafi einmitt vantað á svæðið, en þar má finna
ýmsar vörur allsstaðar að úr heiminum sem allar hafa það
sameiginlegt að vera umhverfisvænni en aðrar. Ásamt því
að reka búðina vinnur Lotta við heildsölu svo það er nóg að
gera hjá henni. Blaðamaður Feykis fékk að kíkja í heimsókn í
þessa huggulegu búð og hitti Lottu.
Charlotte Kalvik flutti hingað
frá Noregi fyrir tæplega tveimur
árum síðan ásamt eiginmanni
sínum og fjórum börnum.
Hún er gift Hannesi Bjarnasyni
og búa þau á Bjarnastöðum í
Akrahreppi. Saman eiga þau
Emilíu sem er 9 ára, en úr
fyrri samböndum átti Lotta
Philip, 16 ára, og Hannes átti
Maríu, 12 ára, og Jakob, 15
ára. Emilía, María og Philip
búa á Bjarnastöðum en Jakob
býr í Noregi hjá móður sinni.
Blaðamaður skaut því að henni
að nú væru allir að flytja til
Noregs frá Íslandi en hún gerði
öfugt og hún segir ástæðuna
einfalda - ástina. „Ég elti bara
ástina. Þetta var bara mjög
einfalt. Það var annað hvort að
vera eftir í Noregi eða fara með,
og ég fór auðvitað með. Við
vorum samt búin að ákveða að
flytja einhvern tímann til Íslands
en við vorum ekki komin með
neina dagsetningu.“ Lotta og
Hannes kynntust, eins og svo
margir aðrir, á netinu og hittust
svo á kaffihúsi og þá var ekki
aftur snúið. „Ef þú spyrð hann
þá var hann búinn að reyna að
ná sambandi við mig tvisvar
áður en ég svaraði,“ segir hún og
hlær, „en ég er mjög ánægð með
að hann beið eftir mér.“
Alltaf talað um veðrið
Í nokkur ár hafði fjölskyldan
notað Bjarnastaði sem sumar-
bústað í árlegri ferð sinni til
Íslands. Þau þekktu því svæðið
nokkuð vel og í hvert skipti
töluðu þau um að flytja þangað.
Lottu fannst örlítið skrítið að
flytja úr bæ í sveit til að byrja
Hannes, Lotta og börnin. MYND: ÚR EINKASAFNI
með, en finnst það æðislegt.
„Það fyrsta sem ég gerði þegar ég
vaknaði í morgun var að kveikja
á hraðsuðukatlinum og búa til
mjólk handa heimalingunum,
og þannig byrja allir dagar
núna. Mér finnst frábært að
koma heim úr vinnunni og
í rólegheitin heima, hlusta á
lækinn renna og kindurnar á
beit. Algjör draumur.“ Þegar
blaðamaður spyr um mun á
Noregi og Íslandi segir Lotta
að henni finnist æðislegt að
keyra á Íslandi, en hún sér alltaf
eitthvað nýtt á hverjum degi. „Í
Noregi er svo mikið skóglendi
en hér er þetta allt annað. Hér
er hægt að setjast upp í bíl og
keyra um og skoða, þú sérð allt.
Reyndar hef ég tekið eftir öðru
ansi skemmtilegu í sambandi
við veðrið því í Noregi talar
maður um veðrið ef maður
hefur ekkert að tala um en hér
á Íslandi talar maður alltaf fyrst
um veðrið,“ segir hún og hlær.
En hvað er það besta við Ísland?
„Hannes.“
Eins og flestir vita bauð
Hannes sig fram sem forseta
árið 2012, en aldrei hafa fleiri
forsetaframbjóðendur komið
fram en það ár. Á meðan á
framboðinu stóð var fjölskyldan
mikið í sviðsljósinu og Lotta lét
ekki sitt eftir liggja og stóð við
bakið á Hannesi allan tímann.
„Þetta var draumurinn hans og
ég studdi hann 100%. Ég sagði
honum bara að kýla á það. En
þetta gerðist allt mjög hratt. Við
ferðuðumst út um allt land og
þetta gat verið svolítið stressandi,
en aðallega spennandi og
gaman. Ég man að ég sat oft
mjög stressuð bakvið þegar
Hannes var í sjónvarpsviðtölum
og vonaði að allt gengi vel. En ég
þekki Hannes, hann hefur alltaf
svar við öllu. Það er ótrúlegt.“
Leitaði bara að
skrifstofuplássi
Í Noregi bjó fjölskyldan í bæ
sem heitir Dal í Eidsvoll. Þegar
þau fluttu til Íslands vann Lotta
sem leiðbeinandi í fríhöfnum
Charlotte Kalvik á Bjarnastöðum í Skagafirði opnaði
nýlega verlslun á Sauðárkróki