Feykir - 25.06.2015, Blaðsíða 9
24/2015 9
þeior
Önnur breiðskífa hljómsveitarinnar Úlfur Úlfur leit dagsins
ljós þann 11. júní síðast liðinn og nefnist hún Tvær plánetur.
Að sögn skagfirska rapptvíeykisins, Arnari Frey Frostasyni
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir
Sömu gaurarnir nema
eldri og reynsluríkari
Úlfur Úlfur gefur út breiðskífuna Tvær plánetur
og Helga Sæmundi Guðmundssyni sem skipa sveitina, er breiðskífan heildsteyptara verk
en fyrri plata þeirra, Föstudagurinn langi, sem kom út árið 2011, og segjast félagarnir vera
ánægðir með útkomuna. .
„Tvær plánetur er mun
heildsteyptara verk og í
hreinskilni sagt er hún miklu
betri á alla kanta. Í grunnin eru
lagasmíðarnar mun betri því við
höfum mun skýrari hugmynd
um hvað við erum að gera en
áður. 2011 var þetta stefnulaus
tilraunastarfssemi – í dag er þetta
vinnan okkar. Við erum eldri og
ríkari af reynslu en í lok dags
erum við samt sömu gaurarnir
úr sama efninu,“ útskýrir Arnar
Freyr fyrir blaðamanni Feykis.
Platan var þrjú ár í smíðum og
komu tæplega 20 manns að gerð
hennar. „Bróðurhluti hennar
var samt samin og tekin upp
síðastliðið sumar. Helgi semur
langflest lögin en jafnframt semja
Redd Lights tvö og Þórarinn
[Guðnason] í Agent Fresco eitt.
Textarnir eru okkar en gestir á
plötunni semja sína texta sjálfir,“
segir Arnar Freyr. Redd Lights
er pródúserateymi samansett af
Inga Má Úlfarssyni og Jóhanni
Bjarkasyni. „Við notumst mikið
við lifandi hljóðfæraleik á
upptökum og þar leika meðlimir
Agent Fresco stórt hlutverk.
Redd Lights mixuðu svo öll
lögin og Friðfinnur Oculus
[Sigurðsson] masteraði. Í
þokkabót eru kórar á plötunni
og þá skipa einfaldlega vinir
sem okkur tókst að sópa saman
á skömmum tíma daginn sem
lögin voru tekin upp.“
Þegar þeir eru spurðir hvort
eitthvað standi uppúr við
gerð plötunnar svarar Helgi
Sæmundur að það sé í raun
ekkert eitt – heldur allt ferlið
í heild sinni. „Við höfðum
verið að vinna rosalega hægt í
sitthvoru lagi í tvö ár þangað til
ég flutti inn til Arnars í miðbæ
Reykjavíkur og við komum
okkur að verki. Allt ferlið stendur
upp úr en það að búa saman,
lifa á tónlistinni og að vera með
hljóðver á Klapparstígnum var
algjör gargandi snilld.“
Tíminn segir lítið til
um gæðin
Eigið þið ykkur eitthvert
uppáhalds lag? „Akkeri er uppá-
haldslagið mitt. Það er rosalega
einlægt og mér finnst allt mjög
vel heppnað í því. Arnór Dan
syngur líka gullfallega. Það var
bæði seinasta lagið sem við
kláruðum á plötunni og hvað
mig varðar lít ég á
það sem lokakaflann
í þeirri sögu sem
við segjum á þessari
plötu,“ segir Helgi
Sæmundur. Arnar
segir að sér þyki
óendanlega vænt
um öll lögin og í
raun sé ekkert eitt
í uppáhaldi. „Ef þú
miðaðir byssu á mig
segði ég sennilega
20ogeitthvað. Það er einhvern
veginn allt við það: Introið,
trommurnar, píanóið, viðlagið
hjá Helga, kórinn – og ég sjálfur
er meira að segja drullufínn
í því. Ég er líka rosalega
skotinn í 100.000. Í því tókst
okkur að fanga margar góðar
tilfinningar,“ útskýrir hann.
Þeir segja þann tíma sem
liggur á bakvið hvert lag segja
lítið til um gæði þess. „Fyrsta
lagið á plötunni, 101, varð til á
augnabliki. Lagið Ró var hins
vegar fyrst tekið upp 2012 og
það var ekki fyrr en seinasta
haust sem það var tekið upp í
þriðja skiptið og bæði bassanum
og trommunum var skipt út
fyrir nýtt sett sem það fór að
meika sens fyrir okkur. Bestu
lögin eru oft þau sem minnst
vinna fer í að gera því þau ganga
samstundis upp.“
Kveðja til
heimahaganna
Félagarnir hafa þegar gert
myndbönd við nokkur lög
plötunnar sem hafa vakið hafa
mikla athygli. Þá
var myndbandið
við lagið Tarantúlur,
sem tekið var upp
á Bíladögum á
Akureyri í fyrra,
kjörið myndband
ársins á Íslensku
tónlistarverðlaun-
unum í febrúar síðast
liðnum. „Við höfum
reynt að umkringja
okkur eins hæfileikaríku fólki
og hægt er og sem betur fer er
þetta hæfileikaríka fólk líka
ógeðslega næs. Magnús Leifsson
er aðalmaðurinn á bakvið við
myndböndin við Tarantúlur
og Brennum allt og svo er
það Freyr Árnason sem gerði
myndböndin við Sofðu vel og
Tvær plánetur. Báðir toppgaurar
sem við fílum að vinna með,“
segir Helgi Sæmundur. Arnar
Freyr tekur undir og segir þá
félaga ekki hafa þekkt Magnús
áður en þeir unnu saman að
myndbandinu við Tarantúlur.
„Hann var bara gaur sem
við fíluðum og vildum vinna
með. Það kom fljótlega í ljós
að við vorum á sömu blaðsíðu
varðandi allt: Andrúmsloftið,
ímyndina og skilaboðin sem
vildum senda.“
Í myndbandinu við Brenn-
um allt er má sjá Arnar Frey
ríðandi á hestbaki í Breiðholti,
blaðamaður spyr Arnar
hvort það sé tengingin við
heimahagana. „Að vera á
hestbaki í Breiðholtinu var
ein af hugmyndunum sem
hann [Maggi Leifs] fékk fyrir
Brennum allt og ég elskaði
hana strax því ég er með smá
hrossabakgrunn sem fæstir vita
af. Fyrst og fremst fannst mér
þetta vera það fyndnasta í heimi
en að sjálfsögðu var þetta líka
kveðja til heimahaganna.“
Framundan er þétt dagskrá
hjá þeim félögum og nóg að gera
fram að Verslunarmannahelgi.
Þeir segjast þó ætla að taka sér
smá sumarfrí í ágúst og kíkja
sennilega heim í Skagafjörðinn
um helgina til að spila á Drangey
Music Festival. „Ég er að fara til
Afríku og verð þar í þrjár vikur
og Arnar fer til Svíþjóðar,l“ segir
Helgi í lokin.
Tvær plánetur fæst í Skagfirð-
ingabúð og öllum helstu
verslunum sem selja plötur.
Einnig er hægt að nálgast hana
í heild sinni á Spotify.
„Allt ferlið
stendur upp úr
en það að
búa saman,
lifa á tónlistinni og
að vera með hljóðver
á Klapparstígnum
var algjör
gargandi snilld.“