Feykir - 25.06.2015, Page 10
10 24/2015
Ljósmyndir tók Höskuldur Birkir Erlendsson
Hin árlega Jónsmessuhátíð á
Hofsósi var haldin um
síðustu helgi. Einmuna
veðurblíða var í Skagafirði á
föstudaginn og nýttu
fjölmargir sér góða veðrið
til að taka þátt í
Jónsmessugöngu sem er
fastur liður í
Jónsmessuhátíðinni.
Gengið var frá Bæ á
Höfðaströnd í Hofsós og sá
Haukur Björnsson um
leiðsögnina í Bæjarlandi en þá
tók Jóhanna Sveinbjörg
Traustadóttir við. Meðfylgjandi
myndir tók Anna Scheveing
frá Hvammstanga í göngunni
og sendi Feyki. /KSE
Tólftu Smábæjaleikar
Arion banka og
knattspyrnudeildar
Hvatar voru haldnir á
Blönduósi um síðastliðna
helgi. Mótið hugsað fyrir
minni bæjarfélög og er
keppt í 4.5. og 6. flokki
karla og kvenna og 7. og 8.
flokki blandað lið. Venju
samkvæmt streymdi
mikill fjöldi fólks víða að
af landinu og gekk mótið
vel.
Þrátt fyrir að veður var
ekki eins og best var á kosið,
napurt og næðingsamt, var
bjart yfir bænum - stemn-
ingin góð og mátti sjá
gleðina skína úr andlitum
litlu leikmannanna.
Hörkufjör var á kvöldvök-
unni á laugardagskvöldið
sem færð var í íþróttahús
bæjarins og var það Ingó
veðurguð sem hélt uppi
stuðinu /BÞ
Fastur liður í Jónsmessuhátíð á Hofsósi Smábæjaleikarnir á Blönduósi
Fjölmenn ganga í fallegu veðri
Kátir krakkar
á Smábæjarleikum
Sjúkraliðanám
Sími: 455 8000 :: www.fnv.is :: fnv@fnv.is
FJÖLBRAUTASKÓLI NORÐURLANDS VESTRA
Á SAUÐÁRKRÓKI
Sjúkraliðanám hefst að nýju næsta haust í samstarfi við Fjarmenntaskólann. Námið er kennt í fjar- og
lotunámi og er því einnig hugsað fyrir fólk á vinnumarkaðnum.
Á haustönn verða eftirtaldir áfangar í boði:
Skráning fer fram á heimasíðu FNV (www.fnv.is) undir hlekknum Umsókn fyrir fjarnema.
Fullt nám kostar 30.000 kr. á önn. Fjarnámið hefst þann 1. september n.k.
Nánari upplýsingar fást á netfanginu fjarnam@fnv.is
HJÚ103
HJV103
LÍB101
LOL103
NÁT123
SAM103