Feykir


Feykir - 02.07.2015, Blaðsíða 5

Feykir - 02.07.2015, Blaðsíða 5
25/2015 5 Þann 17. júní hlaut Stefán Reynir Gíslason heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum. VIÐTAL Berglind Þorsteinsdóttir Með fingurna í fjölbreyttu tónlistarstarfi Var það fyrir framlag hans til tónlistarlífs á landsbyggðinni en hann hefur verið máttarstólpi í skagfirsku tónlistarlífi um árabil og hefur m.a. stjórnað Karlakórnum Heimi við góðan orðstý og er starfandi aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Skagafjarðar. Stefán stiklaði yfir tónlistarferilinn með blaðamanni Feykis fyrr í vikunni. Blaðamaður mælti sér mót við Stefán í Varmahlíðarskóla, þar sem hann starfar, og gekk á hljóðið eftir göngum skólans við fagran píanóleik Stefáns. Það var greinilega hátíð í vændum því Stefán lék Brúðarmarsinn. „Dóttir mín er að fara gifta sig á laugardaginn,“ sagði hann glaður í bragði. Að sjálfsögðu ætlaði Stefán að leika í kirkjunni á milli þess að leiða brúðina inn kirkjugólfið. Brúðurin er yngsta dóttir Stefáns, Sara Katrín sem er geislafræðingur, hann á einnig Berglindi flautuleikara og Höllu Rut guðfræðing. Eiginkona Stefáns er Margrét Guðbrandsdóttir. Stefán er fæddur á Sauðárkróki þann 23. október 1954. Foreldrar hans eru Guðrún Stefánsdóttir frá Syðri- Bakka í Kelduhverfi Norður- Þingeyjarsýslu og Gísli Jónsson frá Miðhúsum í Blönduhlíð, þar sem Stefán er alinn upp. „Ég ætlaði mér að verða bóndi. Ég hafði óskaplega gaman að því að vinna í sveitinni, vera innan um skepnurnar og svo er frelsið sem fylgir því líka svo heillandi,“ svarar Stefán þegar hann er spurður hvort það hafi verið meðvituð ákvörðun að gera tónlistina að ævistarfi. Áhugi hans á tónlist kviknaði þó snemma. „Það var harmóníum orgel heima og ég fór að spila á það mjög ungur. Ég spilaði eftir eyranu, það var enginn til að kenna mér nema Jón bróðir, sem er fjórum árum eldri en ég. Hann spilaði á gítar og ég keypti mér harmóniku og svo skiptumst við á því harmónikan var svo þung,“ segir hann og rifjar upp þegar þeir bræðurnir spiluðu á fyrsta ballinu þegar Stefán var 11 ára gamall. „Það var brúðkaupsveisla í Héðinsminni, ég man að ég kveið rosalega fyrir, en fólk dansaði þannig að það var allt í lagi.“ Spilamennska bræðranna frá Miðhúsum hélt áfram og þeir léku á ófáum böllunum. Þá gekk Stefán til liðs við hina víðfrægu hljómsveit Geirmundar Valtýssonar tvítug- ur að aldri og spilaði víða með henni. Stefán fór í tónlistarnám til Evu Snæbjarnardóttur, skólastjóra Tónlistarskólans á Sauðárkróki, 25 ára gamall. Að því loknu fór hann í frekara nám við Tónskóla Þjóðkirkjunnar þar sem hann tók lokapróf í kórstjórn og raddþjálfun ásamt hljóðfæranámi. Því næst lá leiðin í Tónlistarskóla Akureyrar þar sem hann lauk einleikaraprófi í orgelleik. Kennari Stefáns var Björn Steinar Sólbergsson, núverandi orgelleikari í Hallgrímskirkju. „Hann var þá nýútskrifaður frá Frakklandi og ég var með fyrstu nemendunum hans þegar hann kom að utan. Hann var svo ákafur og flottur,“ segir hann. Meðfram námi sinnti Stefán annarri vinnu og gerði það af ánægju. „Maður var kannski að æfa sig til tólf á kvöldin og fann ekki fyrir því - maður bara ætlaði sér þetta. Ákafinn var svo mikill.“ Stefán spilaði mikið á skemmtistöðunum og minnist þeirra tíma með hlýju. Hann spilaði m.a. á Klúbbnum, Þórskaffi, Offiseraklúbbnum á Vellinum og Broadway þegar það opnaði í Mjóddinni. „Ég Stefán með fálkaorðuna. MYND: BÞ var einn af þeim fyrstu sem voru fastráðnir á Broadway sem þá var stærsta og flottasta hús landsins. Þá spilaði ég dinner þar til ballið byrjaði. Með mér var bassaleikari og annar sem spilaði á trommur og við vorum bara að leika okkur og djamma. Það var æðislegt.“ „Fannst ég eiga eftir að gera svo margt hérna“ Stefán segist alltaf hafa verið heimakær og það kom að því að heimahagarnir toguðu í hann. Árið 1984 réði hann sig til Tónlistarskóla Skagafjarðar og sama ár varð hann undirleikari hjá Karlakórnum Heimi. Ári síðar tók hann að sér stjórn kórsins og hefur sinnt því starfi nær óslitið, fyrir utan þegar hann tók sér ársleyfi árið 1992. „Ég hafði ákveðið það að ef kirkja fyrir sunnan myndi auglýsa eftir organista þá skildi ég prófa að sækja um í eitt skipti. Þegar ég sá auglýsta organistastöðu við Kópavogskirkju lét ég vaða,“ segir Stefán sem var valinn úr Skagfirðingurinn Stefán R. Gíslason var sæmdur fálkaorðu fyrir framlag sitt til tónlistarlífs á landsbyggðinni hópi fjölda umsækjenda. Við kirkjuna voru starfandi tveir prestar og tvær sóknir þar sem Digraneskirkja var þá ekki komin til sögunnar. Það var því í nógu að snúast hjá Stefáni. „Alla sunnudaga voru tvö prógrömm og alltaf tvær messur og svo var mikið um athafnir. Ég man að ég spilaði átta messur yfir páskana. Þá var ég búinn að setja mér það að spila ekki sama for- og eftirspilið við neina þeirra,“ segir Stefán og brosir en hann segir árið hans sem organisti við Kópavogskirkju hafi verið afar lærdómsríkt. „Það var mjög strembið fyrst en oft fékk ég að vita með stuttum fyrirvara hvaða lög ég átti að spila og hve mörg. En svo safnaðist þetta allt upp og ég stóð miklu sterkari eftir þessa reynslu.“ Þegar árið leið þurfti Stefán að taka ákvörðun um hvort hann vildi starfa áfram hjá Kópavogskirkju eða snúa aftur heim. „Það var mjög gaman að vera í góðri þjálfun sem organisti en mér fannst ég eiga eftir að gera svo margt hérna. Kórinn var mjög sterkur og Stefán situr við píanóið í Varmahlíðarskóla. MYND: BÞ

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.