Feykir


Feykir - 16.07.2015, Blaðsíða 1

Feykir - 16.07.2015, Blaðsíða 1
FERSKUR Á NETINU Feykir.is Hvað er að frétta? Hafðu samband í síma 455 7176 eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is á BLS. 6-7 BLS. 10 Gréta er bjórsafnari á Blönduósi „Bara komin með brot af því sem til er“ BLS. 8 Óli Albertsson frá Keldulandi í opnuviðtali Feykis Rúllutæknin það besta síðan Torfi kom með bakkaljáina Vel sótt Knappstaða- messa í Fljótum Hefð að koma ríðandi til kirkju 27 TBL 16. júlí 2015 35. árgangur : Stofnað 1981 Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra BÍLAVERKSTÆÐI Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570 Við þjónustum bílinn þinn! Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla, vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun. G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N Fangaðu sumarið Þú færð réttu Canon græjuna í Græjubúð Tengils Á fundi byggðarráðs Skagafjarðar þann 9. júlí sl. var fjallað um undirbúning að enduruppbyggingu Sundlaugar Sauðárkróks ásamt leik- og útivistarsvæði. Fram kom á fundinum að allir flokkar í núverandi sveitarstjórn eru sammála um að fyrsti kostur í sundlaugarmálum á Sauðárkróki sé enduruppbygging Sundlaugar Sauðárkróks á núver- andi stað. Á fundinum lagði Bjarni Jónsson, oddviti V-lista, fram eftirfarandi tillögu: „Undirbúningur verði hafinn að endur- uppbyggingu Sundlaugar Sauðárkróks á núverandi stað í hjarta bæjarins, ásamt leik- og útivistarsvæði. Sveitarfélagið setji framkvæmdinni fjárhagslegan ramma og almenna umgjörð, en skoðað verði að gefa íbúum kost á að taka þátt í hugmyndavinnu við verkefnið.“ Í bókun sem Stefán Vagn Stefánsson, oddviti B-lista, og Sigríður Svavarsdóttir, oddviti D-lista, lögðu fram í kjölfarið, kom fram að ýmsar hugmyndir hefðu verið uppi varðandi framtíðarsýn fyrir sundlaugina. Lítið sem ekkert hefði verið gert við laugina á meðan en núverandi ástand væri ekki boðlegt mikið lengur. Jafnframt kom fram að í fjárhags- áætlun fyrir árið 2015 væri gert ráð fyrir að farið yrði á hönnun á sundlauginni og sú vinna sé komin í gang. Verið sé að meta núverandi stöðu og fá hugmyndir til að vinna með svo hægt verði að taka ákvarðanir um hvernig best sé að standa að uppbyggingu mannvirkisins, en sveitarfélagið hefur fengið verkfræði- stofuna Stoð ehf. með sér í þá vinnu. „Taka þarf ákvörðun um hvað eigi að byggja, kostnaðarmeta og setja í áætl- anir sveitarfélagsins. Brýnt er að hraða þeirri vinnu sem kostur er,“ segir í bók- un þeirra Stefáns Vagns og Sigríðar. Eftir nokkrar umræður á fundinum var samþykkt bókun þess efnis að allir flokkar í núverandi sveitarstjórn væru sammála því að fyrsti kostur væri uppbygging sundlaugar á núverandi stað og var tillögunni vísað til þeirrar vinnu sem þegar er hafin. /KSE Uppbygging sundlaugar á núverandi stað fyrsti kostur Sundlaug Sauðárkróks við Skagfirðingabrautina. MYND: KSE Byggðarráð Svf. Skagafjarðar fjallar um Sundlaug Sauðárkróks S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6 FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN!

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.