Feykir - 16.07.2015, Blaðsíða 5
27/2015 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS
Konni með tvö mörk
2. deild karla : Afturelding - Tindastóll 1-2
Tindastólsmenn hafa heldur
betur rétt úr kútnum í 2.
deildinni í síðustu leikjum og
síðasta laugardag gerðu
strákarnir góða ferð í
Mosfellsbæinn. Þar mættu
þeir fyrir liði heimamanna í
Aftureldinga og gerðu sér lítið
fyrir og sigruðu 1-2.
Konráð Freyr Sigurðsson
(Konni) kom Stólunum yfir
strax og á 5. mínútu og hann
bætti um betur í upphafi síðari
hálfleiks þegar hann kom sínum
mönnum í 2-0 á 53. mínútu.
Þorgeir Leó Gunnarsson lagaði
stöðuna fyrir Aftureldingu á 90.
mínútu en lengra komust
heimamenn ekki gegn sprækum
Stólum.
Eftir að hafa tapað fimm
fyrstu leikjum sínum í 2.
deildinni hafa Stólarnir komist á
gott ról og síðan aðeins tapað
fyrir liði Ægis, sem var einstök
óheppni, unnið fjóra leiki og
gert eitt jafntefli. Tindastóll og
Höttur eru 6.-7. sæti með 13 stig
en þar fyrir neðan er þéttur
pakki og falldraugurinn glottir
við mörgum liðum. Næsti leikur
Tindastóls er gegn Leikni
Fáskrúðsfirði og fer fram á
Búðagrund fyrir austan næst-
komandi laugardag. /ÓAB
Konráð Freyr Sigurðsson.
Stóðu sig stórvel
1 deild kvenna : Tindastóll - Höttur 5-2
Stelpurnar í Tindastól
fullkomnuðu góðan dag
félagsins er þær lögðu
Hattarstúlkur frá Egilsstöðum
sannfærandi á Sauðárkróks-
velli á laugardaginn en
lokatölur urðu 5-2.
Það var ekki að sjá í upphafi
leiks hjá stelpunum að gestirnir
vermdu neðsta sæti deildarinnar
því þær komu mun ákveðnari til
leiks og skoruðu fljótlega eftir að
dómarinn flautaði leikinn á og
var þar á ferðinni Kristín Inga
Vigfúsdóttir. Hugrún Pálsdóttir
jafnaði þó leikinn fjórum
mínútum síðar er hún fékk
sendingu inn fyrir vörn gestanna
13.-15.
AGUST
Sjaumst a G
aerunni!
www.gaeran.is
Fylgstu með á Facebook
Snapchat: gaeranmusic
Gillon
Óskar Harða
r
Axel Flóvent
Bergmál
Hemúllinn
Trukkarnir
Dalí
Röskun
Lockerbie
Dimma
Geirmundur
VIO
Alchemia
Stafrænn Há
kon
Bjartmar Gu
ðlaugs
The Roulette
Amaba Dama
Páll Óskar
Miðasala í fullum gangi
FORSALA MIÐA Á TIX.IS
Drög að starfsleyfisskilyrðum fyrir sláturhús KS á Sauðárkróki,
liggja frammi í ráðhúsi Sveitarfélagsins Skagafjarðar við Faxatorg á Sauðárkróki
og á heimasíðu Heilbrigðiseftirlitsins www.hnv.is.
Helstu breytingar sem drögin boða, er að gert er ráð fyrir starfrækslu brennsluofns,
til þess að sláturhúsið geti brennt eigin úrgangi.
Þeir sem telja sig málið varða eru hvattir til að kynna sér starfsleyfistillögurnar
og gera athugsemdir við þær ef þurfa þykir.
Skriflegar athugasemdir skulu hafa borist til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra
í síðasta lagi 18. 8. 2015.
Sigurjón Þórðarson, heilbrigðisfulltrúi
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra,
Sæmundargötu 1,
550 Sauðárkrókur.
Sumarmót UMSS
Frjálsar íþróttir
Sunnudaginn 12. júlí sl. var
sumarmót UMSS í frjálsum
íþróttum haldið á Sauðár-
króki. Keppendur og
áhorfendur fengu blíð-
skaparveður og voru
keppendur 21 talsins frá
aldrinum 12 ára og upp í
fullorðinsflokk.
Keppt var í 100 m, 200 m og
400 m hlaupum ásamt kúluvarpi,
spjótkasti, hástökki og lang-
stökki. Keppendur stóðu sig með
stakri prýði og náðu góðum
árangi, en Daníel Þórarinsson
UMSS bætti sinn persónulega
árangur í 100 m hlaupi, 200 m
hlaupi og í 400 m hlaupi.
Mótið tókst mjög vel til og
það er liður í undirbúningi hjá
starfsfólki mótsins í mótahaldi
og fleira en UMSS heldur
Meistaramót Íslands 15-22 ára
dagana 15.-16. ágúst nk. /ÞKÞ
og lagði boltann í hægra hornið.
En ekki liðu nema þrjár mínútur
þegar Emma Hewett kom
Hattarstelpum yfir aftur og
staðan því 2-1 eftir aðeins 13
mínútur. Stólastúlkur komust
meira inn í leikinn eftir að
markvörður Hattar varð að fara
af velli og uppskáru mark í blálok
fyrri hálfleiks þegar Guðrún
Jenný Ágústsdóttir afgreiddi
boltann í netið. Staðan í hálfleik
2-2.
Í seinni hálfleik var allt önnur
stemning í liði heimastúlkna því
þær mættu mun grimmari til
leiks og sköpuðu sér mörg góð
færi meðan gestirnir gerðu lítinn
usla. Kolbrún Ósk Hjaltadóttir
kom Stólastúlkum í 3-2 á 48.
mínútu og á 63. mínútu skoraði
Svava Rún Ingimarsdóttir úr
vítaspyrnu eftir að brotið var á
Guðrúnu Jennýju. Eftir margar
góðar sóknir og nokkur langskot
heimastúlkna á markið náði
Hugrún að bæta sínu öðru
marki við eftir að hafa stungið
vörnina af og laumað boltanum
framhjá markmanni Hattar og í
bláhornið.
Lokatölur því 5-2 og með
sigrinum tyllti Tindastóll sér í
annað sætið í riðlinum með 13
stig eftir 6 leiki. Tindastóll hefur
góðu liði á að skipa svo búast má
við því að annað sætið verði ekki
látið af hendi svo auðveldlega.
/PF
Árný og Arnar sigruðu
Meistaramót GSS 2015
Meistaramót GSS fór fram
dagana 8. – 11. júlí. Alls voru
27 keppendur á mótinu en
keppt var í sex flokkum.
Víða var keppnin býsna hörð
en þó sérstaklega í 1. flokki karla
þar sem þurfti 3ja holu umspil
um sigurinn og keppandinn í 3ja
sæti varð höggi á eftir
sigurvegaranum. Arnar Geir
Hjartarson og Árný Lilja
Árnadóttir urðu klúbbmeistarar,
en gaman er að segja frá því að
Arnar Geir varð klúbbmeistari í
3ja sinn og klúbbmeistaratitlar
Árnýjar eru farnir að telja vel á
annan tuginn. /ÞKÞ