Feykir - 16.07.2015, Qupperneq 3
27/2015 3
Fyrirtæki taka á móti
gestum og gangandi
Stóri fyrirtækjadagurinn á Húnavöku
Hin árlega Húnavaka verður haldin
núna um helgina, 16. – 19. júlí, og í
tilefni af því er stóri fyrirtækja-
dagurinn á morgun, föstudag, þar
sem valin fyrirtæki opna fyrir gesti.
N1 Píparinn, Ístex, Bifreiðaverk-
stæði Blönduóss, Ísgel, Átak og Létti-
tækni taka á móti gestum að Efstubraut á
Blönduósi. Þar verður boðið upp á grill
og gaman frá kl. 12:00–16:00. SAH
afurðir taka á móti gestum frá kl. 13:00-
15:00 í höfuðstöðvum fyrirtækisins. Þar
verður grill, kynning á vörum og
Húnavökutilboð á grillkjöti. Samkaup
býður upp á ís fyrir börnin frá kl. 14:00, á
meðan birgðir endast og einnig verða
ýmis tilboð í gangi. Stígandi tekur á móti
gestum frá kl. 12:00-17:00.
Vilko opnar fyrirtækið sitt og tekur
á móti gestum frá kl. 12:00-17:00. Þar
verður hægt að versla á heilsöluverðum,
auk þess sem frábær Húnavökutilboð á
vörum fyrirtækisins verða í gangi.
Léttar veitingar verða í boði. /ÞKÞ
Veiðin í
Blöndu ævin-
týri líkust
Blanda og Miðfjarðará í topp 5
yfir aflahæstu árnar
„Okkur leiðist ekki að færa ykkur
fréttir af Blöndu, enda er veiðin þar
ævintýri líkust þessa dagana,“ segir
í frétt á laxveiðivefnum lax-a.is sem
birtist í lok síðustu viku. Þar segir
ennfremur að Blanda sé komin vel
yfir 600 laxa í heildina, en
samkvæmt veiðitölum á angling.is,
trónir Blanda nú í öðru sæti á lista
yfir 75 aflahæstu ár landsins, á eftir
Norðurá.
Í fréttinni kemur jafnframt fram að
svæði eitt í Blöndu sé líklega með einna
bestu veiði á landinu sé miðað við
stangarfjölda. „Við heyrðum af tveggja
daga holli sem var með 100 laxa á
stangirnar fjórar. Blanda er nú komin
vel yfir 600 laxa. Við heyrðum í einum
sem fékk fimm laxa á einum degi á
svæði þrjú, þar af komu þrír í beit upp
úr Lynghólma,“ segir ennfremur á
lax-a.is.
Blanda er sem fyrr segir í öðru sæti
yfir aflahæstu laxveiðiár landsins en
Miðfjarðará í fjórða sæti. Veiðitölur
á angling.is eru jafnan uppfærðar á
miðvikudögum eftir að Feykir fer í
prentun svo ekki er unnt að birta þær
nýjustu hér en við fylgjumst með á
Feyki.is. /KSE
Við óskum blönduósingum
gleðilegrar húnavöku
Flúðabakka 2 Blönduósi Sími 452 4385 www.lyfja.is
Efstabraut 2 Blönduósi Sími 452 4442 www.lettitaekni.is
Sauðárkróki, Blönduósi og Hvammstanga | Sími 455 9200 www.tengillehf.is
Ægisbraut 1 Blönduósi Sími 452 4272 www.prima.is
Efstubraut 2 Blönduósi Sími 452 7100
Árbraut 29 Blönduósi Sími 452 4067 www.textile.is/
Skagfirðingabraut 17-21 550 Sauðárkróki Sími 455 6000
Blöndustöð www.landsvirkjun.is
Árbraut 31 Blönduósi Sími 452 4030
Efstubraut 2 Blönduósi Sími 451 2727 www.isgel.is
Feykir.is
Borgarflöt 1 550 Sauðárkróki Sími 455 7176 www.feykir.is
ATVINNUÞRÓUN
SAMTÖK SVEITARFÉLAGA Á NORÐURLANDI VESTRA
Hnjúkabyggð 33 Blönduósi Sími 455 4300 www.ssnv.is
Hvammstangabraut 5 Hvammstanga Sími 455 2400 www.hunathing.is
Út´ib´úið á Hvammstanga Sími 410 4000
Húnabraut 13 Sími 452 4830 www.sjova.is
Léttitækni
„En amma hafði á
öldinni gát og aflann
úr fjörunni dró”
Kristín Ástgeirsdóttir
flytur ömmufyrirlestur
Eins og venja hefur verið undanfarin
ár býður Heimilisiðnaðarsafnið upp
á sérstaka dagskrá á síðasta degi
Húnavöku, þ.e. sunnudaginn 19.
júlí. Í ár mun Kristín Ástgeirsdóttir
sagnfræðingur flytja Ömmufyrir-
lestur og hefst fyrirlesturinn kl.
14:00. Kristín nefnir fyrirlestur sinn
„En amma hafði á öldinni gát og
aflann úr fjörunni dró.“
Í fyrirlestrinum dregur Kristín upp
mynd af ömmu sinni og langömmu.
Eftir fyrirlesturinn mun Kristín
bjóða upp á spjall við gesti – rifja
upp minningabrot frá lífi formæðra
okkar. Þá mun einnig verða kaffi á
könnunni.
Bæði fyrirlesturinn og Sumarsýn-
ing safnsins „Fínerí úr fórum for-
mæðra“ eru tileinkuð því að 100 ár
eru frá því íslenskar konur fengu
kosningarrétt. Í tilefni dagsins eru
konur hvattar til að taka fram þjóð-
búninginn sinn og klæða sig uppá.
/Fréttatilkynning
65 hljómsveitir
sóttu um í ár
Styttist í Gæruna tónlistarhátíð
Tónlistarhátíðin Gæran mun fara fram
helgina 13.-15. ágúst næstkomandi.
Hátíðin í ár er haldin í sjötta skiptið og
verður, eins og áður, í húsakynnum
Loðskinns á Sauðárkróki. Ný fram-
kvæmdastjórn tók við á þessu ári með
nýjum áherslum og hefur sett sér þau
markmið að gera hátíðina
fjölskylduvænni.
Mikil eftirsókn var í að fá að spila á
hátíðinni í ár, en um 65 hljómsveitir
sóttu um og það var því mikil vinna að
velja úr þeim frábæra hópi. Glæsilegur
hópur tónlistarmanna kemur fram og
gestum er lofað góðri skemmtun öll
kvöldin þrjú. Meðal þeirra tónlistar-
manna sem koma fram eru Páll Óskar,
Amabadama, Dimma, Bjartmar Guð-
laugsson og margir fleiri.
Miðasala er í fullum gangi á www.tix.
is og mun miðinn í forsölu kosta 6.900
kr. Einnig mun vera hægt að nálgast
miða í sölutjaldi hátíðarinnar og mun
miðinn þá kosta 7.900 kr. /ÞKÞ
Frá Húnavöku fyrri ára. MYND: HÚNAVAKA