Feykir - 17.12.2015, Síða 4
4 Feykir 48/2015
Jóla barnaball Lions
Verður haldið á sal Fjölbrautaskólans á
Sauðárkróki sunnudaginn 27. des. kl. 16:00
Allir hjartanlega velkomnir – börn og fullorðnir
Nemendur í 10. bekk Árskóla syngja og dansa við jólatréð.
Jólasveinarnir koma með glaðning ... Hóhó!
Öll börn fá kveðjugjöf
ÞAKKIR FYRIR STYRK OG STUÐNING:
Fisk Seafood – Steinullarverksmiðjan – Aldan stéttarfélag – Kaupfélag Skagfirðinga – Ólafshús
Skagfirðingabúð –– Sveitarfélagið Skagafjörður – Landsbanki Íslands – Árskóli
Björgunarsveitin Skagfirðingasveit – Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra – Rögnvaldur Valbergsson
– Nýprent – Feykir – Ölgerðin Egill Skallagrímsson og velunnarar
Minnum Lions félaga á að mæta til undirbúnings morguninn 27. des. kl. 11:00.
LIONSKLÚBBURINN BJÖRK LIONSKLÚBBUR SAUÐÁRKRÓKS
Kjör á Manni ársins 2015
Norðurland vestra
Eins og undanfarin ár geta
íbúar á Norðurlandi vestra
kosið mann ársins, úr hópi
þeirra sem tilnefndir voru af
lesendum Feykis og Feykis.is.
Í þetta skiptið bárust sjö
tilnefningar til titilsins og
verður kosið á milli þeirra
sem hér eru nefndir í
kosningunni Maður ársins á
Norðurlandi vestra 2015.
Hægt verður að greiða atkvæði
á Feyki.is. Einnig er hægt að
senda atkvæði bréfleiðis á
Feykir, Borgarflöt 1, 550
Sauðárkróki. Kosningin hefst
UMSJÓN
Berglind Þorsteinsdóttir
kl. 13 föstudaginn 18. desem-
ber og henni lýkur kl. 12 á
hádegi mánudaginn 4. janúar.
Tilnefndir voru:
Anna P. Þórðardóttir
SAUÐÁRKRÓKI
Anna Pálína
varð áttræð 8.
apríl sl. Hún gaf
á árinu út bók-
ina Lífsins skák
sem inniheldur
endurminning-
ar hennar. Anna fékk lömunar-
veiki níu mánaða og hefur
notast við í hjólastól síðan.
„Saga hennar hefur vakið
mikla athygli en hún lýsir ekki
síst mun á kjörum fatlaðra fyrr
á árum og í dag. Anna er
hvunndagshetja sem hefur
tekist á við örlög sín með
einstakri þolgæði og bjartsýn-
ina að vopni,“ segir meðal
annars í tilnefningu.
Stefanía Hjördís
Leifsdóttir og Jóhannes
Ríkharðsson
BRÚNASTÖÐUM Í FLJÓTUM
H j ó n i n
S t e f a n í a
Hjördís og
Jóhannes,
bændur á
B r ú n a -
stöðum í Fljótum hafa um
árabil tekið að sér fósturbörn
sem eiga við erfiðleika að etja,
til lengri dvalar, og hljóta
tilnefningu fyrir það. „Þau hafa
skilað miklu og góðu starfi í
þessum málum, sem er al-
gjörlega aðdáunarvert,“ segir í
tilnefningunni.
Páll Þórðarson
(Palli nagli)
BLÖNDUÓSI
Hinn 16 ára
gamli Páll, eða
Palli nagli eins
og hann er oft
k a l l a ð u r ,
greindist með
krabbamein í
upphafi síðasta árs. Hann
dvaldi langdvölum á Barna-
spítala Hringsins á meðan
hann gekkst undir erfiðar
læknismeðferðir í Reykjavík.
Palli er sagður hafa sýnt ótrú-
legan karakter allan tímann og
einsetti sér m.a. að klára 10.
bekkinn á meðan dvöl hans á
barnaspítalanum stóð. Palli er
á góðum batavegi í dag.
Skúli Einarsson
TANNSTAÐABAKKA Í
HÚNAÞINGI VESTRA
Skúli bóndi á
Ta n n s t a ð a -
bakka hefur í
gegnum tíðina
verið mjög
virkur í félags-
málum og alltaf
boðinn og búinn að leggja
samfélaginu lið. Þess má geta
að þau hjónin, Skúli og Ólöf
Ólafsdóttir, gáfu í haust veglega
peningagjöf sem safnaðist í
sextugs afmæli þeirra til
Tónlistarskóla Húnaþings
vestra. Að sögn kunnugra er
Skúli driffjöður í tónlistar-
lífinu á svæðinu og ómissandi í
menningarlífinu. Nú síðast
stóð hann, ásamt fleirum, fyrir
eftirminnilegum Jólatónleik-
um í Ásbyrgi.
Viggó Jónsson
SAUÐÁRKRÓKI
Viggó er staðar-
haldari á Skíða-
svæði Tinda-
stóls og situr í
sveitarstjórn
Svf. Skagafjarð-
ar. „Það má
segja að Viggó standi á bakvið
allt í Skagafirði, hann sér um
skíðasvæðið, rekur fyrirtækið
Drangeyjarferðir á sumrin,
setti Siglingaklúbbinn á lagg-
irnar, styður þétt við bak
körfuboltastrákanna og það
mætti lengi telja. Metnaðurinn
sem er búið að setja í Tindastól
TV er alveg stórkostlegur,“
segir m.a. í tilnefningu sem
Viggó fékk.
Kristín Ósk Bjarnadóttir
og Anna Margrét
Arnardóttir
BLÖNDUÓSI
Athafnakon-
urnar Kristín
Ósk og Anna
Margrét á
B l ö n d u ó s i .
„Þessar duglegu
konur eru tekn-
ar við rekstri
Félagsheimilis-
ins á Blönduósi.
Með jákvæðni
og bjartsýni að
vopni ætla þær
að koma í það nýju lífi og
fjölbreyttri starfsemi. Þetta er
verkefni sem verðugt er að dást
að og eiga þær fyllilega skilið
nafnbótina, Maður ársins,“
segir í tilnefningunni um þær
stöllur.
Fannar Örn Kolbeinsson
VARMAHLÍÐ
Fannar Örn er
23 ára og hefur
starfað í Dag-
vist aldraðra á
S au ð ár k rók i
u n d a n f a r i n
sumur. Hann
hlýtur tilnefningu fyrir að
bjarga mannslífi. Í lýsingu á
atburðinum segir að biti hafi
hrokkið ofan í háls aldraðrar
konu er allir sátu að snæðingi í
dagvistinni. Fannar Örn brást
skyndilega við og framkvæmdi
Heimlich-takið, þrýsti alls
fimm sinnum áður en bitinn
hrökk upp úr henni. „Konan
var þá orðin blá og við það að
missa máttinn í fanginu á
honum, en hún jafnaði sig
fljótlega eftir að bitinn hrökk
upp úr henni.“
- - - - -
Tökum þátt í skemmtilegri
kosningu og kjósum mann
ársins á Norðurlandi vestra!