Feykir - 17.12.2015, Blaðsíða 25
48/2015 Feykir 25
„Við heitreykingu fær bleikjan létt
reykbragð og heldur silkimjúkri áferð“
Þórhildur setur heitreykta Hólableikju með íslenskum kryddjurtum á markað
Matreiðslumeistarinn
Þórhildur María Jónsdóttir
hefur reitt fram heitreykta
Hólableikju við ýmis tækifæri
á þeim veitingastöðum sem
hún hefur starfað á í
Skagafirði og þekkti því vel
til þess hágæða hráefnis sem
hún var með í höndunum. Nú
er hún komin með vöruna í
framleiðslu og segir
viðbrögðin feykna góð.
Blaðamaður Feykis spjallaði
við Þórhildi og fékk að heyra
hver kveikjan að framleiðsl-
unni var. Í fyrstu var
heitreykta bleikjan ætluð
ferðamönnum sem heimsóttu
Hóla í Hjaltadal, þar sem
Þórhildur starfar sem
framkvæmdastjóri
Ferðaþjónustunnar, en síðan
ákvað hún að taka fram-
leiðsluna skrefinu lengra.
„Ég hef verið að nota þetta
hráefni í átta ár, síðan ég kom
hingað í Skagafjörð, og boðið
upp á það á þeim veitingastöðum
sem ég hef verið, en á þeim
stöðum hefur verið lögð áhersla
á Skagfirsku matarkistuna og
„local food“. Hráefnið frá Hóla-
laxi er algjör snilld, ég hef boðið
upp á það á sérréttaseðli, hlað-
borði, snittum og þess háttar en
hef aldrei áður komið því í
neytendapakkningar þannig
hægt sé að kaupa það. Ég ætlaði
að bjóða ferðamönnum á
Hólum þetta til að grípa með sér
en þetta varð aðeins stærra,“
útskýrir Þórhildur. Hún fékk
styrk hjá Matís til að koma
framleiðslunni af stað og segir
styrkinn hafa veitt henni frábært
tækifæri til þess að stíga skrefið.
„Ég væri ennþá bara að veltast
með þessa hugmynd ef ég hefði
ekki fengið þetta tækifæri. Þeir
sáu um allar innihalds- og
geymsluþolsmælingar, ég fékk
styrk fyrir umbúðarhönnun og
til þess að nota matarsmiðjuna
sem er á Höfn í Hornafirði,“
garðinum, fyrirtæki sem tínir og
þurrkar íslenskar kryddjurtir,
með blóðbergi, aðalbláberja-
lyngi, bláberjalyngi, birkilaufi og
eini. Hins vegar hvönn frá
Hrísiðn, þurrkaða og malaða í
Hrísey. „Ég byrja á því að þurr-
salta og krydda bleikjuna og
heitreyki síðan en við það eldast
hún. Við heitreykingu fær
bleikjan í sig létt reykbragð og
heldur silkimjúkri áferð,“ út-
skýrir hún.
Þórhildur segir hráefnið
bjóða upp á mjög ótal fram-
reiðslumöguleika – í raun hvað
sem hugmyndaflugið bjóði upp
á. „Ég nota þetta mest sem for-
rétt, til dæmis í salat með pipar-
rótarsósu og parmesanosti. Það
er líka hægt að setja bleikjuna
ofan á brauð, í vefju og í heita og
kalda pastaréttir, búa til salat,
svipað og túnfisksalat, með
kotasælu, rauðlauk og krydd-
jurtum og nota á brauð.“
„Þú ert með geðveika vöru“
Framleiðslan fór af stað í byrjun
nóvember og í seinni hluta
mánaðarins kynnti Þórhildur
vöruna í fyrsta sinn á Matarhátíð
Búrsins, stærstu matarhátíð
landsins sem var haldin í Hörpu
dagana 21.–22. nóvember. Tæp-
lega 50 framleiðendur tóku þátt
í sýningunni.
Þegar hún er spurð hvernig
það kom til að hún fór á þessa
sýningu brosir hún. „Ég hringdi
í Eirnýju Sigurðardóttur, eiganda
ljúfmetisverslunarinnar Búrsins
í Reykjavík sem hefur umsjón
með matarmarkaðnum í Hörpu,
og lýsti áhuga mínum á því að
vera á sýningunni. Ég segi henni
frá vörunni og hún var ekkert
upprifin,“ viðurkennir Þórhildur
í gamansömum tón. Eirný
spurði hana hvort hún gæti sent
henni prufu sem Þórhildur gerði
við fyrsta tækifæri. „Þá snérist
leikurinn við. Hún hringdi í mig
og sagði: „Heyrðu, þú ert með
geðveika vöru. Við viljum fá þig
á markaðinn, getur þú komið?“,“
rifjar hún upp og hlær.
Þegar á sýninguna var komið
voru viðbrögðin við heitreyktu
bleikjunni einstaklega góð og
segir Þórhildur þátttökuna hafa
reynst einstakt tækifæri sem
opnaði ótal nýjar dyr við að
koma vörunni á framfæri. „Ég
ákvað að prufa þetta og þreifa
fyrir mér hvernig viðbrögð ég
fengi fyrir þessari vöru – þær
hafa verið svakalega góðar,“
segir hún glöð í bragði.
Næstu skref segir hún vera að
gera vöruna aðgengilegri fyrir
kaupendur og dreifa henni í
verslanir, til að byrja með í
heimabyggð; í Hlíðarkaup og
Skagfirðingabúð. Síðan í þær
verslanir sem gera sig út fyrir að
vera með íslenskar vörur. Þá
ætlar hún að skoða þann mögu-
leika að færa framleiðsluna í
Skagafjörð. „Hugsunin var alltaf
sú að þetta yrði matur alfarið úr
héraði, sem er spennandi
áskorun,“ segir hún að lokum.
Heitreykta bleikjan er ekki
komin í almenna sölu en hægt
verður að nálgast hana hjá
Þórhildi í síma 863 6355 eða á
thorhildur@holar.is þegar fram
líða stundir.
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir Þórhildur á Matarhátíð Búrsins í Hörpu í nóvember 2015. MYND: ÚR EINKASAFNI
segir Þórhildur. Umrædd matar-
smiðja er sú eina á landinu sem
er búin þeim tækjum sem Þór-
hildur þarf til framleiðslunnar
en hún segist stefna að því að
finna húsnæði og koma upp
vinnslustöð í Skagafirði.
Þórhildur vildi hafa fram-
leiðsluna alíslenska, nota bleikj-
una frá Hólum og íslenskar
kryddjurtir og framleiðir hún
tvær gerðir. Annars vegar með
kryddblöndu frá Blóðbergs-