Feykir - 17.12.2015, Síða 9
48/2015 Feykir 9
Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir 53 milljónum í
rekstrarafgang hjá Sveitarfélaginu Skagafirði 2016
Fimm ár í röð í plús
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar fyrir árið 2016 var samþykkt
samhljóða á fundi sveitarstjórnar 9.
desember. Afar mikil-
vægt er að hafa viðlíka
samstöðu í sveitar-
stjórn um fjárhags-
áætlun ársins sem er í
raun stefnumarkandi
fyrir rekstur og fram-
kvæmdir sveitarfél-
agsins á næsta ári.
Það er ánægulegt að leggja fram
fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 sem gerir
ráð fyrir rekstrarafgangi af samstæðu-
reikningi sveitarsjóðs að upphæð 519
milljónir fyrir afskriftir og fjármagnsliði.
Rekstrarafgangur samstæðunnar í heild
A- og B hluta er áætlaður samtals 53
milljónir. Ef áætlanir ganga eftir verður
árið 2016 fimmta árið í röð sem gert
verður upp með jákvæðri rekstrar-
niðurstöðu hjá Sveitarfélaginu Skagafirði,
en slíkur árangur hefur ekki áður náðst í
sögu þess. Óhætt er að segja að ákveðinn
stöðuleiki hafi náðst í reksturinn og ber að
þakka það ábyrgri fjármálastjórn og
aðhaldi í rekstri
undanfarinna ára.
Einnig ber að þakka
starfsmönnum sveit-
arfélagsins en ljóst er
að án samstillts átaks
þeirra hefði sá árang-
ur ekki náðst líkt og
rekstur undanfarinna
ára ber með sér sem
og sú áætlun sem lögð er fram nú.
Mikilvægt er að áfram verði haldið á
þeirri braut og aðhalds gætt í rekstri en
ljóst er að tap á A-hluta sveitarsjóðs þarf
að leiðrétta á komandi árum.
Miklar launahækkanir höfðu áhrif á
áætlunina en hækkanir launa á milli
áætlana 2014 og 2016 eru rúmar 333
milljónir króna. Það er gleðilegt að geta
kynnt fjárhagsáætlun með viðlíka
rekstrarafgangi og gert er ráð fyrir hér
þrátt fyrir það.
AÐSENT SIGRÍÐUR SVAVARSDÓTTIR OG STEFÁN VAGN STEFÁNSSON SKRIFA
Gjaldskrár ekki hækkaðar
umfram verðlag
Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 er miðað
við að þar sem gjaldskrár væru hækkaðar
yrðu þær hækkanir ekki umfram verð-
lags- og kjarasamningshækkanir. Það er
því ljóst að Sveitarfélagið Skagafjörður
verður áfram með einhver lægstu gjöld í
leik- og grunnskólum landsins sem og að
orkukostnaður verður áfram hvað
lægstur á íbúa í Skagafirði. Afar mikilvægt
er að hafa þau markmið uppi þegar
framtíðaruppbygging svæðisins er höfð í
huga. Mikilvægt er að halda þannig á
málum að eftirsóknarvert sé fyrir fólk að
setjast að í Skagafirði. Frá þeirri stefnu má
ekki kvika.
Framkvæmt fyrir 371 milljón 2016
– Sundlaug Sauðárkróks stærsta
einstaka verkefnið
Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri
samstæðunnar verði rúmar 376 milljónir
á árinu og framkvæmt verði fyrir 371
milljón. Stærsta fjárfestingaverkefnið á
næsta ári verða framkvæmdir við Sund-
laug Sauðárkróks. Samkvæmt sveitar-
stjórnarlögum má skuldahlutfall sveitar-
sjóðs ekki fara yfir 150% af tekjum og
höfðu ýmsir áhyggjur af því að með þeim
framkvæmdum sem ráðist var í á síðasta
kjörtímabili myndi sveitarsjóður rjúfa
það viðmið. Gerir fjárhagsáætlun 2016
hins vegar ráð fyrir því að skuldahlutfallið
verði 137%, en þegar búið er að draga frá
lífeyrisskuldbindingu að hluta og skuldir
orku- og veitufélaga, líkt og lögin gera ráð
fyrir, er skuldahlutfall samstæðunnar um
120% sem er vel innan allra marka.
Sú áætlun sem lögð er fram nú var
unnin í samvinnu allra flokka, bæði í
nefndum sveitarfélagsins og í byggðarráði
sem er mikilvægt og ber að þakka fyrir þá
vinnu. Með slíkar kennitölur í rekstri er
ljóst að áfram er hægt að halda áfram á
þeirri braut sem mörkuð hefur verið til
hagsældar og uppbyggingar innviða
sveitarfélagsins.
Við óskum íbúum Sveitarfélagsins
Skagafjarðar til hamingju með þá áætlun
sem hér er lögð fram og óskum öllum
íbúum gleðilegra jóla og farsældar á
komandi ári.
Sigríður Svavarsdóttir
forseti sveitarstjórnar
Stefán Vagn Stefánsson
formaður byggðarráðs
Heilir og sælir lesendur góðir.
Í síðasta þætti birti ég höfundarlausa vísu
sem ekki var alveg rétt með farin. Á fyrri
hluti hennar að vera þannig.
Veröld fláa sýnir sig
sú mér spáir hörðu.
[og svo framvegis]
Hefur nú góður vinur þessa þáttar og
áskrifandi að Feyki, sem búsettur er í
Hafnarfirði, haft samband við mig og
tjáð mér að umrædd vísa muni vera eftir
Vilhjálm Hölter. Var það reyndar það sem
ég hélt, en þorði ekki að treysta minni mínu
um það.
Það er Sunnlendingurinn Ólafur Stef-
ánsson sem leggur þættinum til fyrstu
limruna að þessu sinni.
Þegar lýkur lífsgöngu okkar
verða lagðir til hliðar þeir sokkar
sem léða við fengum
og Laufásveg gengum
meðan enn voru ljósir lokkar.
Ekki fer framhjá neinum okkur landsins
börnum nú um sinn þær illviðraspár og
vondu veður sem nú ganga yfir. Rifjaðist
upp fyrir mér í dag limra sem er í andstöðu
við allt slíkt. Höfundur er limrusnillingur-
inn Kristján Karlsson.
Mælti Haraldur bóndi á Heiði
mitt höfuð þyngir nú leiði.
Hér er ágætis veður
en ekkert sem skeður.
Eitt illmenni kæmi sem greiði.
Hallmundur Kristinsson hjálpar okkur með
eina limru í viðbót.
Hreinn vildi að Hulda sæi
að hann væri alvöru gæi
og söng henni seið
þá sagði hún reið:
Þú ert bara ekki í lagi.
Þrátt fyrir að oft finnist mér að á næstu
dögum komist ég í þrot með efni fyrir
þáttinn, rekur annað slagið á fjörurnar mikil
dýrmæti að mati okkar vísnavina.
Góður vinur og áskrifandi að Feyki á
Akureyri sendi mér nú fyrir skömmu feikna
gott innlegg fyrir okkar ágæta blað, og
vísnaþátt þess. Er þá fyrst til að taka efni frá
snjöllum hagyrðingi sem Gísli hét Jónsson,
skáld í Bolungarvík og var fæddur 14. apríl
1851, dáinn 23. maí 1919. Hefur sá ekki
verið í vanda með að yrkja hringhent eftir
þeim upplýsingum sem ég nú hef.
Mikill auður misveittur
magnar dauða og pínu,
oft er snauður ánægður
af dagbrauði sínu.
„Leiðindi“ kallar Gísli næstu vísu.
Sjaldan kátt um sinnu hyl
sviftur mátt til þrifa,
nú er fátt sem fellur til
og fremur bágt að lifa.
Um Hjört son sinn yrkir Gísli svo, þegar
hann varð ársgamall árið 1908.
Vísnaþáttur 655 Kaldur munnur köld er höndkaldur fótur líka, í brjóstum kennir baugaströnd
barnið elskuríka.
Hjörtur sá er hér um ræðir varð síðar
kunnur íbúi á Akureyri, verkamaður og
skáld. Er mér enn í fersku minni hvað við
krakkar á þeim tíma biðum spennt eftir
meiru þegar bókin hans, Salómon svarti,
kom út. Hjörtur var fæddur 1907 og lést
1963. Þessa vísu sem ég hef lengi kunnað,
og er í miklu uppáhaldi hjá mér, kallar hann
sjálfslýsingu.
Oft við dróttar innstu vé
eyði ég nóttu glaður.
Enda þótt ég ekki sé
eftirsóttur maður.
Einhverju sinni er skólayfirvöld á Akureyri
sendu bréf heim til foreldra og óskuðu
eftir auknu hreinlæti barnanna og gáfu í
skyn ýmislegt miður gott í hári sumra orti
Hjörtur.
Hanga lýs í hárunum
hoppar fló á búknum.
Nartar maur í nárunum
njálgur rís á kúknum.
Þegar Hjörtur stóð frammi fyrir því einn
dag að eiga ekki aura fyrir afborgun af víxli
sem hann átti í Útvegsbankanum varð þessi
vísa til.
Litlu munar músin kvað
sem meig í Atlandshafið.
Eins fer skammarskáldið að
skuldafjötrum vafið.
Ekki er hægt að segja að nein úrkynjun hafi
orðið í ætt þessari hvað skáldskap snertir.
Reynir sonur Hjartar er okkur sem nú lifum
vel þekktur og kunnur hagyrðingur. Um
samferðarmann á lífsins leið yrkir hann svo.
Vantar áttir veður reyk
verður fátt til sóma.
Hefur smátt af heiðarleik
höfuðgáttin tóma.
Ekki versnar andagiftin þó komi í fjórða
lið þessarar ættar. Hallur Birkir Reynisson
leikur sér svo að oddhendu.
Vísnaþraut ég vonda hlaut
vaskur þaut í brasið.
Heilan braut en hugsun þraut
hnugginn laut í grasið.
Þá verður víst ekki mikið lengra komist
með vísnagleðina. Fáum að lokum fallega
vísu eftir okkar góða vin Sigurð Óskarsson
í Krossanesi. Var hann mættur snemma
til messu í Glaumbæjarkirkju og virti fyrir
sér kirkjugestina um leið og þeir mættu.
Þegar sæmdarhjónin í Hátúni birtust í
kirkjudyrunum orti Siggi.
Að mér streyma yl ég finn
andinn fer að hlýna.
Í Guðshúsið ganga inn
Gunnlaugur og Lína.
Verið þar með
sæl að sinni.
/ Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) kristin@feykir.is