Feykir


Feykir - 27.04.2016, Blaðsíða 1

Feykir - 27.04.2016, Blaðsíða 1
FERSKUR Á NETINU Feykir.is Hvað er að frétta? Hafðu samband í síma 455 7176 eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is BLS. 6-7 BLS. 8 Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga 2016 Bessastaða bragur rís BLS. 5 Arinbjörn Jóhannsson á Brekkulæk í Húnaþingi vestra í opnuviðtali Feykis Útivist og náttúru- upplifun fyrir ferðamenn Guðjón Örn Jóhannsson á Sauðárkróki heldur þéttings- fast um áskorendapennann „Það er gott að búa í Skagafirði“ 16 TBL 27. april 2016 36. árgangur : Stofnað 1981 Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra BÍLAVERKSTÆÐI Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570 Við þjónustum bílinn þinn! Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla, vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun. Gáfu nýtt hjartastuðtæki Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi Þann 14. apríl héldu Hollvinasamtök Heilbrigðis- stofnunarinnar á Blönduósi aðalfund sinn. Ný stjórn var kosin á fundinum en hana skipa þau Guðmundur Finnbogason, Kári Kára- son, Ásdís Arinbjarnar- dóttir, Sigurlaug Þóra Hermannsdóttir og Jóhann Guðmundsson. Á fundinum var farið yfir starf síðastliðinna ára og Sigursteini Guðmundssyni, fyrrum formanni, þakkað fyrir sitt framlag. Margrét Einarsdóttir, fráfarandi for- maður, afhenti Ásdísi Arin- bjarnardóttur, fyrir hönd HSN, nýtt hjartastuðtæki að gjöf frá samtökunum. Þá var ákveðið að hleypa af stokk- unum söfnun fyrir blöðru- skanna. Frá þessu er greint á vefnum húni.is. /KSE Ásdís til vinstri og Margrét með hjartastuðtækið. MYND: HÚNI.IS / KÁRI KÁRASON Sæluvika Skagfirðinga var sett í blíðaskaparveðri síðastliðinn sunnudag en athöfnin fór fram í Safnahúsinu á Sauðárkróki. Við tilefnið var opinberað hver hlyti fyrstu Samfélagsverðlaun Sveitarfélagsins Skagafjarðar, sem afhent verða í Sæluviku ár hvert framvegis. Að þessu sinni er það Stefán Pedersen ljósmyndari á Sauðárkróki sem hlýtur verðlaunin. Það var Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri sem afhenti verðlaunin. Í máli hennar kom fram að fjölmargar góðar ábendingar hafi borist en að ákveðið hefði verið að verðlauna Stefán. „Stefán hefur í leik og starfi auðgað mannlíf og menningu Skagafjarðar með ljósmyndum sínum, sýningum, þátttöku í íþróttum og félagsmálum íþróttahreyf- ingarinnar, ábyrgðarstörfum fyrir sam- félag sitt, virkri þátttöku í tónlistarlífi og síðast ekki síst náungakærleik sem birtist á svo margvíslegan hátt, m.a. gagnvart eldri borgurum,“ sagði Ásta þegar hún afhenti Stefáni verðlaunin. Stefán Pedersen hefur auðgað mannlíf og menningu Skagafjarðar S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6 FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN! Samfélagsverðlaun Sveitarfélagsins Skagafjarðar veitt í fyrsta sinn 35 ára Það var Sigríður Svavarsdóttir, forseti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skaga- fjarðar, sem setti Sæluvikuna. Þá var tilkynnt um úrslit í Vísnakeppni Safna- húss Skagfirðinga, sem lesa má um á bls. 5, og opnuð glæsileg myndlistarsýning Hallrúnar Ásgrímsdóttur. Nemendur úr Tónlistarskóla Skagafjarðar léku nokkur lög á milli ávarpa. Myndasyrpu frá setn- ingu Sæluviku má skoða á feyki.is. /BÞ Ásta Pálmadóttir, sveitarstjóri Svf. Skagafjarðar, afhendir Stefáni viðurkenninguna. MYND: BÞ

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.