Feykir - 27.04.2016, Síða 4
4 16/2016
Hafðu samband!
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is
Hvað verður um bókasafn
Lýtingsstaðahrepps?
Bókasafn Lýtingsstaðahrepps
á sér langa sögu. Fyrrum voru
tvö lestrarfélög í sveitinni,
Lestrarfélag Goðdalasóknar í
fremri hluta hreppsins og
Lestrar-
félag
Mælifells-
prestakalls
í þeim ytri,
sem bæði
áttu
bókasöfn
og lánuðu
hrepps-
búum bækur. Söfn þessi voru,
ásamt bókasafni Steinsstaða-
skóla, sameinuð í eitt árið
1979 og komið fyrir í
Laugarhúsi, sem byggt var
1926 og var um alllangt skeið
félagsheimili og samkomuhús
sveitarinnar.
Þar hefur safnið verið til húsa
síðan og rekið af hreppnum og
síðar sameinaða sveitarfélaginu,
eftir að sameiningin gekk í garð.
Hafa framlög til safnsins farið
minnkandi síðari árin og aðeins
verið hægt að kaupa fáeinar
nýjar bækur á ári hverju. Engu
að síður er bókasafn Lýtings-
staðahrepps myndarlegt safn,
enda stendur það á gömlum
merg.
Mun safnið nú telja um sjö
þúsund bækur og kennir þar
ýmissa grasa. Má þar nefna
þjóðlegan fróðleik, skáldsögur,
ljóð, barnabækur, ritsöfn, tíma-
rit og fræðibækur af ýmsu tagi.
Safninu er mjög vel fyrir komið
í hinu gamla Laugarhúsi og
aðgengilegt öllum, sem þangað
leita. Safnið er opið einu sinni í
viku, á fimmtudagskvöldum kl.
20:30 - 22:00. Komum á safnið
hefur farið nokkuð fækkandi
síðustu árin. Fyrir því eru
vafalaust ýmsar ástæður, e.t.v.
minnkandi bókalestur, en
einnig munar þar miklu, er
Steinstaðaskóli var lagður af
2003, en skólabörnin voru
nokkuð tíðir gestir á bóka-
safninu til að afla sér bóka til
hjálpar við námið og til
skemmtunar.
Rósmundur G. Ingvarsson
hefur annast bókavörslu við
safnið nú um langt árabil og
rækt það starf af miklum áhuga
og trúmennsku, m.a. hefur
hann gert nokkuð af því að fara
með bækur heim til eldri
borgara og bjóða þeim til láns,
sem mælst hefur vel fyrir.
AÐSENT ÓLAFUR HALLGRÍMSSON SKRIFAR
Ljósleiðari á hvert heimili
Fjarskiptasjóður gekk í síðustu
viku frá samkomulagi vegna
ljósleiðaratenginga í 14
sveitarfélögum. Samkomulagið
felur í sér að tengja 900 staði
með ljósleiðara og um 200
staði með ídráttarröri fyrir
ljósleiðara. Það fjármagn sem
nýtt er til verksins kemur til
vegna fjárveitingar sem lagðar
voru til af hálfu fjárlaga-
nefndar Alþingis við afgreiðslu
fjárlaga fyrir árið 2016.
Sveitarfélög sem fá styrk eru
Borgarbyggð, Húnaþing vestra,
Súðavíkurhreppur, Eyja- og
Miklaholtshreppur, Sveitarfél-
agið Skagafjörður, Blönduósbær,
Húnavatnshreppur, Norðurþing,
Fljótsdalshérað, Svalbarðshrepp-
ur, Þingeyjarsveit, Rangárþing
eystra, Rangárþing ytra og
Kjósarhreppur.
Orðum fylgja athafnir
Fyrir 3 árum var ekki í gangi
vinna við að ljósleiðaravæða
sveitir landsins og stefnan var sú
að 3G tengingar væru nægilegur
gagnaflutningur fyrir stór land-
svæði. Þetta breyttist vegna þess
að ákveðið var að setja ljós-
leiðaravæðingu sveitanna sem
forgangsmál í aðdraganda
síðustu kosninga. Framsóknar-
flokkurinn lagði mikla áherslu á
þetta mál enda er þetta einn af
stærstu þáttunum sem hafa áhrif
á búsetuval ungs fólks. Í grein
sem formaður, varaformaður og
þingflokksformaður Framsókn-
arflokksins skrifuðu í Morgun-
blaðið 30. mars 2013 sagði:
„Ríkisstjórnin ætti að hafa
frumkvæði að því að kalla saman
fjarskiptafyrirtækin og leggja
áherslur á að nýta Fjarskiptasjóð í
slíkt verkefni. Allir fjarskipta-
aðilar geta veitt þjónustu á kerf-
inu. Mikilvægt er að allir lands-
menn geti fengið jafna og góða
þjónustu á sama verði. – Fyrir
þessu höfum við framsóknar-
menn talað. Með samstarfi allra
aðila ásamt sveitarfélögunum
væri hægt að ljósleiðaravæða
landið á nokkrum árum.“
Forystumenn Framsóknar-
flokksins sögðu jafnframt: „Ný
heildstæð byggðastefna er nauð-
synleg. Framsóknarflokkurinn
leggur mikla áherslu á að um
hana ríki víðtæk sátt. Við erum
fámenn þjóð í stóru landi. Eitt
fyrsta skrefið ætti að vera
ljósleiðaravæðing alls landsins.“
Þessi stefna var sett fram í
stjórnarsáttmála núverandi ríkis-
stjórnar og unnið hefur verið
eftir henni frá síðustu kosn-
ingum. Til þess að fylgja þessu
eftir þá ákvað ríkisstjórnin að fela
tveimur stjórnarþingmönnum,
þeim Páli Jóhanni Pálssyni frá
Framsóknarflokki og Haraldi
Benediktssyni frá Sjálfstæðis-
flokki, að fara ofan í málið og
móta tillögur um hvernig best
væri að vinna málinu framgang.
Þeir hafa staðið sig vel í sinni
vinnu og skilað af sér tillögum
sem ákveðið var að vinna eftir.
Fjárlaganefnd Alþingis
tók forystu
Afgreiðsla fjárlaganefndar á
fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2015
og 2016 hefur verið ánægjuleg
staðfesting á því að ríkisstjórnin
ætli líkt og bent var á fyrir síðustu
kosningar að beita sér fyrir
bættum fjarskiptum. Það er
mikilvægt að allir sitji við sama
borð þegar kemur að þessum
málum og ljósleiðaravæðing
gegnir þar lykilhlutverki.
Fyrir það fjármagn sem
fjárlaganefnd lagði fram á síðasta
ári þá var lokið við hringtengingu
á ljósleiðara á nokkrum svæðum
auk þess að undirbúa verkefnið
frekar. Í fjárveitingu þessa árs þá
er hin eiginlega ljósleiðaravæðing
að hefjast.
Fjármagn til að klára
verkið á næstu árum
Nú er það svo að færri komast að
en vilja í fyrstu umferð. Það er
hinsvegar mikilvægt að gera sér
grein fyrir því að eftir að
núverandi ríkisstjórn tók við
völdum þá varð stefnubreyting í
þessum málaflokki. Nú talar
enginn um að 3G tengingar séu
nægilegar góðar fyrir sveitir
landsins. Eftir að ljósleiðaravæð-
ingunni hefur verið fleytt
formlega af stað þá mun enginn
snúa við þessari stefnumörkun.
Verkefnið er hinsvegar að þetta
geti gengið sem hraðast fyrir sig
og framundan er barátta við að
tryggja sem mest fjármagn til
verksins. Markmiðið er að innan
nokkurra ára þá sé búið að
ljósleiðaravæða allar sveitir
landsins.
Ásmundur Einar Daðason
formaður þingflokks
Framsóknar og nefndarmaður
í Fjárlaganefnd Alþingis
AÐSENT ÁSMUNDUR EINAR DAÐASON SKRIFAR
Nú berast þær fréttir, að til
standi að loka safninu og flytja
bókakostinn í Héraðsbóka-
safnið á Sauðárkróki og verði
það gert, ef gera þarf við Laugar-
húsið, eða þegar núv. bóka-
vörður lætur af störfum. Ekki
finnst okkur, íbúum hins forna
Lýtingsstaðahrepps, þetta góð
tíðindi. Safnið og húsið, sem
orðið er nær 90 ára gamalt, eiga
sér merka sögu. Laugarhúsið er
í rauninni safn og ber að
varðveita sem slíkt, og þar eru
auk bókanna nokkrir gamlir
munir, sem hafa varðveislugildi.
Húsið og safnið ber því
tvímælalaust að varðveita áfram
í sem óbreyttastri mynd. Besta
lausnin er, að safnið verði áfram
kyrrt á sínum stað og nýtist
þannig íbúum sveitarinnar, og
það hygg ég sé vilji velflestra
íbúa hér í Lýdó.
Vart verður því trúað að
óreyndu, að Sveitarfélagið
Skagafjörður hafi ekki burði til
að starfrækja áfram myndarlegt
bókasafn hér í fram – héraði og
búa því sómasamlega umgjörð,
sé vilji fyrir hendi á annað borð.
Kannski skortir viljann. Núver-
andi sveitarstjórn, sem skipuð
er meirihluta framsóknar-
manna, fær nú tækifæri til að
sýna, að hún sjái aðeins fram
fyrir Áshildarholt.
Ólafur Hallgrímsson
Vikuna 17.–23. apríl var rúmum 40 tonnum landað á Skagaströnd, rúmum tólf tonnum á
Hofsósi, rúmum 280 tonnum á Sauðárkróki og 769 kílóum á Hvammstanga. Alls ríflega 334
tonn á Norðurlandi vestra. /KSE
Aflatölur 17.–23. apríl á Norðurlandi vestra
Rúm 334 tonn að landi
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 769
Alls á Hvammstanga 769
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Grásleppunet 6.860
Auður HU 94 Grásleppunet 2.729
Bergur sterki HU 17 Grásleppunet 3.790
Bogga í Vík Grásleppunet 735
Dagrún HU 121 Grásleppunet 5.581
Eyjólfur Ó. HU 100 Handfæri 1.560
Fengsæll Grásleppunet 3.533
Garpur HU 58 Handfæri 33
Geiri HU 69 Handfæri 488
Guðmundur á Hópi Landb.lína 3.331
Hafdís HU 85 Grásleppunet 2.530
Hafrún HU 12 Dragnót 4.532
Húni HU 62 Þorskanet 1.406
Smári HU 7 Handfæri 296
Stefanía HU 136 Handfæri 1.485
Sæfari HU 200 200 Landb. lína 2.019
Alls á Skagaströnd 40.908
SAUÐÁRKRÓKUR
Dagur SK 17 Rækjuvarpa 8.451
Fannar SK 11 Grásleppunet 3.147
Gammur SK 12 Grásleppunet 2.689
Hafborg SK 54 Grásleppunet 2.189
Hafey SK 10 Grásleppunet 2.664
Klakkur SK 5 Botnvarpa 96.659
Málmey SK 1 Botnvarpa 143.227
Már SK 30 Grásleppunet 4.466
Nökkvi ÞH 27 Rækjuvarpa 10.729
Óskar SK 13 Grásleppunet 3.459
Vinur SK 22 Grásleppunet 2.457
Alls á Sauðárkróki 280.137
HOFSÓS
Skáley SK 32 Grásleppunet 4.129
Von SK 21 Grásleppunet 2.499
Þorgrímur SK 27 Grásleppunet 3.580
Þytur SK 18 Grásleppunet 2.515
Alls á Hofsósi 12.723