Feykir


Feykir - 27.04.2016, Page 5

Feykir - 27.04.2016, Page 5
16/2016 5 Bessastaða bragur rís Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga 2016 En engin er miskunn dóm- nefndar eins og lög gera ráð fyrir og þarf hún að skera úr um það hvað skuli standa sem besti botn eða besta vísa en í nefndinni sitja undirritaður Páll Friðriksson, Guðbjörg Bjarnadóttir og Ágúst Guð- mundsson. Fyrripartana smíð- uðu Fljótamennirnir Hreinn Guðvarðarson og Haraldur Smári Haraldsson en þeir hafa verið mér haukar í horni í þau þrjú skipti sem ég hef haft umsjón með keppninni. Í ár voru hagyrðingar beðnir um að yrkja um komandi forsetakosningar þó ekki sé útséð með það enn hversu margir verða í framboði og botna einn eða fleiri af eftir- farandi fyrripörtum sem áttu að fjalla um skemmtilegt mannlíf annars vegar og svo einhverja skagfirska Íslendingasögu- persónu. Voru Fljótamennirnir samtaka um það hver væri aðal garpurinn. Hrafna-Flóki Fljótin nam fyrir ævalöngu. Hún sem Hrafna Flóki fann er fegurst allra sveita. Alltaf finnst mér æðislegt upphaf Sæluviku. Ýmsar sögur segja má af Sæluvikum góðum. Hér ríðum við á vaðið með botni Hrafns sem var dulnefni Jón Gissurarsonar í Víðimýrar- seli. Hrafna-Flóki Fljótin nam fyrir ævalöngu. Ljúfan skerf þar lagði fram í landnemanna göngu. Skýja glópur lét ferskeytluform- ið víkja og hafði vísuna á þessa leið. Alltaf finnst mér æðislegt upphaf Sæluviku, sagði skáldið og óhætt er að taka undir með því. Einn af hinum föstu viðburðum er Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga og hefur þann heiðurssess að fá að kynna úrslitin við setningu Sæluviku Skagfirðinga. Það var sérstaklega ánægjulegt nú, í endurgerðum húsakynnum Safnahússins sem eru stórglæsileg. Að þessu sinni sendu tíu aðilar botna við fyrriparta eða vísur sem einmitt áttu að fjalla um komandi forsetakosningar. Voru það nokkru færri en fyrir ári síðan en efnið gott sem sent var inn og vandi að velja það sem skyldi hljóta verðlaunin. UMFJÖLLUN Páll Friðriksson Hrafna-Flóki Fljótin nam fyrir ævalöngu. Var hann þá í vígaham veðrin eftir ströngu, og krumma tókst að kreista fram „krunk“ úr nefi þröngu. Að baki Skýja glóps reyndist vera Anna Kristín Jónsdóttir frá Mýrarkoti. Þórólfur Stefánsson sem býr í Svíaríki kallaði sig Dætur Satans. Hann hefur líklega fengið aðra skipsbók en höf- undur Landnámu því hann segir: Hrafna-Flóki Fljótin nam fyrir ævalöngu. -En vaknaði svo í Víetnam veikur, í gleðigöngu. Og Alfreð Guðmundsson komst í svipaða skipsbók. Hrafna-Flóki Fljótin nam fyrir ævalöngu. Alsæll kom frá Amsterdam eftir friðargöngu. Um fegurstu sveitina segir Nanný eða Svandís Torfadóttir frá Selfossi. Hún sem Hrafna-Flóki fann er fegurst allra sveita. Henni margur ætíð ann ekkert mun því breyta. Og Ingólfur Ómar Ármannsson með dulnefnið Gustur botnar í svipuðum dúr: Hún sem Hrafna-Flóki fann er fegurst allra sveita. Hefur ætíð heillað mann henni lof skal veita. En Tóki segir: Hún sem Hrafna-Flóki fann er fegurst allra sveita. Umsögn þeirri ekkert kann enn í dag að breyta. Tóki var dulnefni Rúnars Kristj- ánssonar á Skagaströnd. Nú skulum við snúa okkur að Sæluvikunni sjálfri og hafa eftir orð skáldsins Eilífs sem botnar: Alltaf finnst mér æðislegt upphaf Sæluviku. Enda fólk hér eigi tregt að opna sálar bliku. Það var Alfreð Guðmundsson sem kallað sig Eilíf. Jón Gissurar segir: Alltaf finnst mér æðislegt upphaf Sæluviku. Yndið mun þar ekki tregt ástar vafið bliku. Og Rúnar Kristjáns bætir við: Alltaf finnst mér æðislegt upphaf Sæluviku. Þá er hvergi táknmál tregt til í minni kviku. En Þórólfur virðist hafa lent í ógöngum í umferðinni og segir: Alltaf finnst mér æðislegt upphaf Sæluviku. Að borga stöðumælasekt og svitna inn að kviku. Óttar Skjóldal fyrrverandi bóndi í Enni orti undir dulnefn- inu Ósk og hafði þetta svona: Alltaf finnst mér æðislegt upphaf Sæluviku. Andans gleði mikla megt mætir þar fræða kviku. Þegar segja á sögur frá liðnum Sæluvikum komum við ekki að tómum kofum hjá hagyrð- ingum. Óttar heldur áfram. Ýmsar sögur segja má af Sæluvikum góðum. Kveikir ástarelda á Amors fýsna glóðum. Þröstur telur að einhverjar sögur muni ekki þola dagsljósið og rati ekki inn í minningar- greinar þegar að hinsta kalli kemur. Ýmsar sögur segja má af Sæluvikum góðum. Því sannleikurinn fellur frá í flestum erfiljóðum. Þröstur reyndist vera Gunnar Rögnvaldsson á Löngumýri. Anna Jónsdóttir setur þetta svona fram: Ýmsar sögur segja má af Sæluvikum góðum. Frumlegt væri, finnst mér þá að festa þær í ljóðum. Ingólfur Ómar fléttar vífum og víni inn í sögurnar og segir: Ýmsar sögur segja má af Sæluvikum góðum. Sungu menn og supu á Sjafnar vermdir glóðum. Og Jón Gissurar er í róman- tíkinni og botnar svo: Ýmsar sögur segja má af Sæluvikum góðum. Oft þær kveikja unað hjá ýtum jafnt sem fljóðum. Nú styttist í forsetakosningar sem fyrirfram eru taldar sögulegar og margir telja að sigurinn sé vís hjá þeim er nú situr á Bessastöðum. Þó er enn tími til að koma sér á listann og reyna að velta Ólafi úr sessi enda ekki allir áægðir með framboð hans. Óðinn virðist ekki hrifinn: Ótal margir eygðu frama ólu í brjósti sínu von. Nú er öllum enn til ama Ólafur Ragnar Grímsson. Það var Guðmundur Sveinsson á Sauðárkróki sem orti í Óðins stað. Alfreð telur, þrátt fyrir unga og efnilega frambjóðendur, að þjóðin vilji Ólaf Ragnar áfram og sparar ekki til vísunnar. Ört er blóð á eyjaslóð ýmsir bjóða krafta góða. Æskusjóður, sóma fljóð samt vill þjóðin Óla fróða. Og Jón Gissurarson er ekki í vafa: Af frambjóðendum flestum ber fremstur í þeirra röðum. Sá mun vinna sigur er situr á Bessastöðum. Og Jón lofar að vera kátur á kjördag. Kosningarnar mikils met mörgum frá því segi, á kjörseðilinn kátur set krossinn á þeim degi. Ingólfur Ómar er hugsi yfir fjölda frambjóðenda og efast um að allir séu hæfir í embættið. Frambjóðendum fjölgar enn fram nú stíga knæfir. Hópinn skipa merkis menn en misjafnlega hæfir. Og Rúnar telur að líklega verði að fjölfalda Ólaf. Fyrir þjóðarbjörgun bráða bestu gagni mun það þjóna, enda sjálfsagt eitt til ráða, að Ólaf Ragnar verði að klóna! Gunnar Rögnvaldsson hefur kannski verið farinn að yrkja kosningavísur áður en Ólafur gaf kost á sér því hann segir: Framboðsmálin fóru á skrið ferskeytlunnar rímsvon. Stökk þá aftur upp á svið Ólafur Ragnar Grímsson. Eftir þessar skemmtilegu vísur og botna er kominn tími til að upplýsa hvaða botn hlaut náð fyrir augum dómnefndar og hver reyndist besta kosninga- vísan. Besti botninn kom frá Skagaströnd frá Rúnari Kristj- ánssyni sem gefur í skyn að einhverjir kynnu að hafa komið undir í Sæluvikunni og tel ég það alls ekki útilokað. Þannig hljómar þá vísan með botni Rúnars. Ýmsar sögur segja má af Sæluvikum góðum. Margur þar sitt upphaf á undir Nöfum hljóðum. En kosningavísan sem þótti standa upp úr að þessu sinni kemur frá Gunnari Rögn- valdssyni og fjallar um frambjóðanda sem enn hefur ekki gefið kost á sér en nafni hans var samt mikið haldið á lofti í vetur. Heyrðist það gjarna hjá Heimismönnum sem og í Blönduhlíðinni og nærsveitum og greinilegt að Gunnar er viss í sinni sök. Bessastaða bragur rís blakta flögg með tröðum. Þegar ég og þjóðin kýs Þórólf á Hjaltastöðum. Höfundum öllum er þökkuð þátttakan og verðlaunahöfum sendar hamingjuóskir. ÁSMUNDUR EINAR DAÐASON SKRIFAR

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.