Feykir


Feykir - 27.04.2016, Qupperneq 6

Feykir - 27.04.2016, Qupperneq 6
6 16/2016 Þegar ekið er eftir veginum inn Miðfjörð sést Brekkulækur ekki af veginum fyrr en að honum er komið þar sem hvítmálaður bærinn með bláum þökunum kúrir undir brekkunni. Bæjar- stæðið er fallegt auk þess sem þaðan er mikið og gott útsýni yfir sveitina. Hjónin Arinbjörn og Claudia, og Pálína, tíu ára dóttir þeirra, taka vel á móti blaðamanni. Arinbjörn segir blaðamanni frá því að hann sé fæddur í húsinu en Brekkulækur hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar í hundrað ár. Foreldrar hans voru Jóhann VIÐTAL Berglind Þorsteinsdóttir Sigvaldason kennari, sem var uppalin að Brekkulæk, og Sigurlaug Friðriksdóttir. „Ég bjó á tímabili í Þýskalandi, þar sem ég lærði mannfræði og fjöl- miðlafræði, og byrjaði með ferðabransa hérna 1979 – það eru bráðum 40 ár síðan ég byrjaði,“ segir Arinbjörn og brosir út í annað. „Ég var fyrstu árin í eyðibýli hérna frammí afdölum, þá bjuggu foreldrar mínir hérna ennþá en Friðrik bróðir minn var þá tekinn við þessu. Svo brann hérna og bærinn stóð auður um tíma. Ég byrjaði svo að gera upp gamla húsið og hef smátt og smátt Á Brekkulæk í Húnaþingi vestra rekur Arinbjörn Jóhannsson ferðaþjónustufyrirtæki sem gerir út á að bjóða upp á fjölbreyttar ferðir um land allt, með áherslu á útivist og náttúruupplifun auk þess að veita ferðamönnum innsýn í lífstíl fólks í dreifbýlinu. Fyrirtækið hlaut á dögunum verðlaun frá þýska Nordis forlaginu sem gefur út tímarit um málefni Norðurlandanna og hefur um áratuga skeið verið eitt það virtasta sinnar tegundar á þýsku málsvæði. Blaðamaður Feykis leit í heimsókn til Arinbjarnar og fjölskyldu á fallegum vordegi. Ég, eins og allir Húnvetningar, er aðdáandi Arnarvatnsheiðinnar út í gegn og hef alltaf verið. Þetta er þrítugasta sumarið sem ég er með gönguferðir yfir Arnar- vatnsheiði, það var ein ferð fyrsta sumarið og nú er ég með átta ferðir yfir sumarið,“ segir hann. En hvað er svona heillandi við hana? „Já, það er stóra spurningin. Því er enn ósvarað,“ svarar Arinbjörn og kímir. „Þetta er frekar stórt gróið hálendissvæði, með fullt af vötnum og veiði. Það þótti alltaf spennandi þegar maður var unglingur að fara upp á heiðina að veiða. Það var toppurinn á tilverunni.“ Gönguferðirnar yfir Arnar- vatnsheiði eru sjö til tólf daga hálendisganga úr Borgarfirði norður í Húnavatnssýslu, með viðkomu við gíg sem Hall- mundarhraun rann úr og við jaðar Eiríksjökuls og Langjökuls. „Fyrir útlendinga er þetta svo ofboðslega spes að vera staddur þarna uppi á heiði. Að vakna í gangakofa að morgni, líta út um gluggann og það eina sem þú sérð er bara heiðin og náttúran,“ segir Claudia. Arinbjörn tekur undir. „Það sem heillar ferða- mennina er náttúran og svo auðvitað það að við hittum aldrei annað fólk á þessum ferðum. Það er svolítið spes fyrir Mið-Evrópubúa að fara í sjö daga gönguferð og hitta ekki Rætt við ferðaþjónustufrumkvöðulinn Arinbjörn Jóhannsson á Brekkulæk í Húnaþingi vestra Útivist og náttúruupplifun fyrir ferðamenn í tæpa fjóra áratugi verið að byggja við og breyta bænum,“ útskýrir hann. Í dag er húsið með gistirými fyrir 34 manns, í 18 herbergjum. Claudia Hofmann kemur frá Suður- Þýskalandi, skammt frá München. Hún hefur búið að Brekkulæk frá því 2000 og segir að sér líki sveitalífið í Húnaþingi vestra afskaplega vel, þar sé alltaf nóg að gera. Þegar Arinbjörn er spurður nánar út í upphafið segist hann einungis hafa hugsað þetta sem sumarstarf í byrjun, í mann- fræðinni hafði hann verið að spá í ferðamál en síðan þróaðist þetta áfram. „Áður en ég byrjaði í þessu hafði ég verið leiðsögu- maður með laxveiðimönnum. Svo byrjaði ég á þessum hestaferðum og var eiginlega sá fyrsti sem bauð upp á slíkar skipulagðar ferðir,“ segir Arin- björn. Síðar segist hann hafa bætt við gönguferðum yfir Arnarvatnsheiði og síðan rútuferðum, fyrirtækið hefur vaxið frá einstaka ferðum í allt að 40 ferðir með tæpa 500 gesti ár hvert. Áður en Arinbjörn fékk ferðaskrifstofuleyfi var hann kærður af Félagi íslenskra ferðaskrifstofa fyrir að bjóða upp á alferðir án leyfis. „Þá voru þetta um tíu ferðamenn á ári hjá mér. Einar Guðjónsson hjá Útivist skrifaði svo uppá að þetta væru löglegar leiðir hjá mér. Síðan fékk ég ferðaskrifstofuleyfi, fyrst svokallað B-leyfi, en nú er ég með venjulegt ferðaskrifstofleyfi og hef verið með það nokkuð lengi,“ útskýrir hann. Þá hefur Arinbjörn verið meðlimur og hluthafi í Ferða-þjónustu bænda nánast frá upphafi. Aðdáandi Arnarvatnsheiðarinnar eins og allir Húnvetningar Í dag býður Arinbjörn upp á hestaferðir, gönguferðir, réttar- ferðir, fuglaskoðunarferðir og norðurljósaferðir. Þegar Arin- björn er spurður hvernig hann þróar ferðirnar svarar hann eftir smá umhugsun. „Eiginlega býður maður upp á það sem maður hefur sjálfur gaman af. Claudia, Arinbjörn og Pálína. MYND: ÚR EINKASAFNI

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.