Feykir


Feykir - 27.04.2016, Qupperneq 8

Feykir - 27.04.2016, Qupperneq 8
8 16/2016 Það var það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég hugsaði um hvað ég ætti að skrifa í þessum pistli. Ég er fæddur og uppalinn Keflvíkingur. Ég ólst upp í þeim ágæta bæ á meðan herinn var enn á „vellinum“. Ég persónulega varð ekki mikið var við þennan her nema flugvélarnar þeirra sem ollu stundum því að við skoruðum mark í fótboltaleik á meðan andstæðingarnir stóðu agndofa og störðu upp í himininn á þessa risafugla sem höfðu mjög hátt. Mér fannst gott að alast upp í Keflavík en ég hef alltaf haft á tilfinningunni að margir skammist sín fyrir uppruna sinn eða kannski þessa nálægð við herinn. Í minningunni fannst mér fullorðið fólk yfirleitt neikvætt um flest allt. Ég var mjög feimið barn, og á minningar um að hafa viljað vera ósýnilegur oft á tíðum. En mér hlotnaðist sú gæfa að hafa meðfæddan hæfileika sem enginn vissi af fyrr en besti vinur minn dró mig á fótboltaæfingu þegar ég var að stálpast. Þar kom í ljós að þetta lá vel fyrir mér. Fljótlega varð fótboltinn að ástríðu og ég fór að leyfa mér að dreyma um frama. Feimnin rjátlaðist smátt og smátt af mér og sjálfstraustið kom um leið. Ég átti frábær ár í yngri flokkum Keflavíkur bæði í knattspyrnu og körfubolta og varð Íslandsmeistari í báðum greinum oftar en einu sinni. Á þessari vegferð minni kynntist ég mínum bestu vinum og þó ég hafi nú búið jafnlengi í Skagafirði og í Keflavík þá erum við sex vinirnir sem höldum mjög reglulega sambandi. Í minningunni upplifði ég aldrei neikvæðni í þessum hópi. Enn þann dag í dag þegar við vinirnir hittumst þá er bara gaman. Við veltum okkur ekki upp úr hvað Skagfirðingar eða Garðbæingar hafi það gott. Við gleymum okkur við að hafa það gott. Við erum svo sannarlega mjög ólíkir einstaklingar þannig að ekki get ég sett það fram sem lykil að þessari jákvæðni. Aldrei man ég eftir að hafa haldið að ég væri betri en nokkur þeirra í því sem ég gerði og ég upplifði mig aldrei slíkan gagnvart andstæðingum heldur. Samt tókst mér einum af vinunum að vinna mér sæti í landsliði Íslands í knattspyrnu. Aldrei man ég eftir að hafa upplifað öfund eða leiðindi af þeirra hálfu og alltaf hlakkaði ég til að hitta þá aftur og spila með þeim, jafnvel þótt reynsla mín af landsliðsþátttöku hafi verið frábær. Nú haldið þið að ég sé að ná toppnum hvað sjálftraust varðar, en allt þetta hól um sjálfan mig leiðir okkur vonandi aftur niður á jörðina. Átján ára lenti ég svo í alvarlegum meiðslum sem að lokum bundu enda á feril minn sem knattspyrnumaður sjö árum seinna og þá sem leikmaður Tindastóls á Sauðárkróki. Ég hafði verið lánaður frá vinum mínum í Keflavík í minna lið á Suðurnesjum þar sem ég átti að „koma undir mig fótunum“ að nýju eins og þjálfarinn þá kallaði það. Ég fann mig alls ekki í nýja liðinu, allt í einu fann ég fyrir „leiðindum“ liðsfélaga og þjálfarinn var „ömurlegur“. Kærastan hætti með mér. Neikvæðnin tók völdin í mínu lífi. Á sama tíma var einn af vinum mínum úr Keflavíkurliðinu að kljást við það vandamál að geta spilað tvær íþróttagreinar á fullu, svo góður var hann að þjálfarar beggja greinanna vildu að hann einbeitti sér að annarri greininni en ekki hinni. Fyrir vikið varð hann að víkja frá félaginu okkar og leita á önnur mið. Sauðárkrókur í Skagafirði varð fyrir valinu og fljótlega var ég, vinur hans, kominn til hans og langaði að koma fótunum undir mig hér á þessum fallega stað, svo fjarri heimaslóðum þar sem væntingar til mín voru umfram það sem ég gat skilað á þeim tíma. Þegar hingað var komið ákvað ég að „núllstilla“ mig. Nú yrði ég t.d. ekki feiminn lengur og hér myndi ég aftur ná að njóta mín sem einstaklingur og vonandi sem hluti af einhverri liðsheild. Þegar ég flutti á Krókinn þá voru rúm tvö ár liðin frá því að ég hafði orðið fyrir þessum meiðslum sem settu svo stórt strik í minn feril. Ætlunarverk mitt tókst, hér naut ég mín aftur með vini mínum og við vorum fljótir að eignast fleiri vini innan Tindastólsliðsins og jákvæðni smitaðist út. Ekki endilega frá okkur tveimur heldur bara innan úr sterkum hópi. Við unnum okkur upp úr 3. deild þetta sumar og í upphafi þess næsta var þriðji æskuvinurinn mættur til að spila með okkur. Við nutum lífsins og allt var jákvætt. Á þremur árum höfðum við upplifað að fara tvisvar upp um deild og vorum við komnir í næstbestu deild Íslands. Á þessum tímapunkti var neikvæðnin farin að segja til sín, deildin skuldaði mikla peninga og fljótlega fór allt beina leið niður á við eins góður klósettfengur. Neikvæðnin réð för. Á mínu tuttugasta og öðru aldursári var ég svo illa að mér að ég vissi ég ekki hvað Framsóknarflokkurinn var og ekki heldur Sjálfstæðisflokkurinn og hvað þá hinir póltísku flokkarnir en samt kynntist ég hér ungri konu sem síðar varð konan mín og síðan hefur Sauðárkrókur verið mitt heimili. Í dag eigum við þrjár yndislegar dætur skuldlaust. Það eru ekki margar eignir sem maður getur talið upp sem skuldlausar en þær eigum við. Æskuvinir mínir eru farnir suður aftur en við erum enn bestu vinir. Síðan þá hef ég kynnst því hvernig sveitarfélög eru rekin af fólki sem vill sínu sveitarfélagi allt það besta. En ég finn og hef fundið lengi fyrir sömu almennu neikvæðninni hér út í allt og ekkert eins og á æskuslóðum fyrir u.þ.b. 25 árum. Þar er ég ekki undanskilinn. Almennt erum við mjög gjörn á að halda að aðrir hafi það miklu betra alls staðar annars staðar og oftar en ekki heyrist að verið sé að taka okkur í ósmurt... Nú þarf ég að galdra fram boðskap þessarar sögu í stuttu máli. Ég velti því fyrir mér hvar í lífinu mér hefur gengið hvað best. Ég hef unnið á fimm vinnustöðum hér í Skagafirði, KS, Dodda málara, Búnaðarbankanum, Tindastól og Árskóla. Ég hef spilað með nokkrum hópum / liðum íþróttir. Alls staðar þar sem ríkir góður og jákvæður andi næst árangur. Góðir vinir verða til þegar tveir einstaklingar gleyma sér í jákvæðninni. Góð liðsheild skapast af góðum vinum og jákvæðri orku sem geislar frá þeim. Í dag finnst mér ofsalega gott að búa í Skagafirði, mér fannst ofsalega gott að búa í Keflavík á sínum tíma og sama hvar ég lendi í framtíðinni þá veit ég að mér á eftir að finnast ofsalega gott að búa þar. Reynsla mín sýnir að til að ná árangri þá þurfa allir að standa saman og vinna í eina átt. Því kemur það mér á óvart að pólitík skuli enn byggja á þeirri fáránlegu staðreynd að byrja á því að búa til andstæðinga innan hópsins og eyða svo mestum tímanum í að rífast innbyrðis frekar en að sameinast í vinskap og liðsheild og ráðast á verkefnin þannig. Ég leyfi mér að ímynda mér hvernig Árskóli væri sem vinnustaður ef við myndum byrja á því að skipta starfsfólkinu í tvö lið, annað liðið yrði einum manni fleira en hitt svo að öruggt væri að fámennara liðið fengi ekkert að segja þegar liðin greinir eitthvað á. Svo væru einstaklingar innan liðanna sem væru „leiðtogar“ en þeir geta verið bæði jákvæðir og/eða neikvæðir. Allir innan liðsins ættu að fylgja þessum leiðtoga í einu og öllu. Ætli svona lítið batterý eins og grunnskóli yrði gæfulegur vinnustaður ef honum væri stýrt eins og ráðhúsum sveitarfélaganna eða Alþingi Íslands? - - - - - Ég skora á Kristbjörgu Kemp að koma með næsta pistil. Guðjón Örn Jóhannsson, Sauðárkróki, skrifar Það er gott að búa í Skagafirði ÁSKORENDAPENNINN UMSJÓN kristin@feykir.is Retro Stefson, Úlfur Úlfur og Sverrir Bergmann eiga sviðið Drangey Music Festival Tónlistarhátíðin Drangey Music Festival, þar sem vegurinn endar, verður haldin í annað sinn laugardagskvöldið 25. júní næstkomandi. Þetta árið verða það Retro Stefson, Sverrir Bergmann og hljómsveit og Úlfur Úlfur sem munu eiga sviðið, ásamt úrvali heimafólks og fleiri atriða sem kynnt verða síðar. Óhætt er að segja að hátíðin hafi slegið í gegn þegar hún var haldin í fyrsta skipti síðastliðið sumar, frábær tónlist, einstök náttúra og veður eins og best verður á kosið hjálpaði allt til við að skapa ógleymanlega upplifun. „Þetta gekk mjög vel í fyrra, svo ekki sé meira sagt, og er mikil áskorun að fylgja þessu eftir,“ viðurkennir Áskell Heiðar Ásgeirsson í samtali við Feyki, en hann stendur á bak við hátíðina ásamt Viggó Jónssyni og Guðbrandi Ægi Ásbjörnssyni. Hátíðin verður með sama sniði þetta árið, hvað varðar umgjörð, uppsetningu, skipu- lag og miðaverð. „Við ætlum að vera með tónlist fyrir alla aldurshópa, erum komin með nokkur frábær atriði og eigum eftir að koma með fleiri þegar nær dregur,“ bætir hann við. Þegar Áskell Heiðar er spurður um væntingar til að endurskapa þá frábæru stemningu sem einkenndi hátíðina í fyrra segir hann að búið sé að panta gott veður á hátíðinni og alveg fram yfir Landsmót hestamanna. „Veðrið er auðvitað stór þáttur á útitónleikum hvar sem er, en á meðan það verður ekki rok og rigning þá verðum við í fínum málum. Við lofum ekki góðum veðri en við lofum hins vegar góðri tónlist í glæsilegri umgjörð, fallegu landslagi og ef við fáum eins frábæra áhorfendur og í fyrra þá getum við lofað góðri stemningu og góðum anda. Svo kemur í ljós hvort við vinnum aftur í veðurlottóinu!“ segir Áskell Heiðar að lokum. Miðasala hefst mánudag- inn 2. maí á midi.is /BÞ

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.