Feykir - 27.04.2016, Blaðsíða 9
16/2016 9
Heilir og sælir lesendur góðir.
Það er sá snjalli vísnasmiður Stefán Stefánsson
frá Móskógum sem er höfundur fyrstu vís-
unnar að þessu sinni.
Oft er gott sem gamlir kveða
gráhærðir af andans krafti.
En hvort er betra að yrkja eða
algjörlega halda kjafti.
Margar vísur mun Stefán hafa ort um
samferðakonu á lífsins leið sem í daglegu
tali var oftast kölluð Stína. Hér koma næst
nokkrar af þeim.
Flestar nætur ertu enn
úti að dorga og vona.
Þú hefur fiskað marga menn
mikil er trú þín kona.
Öðlast Stína hylli og hrós
hrífur marga silkiskrúðinn.
Þetta er fremur dyggðug drós
en dýr í rekstri eins og Súðin.
Ástin kyndir elda sína
ásamt girndinni.
Ég hef yndi af þér Stína
eins og syndinni.
Af því hún var gleðigjörn
girnileg og fögur.
Eignaðist hún átta börn
og óteljandi sögur.
Um einn ferðafélaga á lífsins leið yrkir Stefán.
Labbar fullur lífsins slóð
með litla fyrirhyggju.
Út og suður eltir fljóð
og endar á Kvíabryggju.
Stefán er líka til í að lýsa sjálfum sér.
Ég þekki mína mörgu galla
mér þeir fylgja allar stundir.
Ég er alltaf fús að falla
í freistni, ef að svo ber undir.
Ekki er alltaf hægt að gera það sem maður vill.
Þeim ég sýni vinar vott
sem vel ég þekki.
Og vil öllum gera gott
en get það ekki.
Í tíð Stefáns féllu bréf.
Margt ég prófað misjafnt hef
en mestan halla gerði,
er hamingjunnar hlutabréf
hröpuðu í verði.
Að lokum þessi ágæta vísa úr syrpu Stefáns.
Þó að frjósi og fenni senn
í fornar slóðir manna,
ilminn ljúfa leggur enn
úr laufi minninganna.
Gott að leita næst til annars Skagfirðings,
Magnúsar Gíslasonar, áður bónda á Vöglum
í Blönduhlíð og heyra vísu sem talin er ort í
Reykjavíkurhrepp einhverju sinni er skáldið
var staddur þar syðra. Lagleg hringhenda þar
á ferð.
Menning reynist rotin hér
Vísnaþáttur 663 ranga beinir veginn.Hlakkar í einum ef hann sérannan meinum sleginn.
Þegar þessi vísa komst á kreik orti Adolf J.
Pedersen aðra í svipuðum dúr.
Þegar óhapp annan skar
angurs svo að kenni,
hlakkar í görnum hrafna þar
hlæja dusilmenni.
Hef nýlega fundið í drasli mínu þrjár hring-
hentar vísur sem ég held endilega að séu
eftir Magnús á Vöglum. Er hann þar að lýsa
önnum dags hér áður fyrr.
Fólkið áður föðurlands
föngin þáði nota,
þekkti dáðir dúks og bands,
dó ei ráða þrota.
Þræðir runnu um höföld hratt
-harðna kunni gaman-
kembt og spunnið, kveðið glatt
af kappi unnið saman.
Gærur spýtti, gjörði skó
grösin nýtti í haga,
færi hnýtti, fiskinn dró
fann sér lítt til baga.
Freisting er enn að halda áfram með efni
tengt Skagafirði. Pétur Stefánsson yrkir svo
magnaða limru.
Dreymir mig oftsinnis Ester
einkum er kvöldsólin sest er,
að röltum við bæði
í rúmið í næði
og byrjum á því sem að best er.
Grenivíkurskáldið Björn Ingólfsson brást vel
við áskorun Péturs og sendi svar.
Ég vorkenni aumingja Ester
sem ástúðleg mjög við sinn gest er
og daðrar við hann
þennan dáðríka mann
en veit ekki enn það sem verst er.
Freistast til að birta eina limru í viðbót, sem
í dóti mínu er sögð eftir Sigurð Jónsson
tannlækni. Man ekki fyrir víst hver hann er,
en langar að biðja lesendur um upplýsingar
um hvort hann sé ættaður úr Skagafirði.
Mun hann hafa verið staddur í kaffi hjá
svokölluðum Sundhallarflokk er þessi ágæta
limra varð til.
Í kaffi vill flokkurinn fá mig
fæ ég þar jafnvel að tjá mig.
Stundum er fámennt
en fjandi er góðmennt
þegar ég sjálfur læt sjá mig.
Gott að ljúka með vísu sem gerð er fyrir
örfáum dögum. Höfundur er Bjarni Sævars-
son, Arnarholti í Biskupstungum.
Varla ríkir vetur enn
vinur greikkar sporið.
Fjalladrottning fer nú senn
fegin út í vorið.
Veriði þar með sæl að sinni.
/ Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) kristin@feykir.is
Margir vilja leggja sitt af mörkum
Söfnun til styrktar Ívari Elí og fjölskyldu
Eftir að auglýst var söfnun til
styrktar fimm ára flogveikum
dreng á Sauðárkróki, Ívari Elí
Sigurjónssyni, hafa fjölmargir
brugðist við og viljað leggja
fjölskyldunni lið. Veitinga-
staðurinn Hard Wok á Sauðár-
króki seldi 361 hamborgara
síðasta vetrardag og rann sú
innkoma öll til fjölskyldunnar.
Sama er að segja um áheit
sem nemendur 7. og 8. bekkjar
Varmahlíðarskóla söfnuðu
þegar þeir hlupu svokallaðan
Hegraneshring. Þá efndu tveir
ungir drengir til tombólu í
Skagfirðingabúð og Þreksport
lagði málefninu lið með
svokölluðum Þreksportleikum.
Eins og sagt hefur verið frá á
vefnum Feykir.is hefur Ívar Elí í
nærri tvö ár barist við flogaveiki.
Köst hans hafa náð tveimur
tugum á dag þegar verst lætur.
Nú er svo komið að íslenskir
læknar eru ráðalausir. Því hefur
Jón Gabríel Rodriguez Marteinsson og Fannar Páll Ásbjarnarson með tombóluféð.
MYND: BÞ
verið ákveðið að senda hann til
Boston á næstunni, til
rannsóknar og síðar í aðgerð.
Eins og nærri má geta hefur
veikindum þessum fylgt mikill
kostnaður og vinnutap fyrir
foreldrana og því ákváðu vinir
þeirra að hrinda af stað söfnun
til að styrkja fjölskylduna og
létta þeim lífið.
Að sögn Írisar Olgu Lúðvíks-
dóttir, kennara í Varmahlíðar-
skóla, sem hafði umsjón með
áheitahlaupi 7. og 8. bekkinga
þar, gekk hlaupið vel. „Við
fengum allar útgáfur af veðri og
í Blönduhlíð var komin hund-
slappadrífa, ekta svona jóla-
veður. Við sungum nú ekki
jólalög, en það munaði litlu,“
segir Íris Olga, en hlaupið fór
fram síðasta vetrardag. Hegra-
neshringurinn svokallaði er um
65 kílómetrar og segir Íris Olga
að hlaupið hafi klárast á
mettíma. Lagt var af stað frá
Varmahlíðarskóla kl. 9:15 að
morgni og voru síðustu menn
komnir í mark uppúr klukkan
18. Þegar blaðamaður ræddi við
Írisi í gær, þriðjudag, stóð til að
afhenda söfnunarféð á morgun,
fimmtudag og sagði Íris Olga að
safnast hefðu um 900 þúsund
krónur.
„Þakklæti fyrir samhug“
Árni Björnsson, eigandi veit-
ingastaðarins Hard Wok á
Sauðárkróki, efndi einnig til
söfnunar síðasta vetrardag.
Hugmyndin kviknaði í tilefni
þess að staðurinn á fimm ára
afmæli þann 1. maí og í stað
þess að halda upp á afmælið
vildi Árni fagna tímamótunum
með því að láta gott af sér. Seldir
voru 361 hamborgari sem
afgreiddir voru með aðstoð vina
og vandamanna fjölskyldu Ívars
Elís. Innkoma vegna þessa,
rúmlega 900 þúsund krónur,
rennur óskipt í söfnunina.
Tveir ungir drengir á
Sauðárkróki, þeir Jón Gabríel
Rodriguez Marteinsson og
Fannar Páll Ásbjarnarson,
héldu tombólu í anddyri
Skagfirðingabúðar og söfnuðu
rúmum tuttugu og tvö þúsund
krónum á tveimur klukku-
tímum. Þá stóð líkamsræktar-
stöðin Þreksport fyrir Þrek-
sportsleikum í febrúar og
söfnuðust þar um 118 þúsund
krónur.
Auk ofangreindra safnana
eru ótalin framlög frá
fyrirtækjum og einstaklingum,
en bankareikningur sem
auglýstur var í Sjónhorninu á
dögunum er ennþá opinn ef
fleiri vilja láta eitthvað af hendi
rakna. Reikningsnúmerið er
310-13-133429 og kennitalan
280176-5249.
Feykir hafði samband við
Steinunni Daníelu Lárusdóttur,
móður Ívars Elís og aðspurð
sagði hún að því miður væri
ekki komin dagsetning á
rannsóknina sem hann á að fara
í úti í Boston, en það myndi
vonandi skýrast fljótlega. „Við
viljum koma á framfæri
endalausu þakklæti fyrir
samhug sem okkur er sýndur,“
sagði Steinunn.
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir